Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021 LÍFSSTÍLL E in af mínum fyrstu minningum er af deg- inum þegar ég varð fjögurra ára. Það var eitthvað sérstakt og spennandi við að bera kórónu og hafa alla athyglina á manni þennan eina dag. Ég vildi lítið annað gera en að monta mig af því að vera orðinn svona gamall. En af hverju var þetta merkilegur dagur? Af hverju pælum við yfirhöfuð í því hvaða dag við fæddumst? Í vestrænni menningu er hefð fyrir því að fagna afmælum með veislum, kökum, blöðrum, gjöfum og öðru tilheyrandi. Kerti á köku er það sem kemur upp í huga margra þegar hugs- að er um afmæli. Hefðin á sér hins vegar langa sögu og eru ekki allir sammála um hvernig hún kom til. Hér verður stiklað á stóru í þeirri sögu. Faraó fyrstur til að eiga afmæli Elsta heimild þess að haldið sé upp á afmæli má finna í Biblíunni. Þar er því lýst þegar hald- ið var upp á fæðingardag faraósins í Egypta- landi. Fékk þá faraóinn allt starfsfólk sitt til að halda veislu honum til heiðurs. Líklega bar veislan upp á krýningardag faraósins en talað var um að hann „fæddist“ sem guð þann dag. Næst var komið að Forn-Grikkjum að setja mark sitt á hefðina. Guðir þeirra og gyðjur áttu hvert og eitt sérstakan dag sem haldið var upp á þar sem ýmsar fórnir voru færðar. Matur, drykkur og handverk var fært hinum guðlegu verum. Þar á meðal var veiðigyðjunni Artemis færð kaka með logandi kertum. Þegar fram liðu stundir fór vel stætt fólk að leyfa sér að fagna hvert öðru á ákveðnum degi ársins, bæði meðal Rómverja og Forn-Grikkja. Komu fjölskyldur og vinir þá saman og skiptist á gjöfum, borðaði mat og óskaði hvert öðru vel- farnaðar. Mest áhersla var þó lögð á alls kyns hátíðir sem haldnar voru á ári hverju og almúginn, jafnvel þrælar, fóru að fagna ákveðnum dögum á dagatalinu. Venjulegt fólk var þó enn ekki farið að fanga afmælisdögum sínum. Hvenær fæddist Jesús? Þegar ríki Rómaveldis var sem stærst, á ann- arri öld eftir Krist, fór kristni að breiðast út um svæðið. Þá var það talið heiðinn siður í kristni að halda hátíðir eða fagna afmælum, en á fjórðu öld eftir Krist ákvað kirkjan að reyna að ýta undir vinsældir trúarbragðanna. Ákveð- Ljósmynd/Unsplash Öll höfum við haldið upp á afmæli, að minnsta kosti mætt í afmælisveislu. Þetta þykir sjálfsagt enda fáir dagar eins mikilvægir á ári hverju og fæðingardagur okkar. En af hverju er hann svona mikilvægur og hvernig kom það til að fólk fór að halda upp á afmæli sitt? Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Til hvers öll þessi afmæli? Hin hefðbundna afmæl- iskaka hefur eitt kerti fyrir hvert ár sem afmælisbarnið hefur lifað eins og þessi hér. Teningaspilarar á Saturnalia-hátíðinni sem jólin voru sett til höfuðs.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.