Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Qupperneq 23
18.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23
HEILSA
Algeng einkenni B-12 skorts:
• Nálardofi í hand- og fótleggjum
• Erfiðleikar með gang
• Skapsveiflur
• Minnisleysi
Munnúði tryggir hraða og góða upptöku
þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í
gegnum slímhúðina í munninum og beint út í
blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í
munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til a
tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12
vítamíni og til að verja okkur gegn skorti.
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
B12 - MUNNÚÐI SEM VIRKAR
S
amkvæmt okkar bestu vitn-
eskju virðast nokkrir þættir
segja til um velfarnað í líf-
inu. Gáfur eða greindarvísitala
leika líklega stærsta hlutverkið í að
okkur vegni vel í lífi og starfi. Gáf-
ur einar og sér eru hins vegar ekki
nóg og það eru ýmsir aðrir þættir
sem eru mikilvægir. Þar ber helst
að nefna langtíma þrautseigju (e.
grit), sem er að hafa staðfestu í að
ná langtímamarkmiðum, grósku-
hugarfar (e. growth mindset), sem
er undirliggjandi trú á því að þú
getir bætt hæfileika, hæfni og gáf-
ur, og ástríða (e. passion), sem er
að hafa sterkan áhuga á einhverju
þema/færni/sviði sem drífur þig
áfram. Þegar þú hefur ástríðu fyrir
einhverju ertu tilbúinn til að fara
langt umfram vinnuna sem þú þarft
til að ná markmiðinu þínu. Í þessu
samhengi má segja að trúin flytji
fjöll.
Módelið sem við höfum þróað
(sjá mynd) færir rök fyrir því að
samblanda ástríðu, gróskuhugar-
fars og þrautseigju sé blandan að
velfarnaði í lífinu. Hægt er að líkja
þessum þáttum við ör sem miðar
áfram að árangri. Að gróskuhugar-
far sé undirliggjandi undir örinni,
ástríðan stjórni hvert örin miðar og
þrautseigjan ráði hversu öflug og
sterk örin er.
Þrautseigja
Dæmi um einstaklinga með þraut-
seigju og ástríðu eru til dæmis
landsliðsfyrirliðarnir í knattspyrnu,
Sara Björk Gunnarsdóttir og Aron
Einar Gunnarsson. Þú sérð ástríðu
þeirra fyrir leiknum inni á fótbolta-
vellinum og þau hafa bæði sýnt
mikla þrautseigju á sínum ferli –
þar sem fótbolti og íþróttir almennt
yfirhöfuð innihalda ótal hindarnir
og áskoranir og mistök eru óhjá-
kvæmileg. Snar þáttur í því að
Sara og Aron hafa náð svona mikl-
um árangri í fótbolta er þeirra
brennandi ástríða og þrautseigja.
En er hægt að þjálfa þraut-
seigju? Rannsóknir benda til að
gróskuhugarfar leiki þar stórt hlut-
verk eða sé undirliggjandi þáttur
fyrir þrautseigju. Einstaklingar
með gróskuhugarfar trúa því að
meðfæddir hæfileikar séu ekki allt
og að þeir geti bætt færnina og
þekkingu sína í hverju sem er. Aðr-
ir einstaklingar eru með festu-
hugarfar (e. fixed mindset) og þeir
trúa því að meðfæddir hæfileikar
séu allt og að þeir séu annaðhvort
góðir í einhverju eða ekki. Þraut-
seigjan má segja að tengist því að
gefast aldrei upp.
Gróskuhugarfar
Það er töluverður munur á hvernig
einstaklingar með gróskuhugarfar
og festuhugarfar líta á aðstæður,
hugsa og haga sér. Einstaklingar
með gróskuhugarfar einblína á erf-
iði sem þátt í að láta niðurstöðuna
verða að veruleika, að læra af mis-
tökum og að taka mið af upp-
byggilegri gagnrýni. Þeir líta á
hindranir og áskoranir sem tæki-
færi til að vaxa og þroskast. Þó svo
þau hafi ekki hæfnina til að takast
á við áskorun sem þau standa
frammi fyrir eins og staðan blasir
við þeim, þá trúa þau að þau muni
geta tæklað áskorunina á endanum.
Þessir einstaklingar tala um áskor-
anir en ekki vandamál. Einstak-
lingar með festuhugarfar einblína
hins vegar frekar á niðurstöðuna
umfram erfiðið sem lætur niður-
stöðuna verða að veruleika, þora
ekki að gera mistök því þá finnst
þeim þeir sjálfir vera mistök, vilja
ekki fá gagnrýni og eru líklegri til
að gefast upp ef þeir mæta hindr-
unum eða áskorunum. Á meðan
einstaklingar með gróskuhugarfar
einblína á það að bæta sig þá verja
einstaklingar með festuhugarfar
mikilli orku í að reyna líta vel út.
Þið sjáið því að lykillinn er að
temja sér gróskuhugarfar – ein-
staklingar sem læra af mistökum,
leggja hart að sér, taka uppbyggi-
legri gagnrýni og halda áfram þó
svo það reyni á, eru margfalt lík-
legri til að ná árangri. En hvernig
gerir maður það? Ein leiðin er að
segja við sjálfan sig „ekki enn þá“
þegar maður stendur andspænis
áskorun: „Ég get þetta kannski
ekki enn þá, en ég mun geta það
seinna.“ Önnur leið er að hrósa
sjálfum sér og öðrum fyrir erfiðið
sem stuðlaði að útkomunni, en ekki
bara útkomunni sjálfri. Það er sér-
staklega mikilvægt að hrósa börn-
um fyrir erfiði sem þau leggja á sig
– þá ertu að styðja við þá hegðun
að þau leggja á sig, en ekki niður-
stöðuna. Ferillinn er lykillinn –
styrkjum hann.
Ástríða
Hvað varðar ástríðuna, þá er lykill-
inn að finna sína ástríðu eða sterkt
áhugasvið með því að þróa hana.
Margir halda að ástríðan komi allt í
einu til manns en rannsóknir benda
á að mögulega þróir þú hana í stað-
inn fyrir að uppgvöta hana á einu
augnabliki. Rannsóknir á frum-
kvöðlum sýna að því meira sem
þeir leggja í frumkvöðlafyrirtækið,
því meira vex ástríðan þegar þeir
þróa fyrirtækið í hverri viku.
Ástríðan þróaðist þegar þeir öðl-
uðust meiri leikni. Þess vegna þarf
maður að vera duglegur að prófa
nýja hluti þegar maður finnur að
maður hafi ekki ástríðu í lífinu.
Ástríðan kemur því sem afleiðing
af því að þú prófaðir eitthvað eða
sýndir dugnað og þrautseigju í að
takast á við það. Ástríða leiðir ekki
alltaf til erfiðis og hæfni, heldur
kemur hún stundum sem afleiðing
af því. Með því að fjárfesta í lær-
dómi þá getum við þróað í okkur
ástríðuna og byggt upp þá hæfni
sem þarf til þess að vinna og leiða
lífið sem okkur finnst þess virði að
lifa. Það er nefnilega ansi léleg
uppskrift að gefa sér fyrirfram
hvort manni muni líka vel við eitt-
hvað áður en maður hefur prufað
það.
Með gróskuhugarfari, þraut-
seigju og ástríðu að leiðarljósi eyk-
ur þú stórlega líkurnar á að þú
verðir sá einstaklingur sem þú vilt
verða, eigir lífið sem þú vilt lifa og
yfirstígir hvað sem er til þess að
láta það verða að veruleika. Kýldu
á það!
Þrjú lykilatriði árangurs
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is
Bergsveinn Ólafsson
Ljósmynd/@UWCL
Árangur
Hugarfar
grósku
– undirliggjandi
Ástríða
– stefna
Þr
au
ts
ei
gja
–
st
ær
ð
og
st
yr
ku
r
Sara Björk Gunnarsdóttir
hefur með þrautseigju og elju
komist í fremstu röð í knatt-
spyrnunni. Hér hampar hún
bikarnum í meistaradeild Evrópu.
Hermundur er prófessor við Norska
tækni- og vísindaháskólann í Þránd-
heimi og Menntun og hugarfar rann-
sóknarsetur við Háskóla Íslands.
Bergsveinn er doktorsnemi í sálfræði,
fyrirlesari og höfundur bókarinnar
Tíu skref í átt að innihaldsríku lífi.