Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '* -�-"% ,�rKu!, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvaliBENIDORM 29. JÚLÍ - 5. ÁGÚST - VIKA FLUG & GISTING Á APARTHOTEL VERÐ FRÁ: 88.500 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR INNIFALIÐ Í VERÐI FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR FLUG OG HANDFARANGUR FLUG VERÐ FRÁ: 57.400 KR. * WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS Jæja. Eru ekki allir búnir að fá nóg af þessari viku? Fréttirnar hafa ekki beinlínis verið upplífgandi. Fyrst er óskabarn þjóðarinnar handtekið í Bretlandi og svo blossar Covid upp aftur, sú óskammfeilna veira. Arg! Og ekki nóg með það, þá liggur annaðhvort þéttur úði eða gosmóða yfir höfuðborginni, á meðan fólk í öðrum landshlutum þarf að kæla sig niður sök- um hitabylgju. Gott að einhver sér til sólar, ég segi ekki annað. Ég ætla ekki að þykjast vita hvað er til ráðs við auknum smitum, enda eng- inn kóviti, nema kannski örlítill. Stundum. Eins og við flest. En í þetta sinn er ég á báðum áttum hvað sé það besta í stöðunni. Eina sem ég veit er að ég bara nenni þessi ekki lengur og er ekki ein um það! Satt að segja eru þríeykið og rík- isstjórnin ekkert öfundsverð þessa dagana í ákvörðunartökum og ekki líklegt að vinsældir þessa fólks auk- ist. En þetta er engin vinsælda- keppni. Fólk sem vill vera vinsælt á að halda sig frá pólitík. Við þurfum á uppörvun að halda. Og þá er ég ekki að tala um nýjasta nýtt; örvunarskammtinn sem tugir þúsunda þurfa að fá í ágúst. Ég hafði aldrei heyrt þetta orð áður og sló því upp og viti menn, þetta orð er til! Hins vegar finnst ekki orðið gosmóða, orð sem er nú á allra vörum. En fínasta orð. Ég legg til að við fáum öll uppörvunarskammt í haust svo við förum ekki yfir um. Þórólfur minn, við þurfum að fara á mannamót, tónleika, bíó og leik- hús. Hlæja í matarboðum, knúsast og kyssast. Við lofum svo að þvo okkur, spritta og ekki fara í sleik við ókunnuga. Gosmóða og upp- örvunarskammtur Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Þórólfur minn, við þurfum að fara á mannamót, tónleika, bíó og leikhús. Hlæja í mat- arboðum, knúsast og kyssast. Við lofum svo að þvo okkur, spritta og ekki fara í sleik við ókunnuga. Sigrún Hildur Guðmundsdóttir Já, ég var að koma að norðan, úr sól og 29 stiga hita. Geggjað. SPURNING DAGSINS Hefurðu séð til sólar í sumar? Trausti Gylfason Heldur betur. Í Lónsöræfum, á Austurlandi og á Siglufirði. Ég er þokkalega brúnn. Guðleif Margrét Þórðardóttir Nei, ég hef bara verið á Suðurland- inu. Valtýr Trausti Harðarsson Já, nokkrum sinnum í Kópavogi. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. M o rg un bl að ið /Á rn iS æ be rg ERNA VALA ARNARDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Árátta fyrir Schumann Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Píanóleikarinn Erna Vala Arnardóttir mun leika verk eftir Schumann í Hörpuhorni sunnudaginn 25. júlí klukkan 16. Miðar fást á tix.is. Hvað er á döfinni? Ég er að fara að spila verk eftir Robert Schumann í Hörpuhorni, Kreisleriana, sem er fantasía í átta köflum fyrir píanó. Ég hef lengi verið hugfangin af þessu verki og hlakka mikið til að spila það. Hvers vegna ertu hugfangin af Schumann? Ég spilaði Schumann-konsert með Sinfóníuhljómsveit Íslands ár- ið 2015 á Ungum einleikurum í Hörpu. Það var ekki aftur snúið og ég fékk óstöðvandi áhuga á Schumann-hjónunum, Roberti og Clöru. Ég hef kynnt mér líf þeirra og tónlist í þaula, spilað mikið eftir þau og skrifaði bakkalárritgerðina mína um tónlist þeirra. Ég stofnaði einnig Íslenska Schumannfélagið í fyrra. Hvaða félag er það? Það hefur það að markmiði að stuðla að heilbrigðu tónlistarlífi og kynna verk og störf Schumann-hjónanna. Þau gerðu svo margt flott og studdu annað tónlistarfólk í kringum sig. Schumann- félagið vill feta í þau fótspor, að gera góða hluti í samfélaginu. Ertu eins manns her? Ég er formaður félagsins og svolítið ein, en það er gott fólk í kringum mig. Félagar hrúgast inn, allir geta fengið inngöngu. Schumannfélagið stendur nú fyrir tónlistarhátíðinni Seiglu sem verður í byrjun ágúst í Hörpu og Sigurjónssafni. Svo er ég að fara að halda tónleika með tríóinu mínu í lok ágúst, magnað verk eftir Brahms. Ég er líka hluti af Beethoven251-tónleikaröð sem frestaðist vegna Covid en verður í haust. Er bara brjálað að gera? Já, svo sannarlega. Ég hef verið í doktorsnámi í Kaliforníu en tók mér námshlé vegna Covid. En ég hef nóg að gera hér heima í tónlistinni og að skipuleggja viðburði.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.