Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 15
25.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 hafa komið inn sögur um konur sem voru í veikri stöðu sem áttu börn sem gefin voru til ættleiðingar. Það kem- ur þarna fólk sem beinlínis velur sér börn og er jafnvel með skilarétt á þeim. Fólk valdi sér barn og gat svo skilað því ef það var ekki sátt og fengið annað. Þetta var eins og versl- unargluggi; þarna stóðu mæðurnar en einnig fólk sem var að velja sér barn. Siðferðið í því ferli er mjög vafasamt og mæðurnar oft settar í óbærilega stöðu og látnar skrifa und- ir pappíra, jafnvel fárveikar. Það er þetta sem við viljum fá upp á yfir- borðið. Fá að vita hvað raunverulega gerðist. Þetta er hluti af sögunni og ég vil fá svar við spurningunni: „Hvernig hefur þessum börnum reitt af?“ Hvaða áhrif hefur dvölin haft á líf þeirra? Ég veit um dæmi um fólk sem hefur verið öryrkjar allt sitt líf, allt frá útskrift af vöggustofu. Við viljum líka fá uppreist æru fyrir þess- ar fordæmdu mæður,“ segir Viðar og segir þá alls ekki vera að leita að bót- um í formi peninga. Örlögin ráðin ellefu ára Eftir að Viðar losnaði út af vöggu- stofunni man hann ekki eftir öðru en yndislegri æsku, en hann ólst upp á víxl í Njarðvík og Reykjavík en fjöl- skyldan flutti síðan til Akureyrar þegar tvíburarnir voru þrettán ára. „Þá var mamma aftur komin heim, eftir þessa örlagaríku suðurför að freista gæfunnar,“ segir Viðar, en þar tók móðir hans saman við mann sem hún síðan giftist. „Það var góður maður og mér fannst þá ég verða loks frjáls, því ég hafði borið of þungar byrðar fram að því sem eini karlmaðurinn á heimil- inu, barnið,“ segir Viðar. „Ég á ekkert annað en góðar minningar úr æsku. Kannski er það af því að mannshugurinn er fljótur að gleyma því slæma, en heldur til haga því góða. Ég varð fljótt mjög sjálf- stæður og fór mínar eigin leiðir. Ég hafði ákveðnar hugmyndir um hvern- ig lífið og tilveran ætti að vera,“ segir hann og segir leiklistina hafa bankað upp á snemma á lífsleiðinni. „Þegar ég var ellefu ára var verið að opna Stapann. Á þessum tíma er Njarðvík bara moldarvegir og í minningunni var allaf rigning, en þarna var verið að opna þetta glæsi- lega félagsheimili. Þangað komu Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykja- víkur með gestasýningar í tilefni opn- unarinnar. Annað verkið var Æv- intýri á gönguför og ég nauða í móður minni að fá að kaupa miða, og ætlaði bara einn. Ég trítla í miðasöl- una til að kaupa miða en þá er upp- selt. Ég spyr þá hvort það sé ekki einhver önnur sýning. Konan segir mér að það væri sýning með tveimur einþáttungum og ég slæ til og kaupi miða á hana. Þetta voru framúr- stefnuverk frá Absúrd leikhúsinu, Jóðlíf eftir Odd Björnsson og Síðasta segulband Krapps eftir Samuel Beckett. Mér fannst þetta svo skemmtilegt. Ég heillaðist! Þarna urðu örlög mín ráðin,“ segir Viðar og það var ekki aftur snúið. Nokkrum árum síðar, þegar Viðar var fluttur norður, kynnist hann leik- húsinu fyrir alvöru, en þar var verið að undirbúa stofnun atvinnuleikhúss. „Þarna voru settar upp fimm sex sýningar á vetri og þarna byrja ég sem unglingur að leika. Ég byrjaði í hlutverki púka í Gullna hliðinu og átti að segja eitt orð. Aðalleikkonan sem lék kerlinguna kom til mín og sagði: „Þú segir þetta ekki alveg rétt.“ Viðar skellihlær. „Mér var trúað fyrir einu orði og ég kom því ekki réttu út úr mér. Púk- inn átti að kalla: „Guðníðingur“, en ég sagði Guðsníðingur. Ég klúðraði þannig öllum textanum mínum.“ Ákall um leiklistaskóla Hvernig var að vera ungur samkyn- hneigður maður á þessum tímum? „Maður leitar inn í samfélag sem samþykkir mann og viðurkennir mann, án þess að ég hafi endilega vit- að það sjálfur þá þegar ég byrja í leikhúsinu. Það var einhver eðlis- ávísun sem leiddi mig þangað og sem betur fer. Í leikhúsinu var opið og frjálst samfélag og fordómalítið. Þar var fullt af sköpun og jákvæðum straumum og þar fékk maður að vera maður sjálfur og þykjast vera alls konar fólk,“ segir Viðar. „Ég var ekki nema sautján ára þegar ég flyt að heiman og fer til Reykjavíkur og fer í starfsnám í leik- myndahönnun og á þeim tíma ákveðum ég og nokkrir unglingar að setja upp leiksýningu en það var nýbúið að loka leiklistarskólunum, bæði hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu. Við settum upp sýn- inguna Sandkassann með ungum leikstjóra sem þá var nýkominn heim frá Svíþjóð, en hann hét Stefán Bald- ursson. Sýningin var hugsuð til að vekja athygli á að það vantaði leiklist- arskóla; þetta var ákall um alvöru- leiklistarskóla. Við vorum óþolinmóð; við höfðum ekki allt lífið fram undan til að fara í skóla, og ákváðum sjálf að stofna skóla. Við bjuggum til módel fyrir ríkið með því að safna upplýs- ingum frá leiklistarskólum í Evrópu og úr varð að við stofnuðum leiklist- arskólann SÁL, Samtök áhugafólks um leiklistarnám. Markmiðið var sett á fjögurra ára skóla sem kenndi allar greinar leiklistar. Skólinn var opn- aður og það voru engin inntökupróf, en skólinn var stífur og strangur. Við vildum ekki útskrifa fólk fyrir leik- húsin eins og þau voru, heldur eins og þau myndu verða. Við ætluðum að búa til framtíðina og við vildum ekki festa okkur við þessar tvær stofn- anir,“ segir Viðar og bætir við margt hafi gerst í kjölfarið. „Stóru leikhúsin urðu óróleg að einhverjir krakkar ætluðu að ákveða hvernig leikhús væri. Valdhafar stóru leikhúsanna vildu hafa aðeins meiri völd og stofnuðu þá sinn skóla,“ segir Viðar, en leikmyndahönnunar- námið varð aldrei að námsbraut svo hann lærði til leikara. Viðar lærði í þrjú ár við SÁL en kláraði síðasta ár- ið hjá Leiklistarskóla Íslands „Það hefur alltaf verið í mér löng- un til að ráða ferðinni sjálfur. Ég hef alltaf leitað í þann farveg,“ segir Við- ar, en árið 1981 stofnaði hann sjálf- stæða leikhópinn EGG-leikhúsið. Viðar hefur starfað sem leikstjóri og leikari jöfnum höndum allt frá út- skrift og hefur leikstýrt yfir fimmtíu verkum á sviði, auk útvarps- og sjón- varpsverka. Hann hefur einnig leikið í hartnær sjötíu leikverkum á sviði, í sjónvarpi, útvarpi og kvikmyndum. Einnig sinnti hann starfi leikhús- stjóra Leikfélags Akureyrar frá 1993 til 1996. „Ég er aldrei lengi á hverjum stað. Ég fór í skólann til verða leikmynda- hönnuður, útskrifast sem leikari og enda sem leikstjóri, leikhússtjóri og svo útvarpsleikhússtjóri, sem er ansi langt frá leikmyndahöfundinum!“ segir hann hlæjandi, enda þarf enga leikmynd í útvarpi. Æfingabúðir eldri borgara Enn á ný hefur Viðar tekið stefnuna á nýtt hlutverk, en hann skipar þriðja sætið á framboðslista Sam- fylkingarinnar í Reykjavík suður. „Ég varð loksins 67 ára um dag- inn, löggilt gamalmenni eins og það var kallað. Ég hef verið í æfingabúð- um sem eldri borgari í nokkur ár en ég hef verið að skoða mál eldra fólks; líka til að undirbúa mig fyrir þetta tímabil í lífinu,“ segir Viðar en hann hefur starfað með Gráa hernum og verið í stjórn Félags eldri borgara. Síðustu tvö árin hefur Viðar verið í hálfu starfi hjá Landssambandi eldri borgara. „Það eru fáir sem hafa æft sig jafn vel,“ segir Viðar og hlær. „Mér fannst þetta vera andar- takið; að taka þetta skref að fara í framboð, sem er eðlilegt framhald því hlutverk mitt er ekki bara á sviði. Við tökum að okkur ýmis hlutverk og mig langar til að hafa áhrif. Mig langar að fólk þurfi ekki að vera í skrúfstykki örbirgðar frá fæðingu til æviloka. Það brennur á mér. Málefni eldri borgara brenna líka á mér, fólks sem komið er af léttasta skeiði. Við bjuggum til eftirlaunakerfi núna síðast sem passar ekki við raunveru- leika þessa fólks. Þessi lög passa kannski eftir fimmtán, tuttugu ár þegar lífeyriseign fólks er meiri en hún er í dag. Fólk er í dag að borga meira í lífeyrissjóði en fólkið sem er nú á eftirlaunum eða að fara á eftir- laun og voru ekki með slíka lífeyris- sjóði. Svo horfi ég á fólk, eins og margar konur, sem hafa unnið stór- an hluta ævinnar inni á heimilum og því ekki borgað í lífeyrisjóð. Svo voru auk þess margir sjóðir veikburða og sumir gufuðu upp eða fóru á hausinn. Þannig er fullt af eldra fólki í dag sem býr við mjög kröpp kjör,“ segir Viðar og bætir við að annar hópur samfélagsins sem stendur höllum fæti á efri árum séu listamenn. „Megnið af okkar listalífi hefur verið borið uppi af listamönnum sem hafa fengið lítil sem engin laun fyrir vinnu sína, eins og frumkvöðlastarf sem þróar listina áfram. Örugglega í helmingi leiksýninga, sem til að mynda ég sjálfur vann við í gamla daga, vann ég launalaust. Þá var maður heldur ekki mikið að borga í lífeyrissjóði, en var samt hluti af hópi fólks sem skapaði sjálfsmynd þjóðar- innar. Það þarf alltaf frumkvöðla og fólk sem er á jaðrinum til þess að stefnur breytist,“ segir Viðar. „Við eigum fullt af afbragðs- listafólki sem mun búa við örbirgð.“ Kjóstu með sjálfum þér! Hvað er til ráðs? „Við þurfum að hækka grunnlíf- eyrinn. Það er sjálfsagt að hafa tekjutengingar en þær nái þá ekki til láglaunafólks. Fólk á ekki að vera neytt til að lifa undir opinberu fram- færsluviðmiði. En þannig virka skerðingarnar í dag. Þetta er kyn- slóðin sem ber harm sinn í hljóði og vill oft ekki opinbera bága stöðu sína. Ég hugsa oft um hvers vegna fólk í þessari stöðu fer svo og kýs stjórn- málaflokka sem eru ekkert að hugsa um hag þeirra; flokka sem eru bein- línis að viðhalda stéttaskiptingunni. En rétt fyrir kosningar verða allir mjög velferðarsinnaðar, eins og úlfar í sauðargæru, og allt í einu sest þetta fátæka fólk niður í kaffi á kosninga- skrifstofum með fína fólkinu og er þá orðinn hluti af því, án þess að verða það nokkurn tímann. Það er svo sorg- legt þegar maður sér það. Ég segi við fólk: „Kjóstu með sjálfum þér! Vertu ekki að hjálpa stéttaskiptingunni. Spyrðu sjálfan þig hver sé líklegastur til að vinna að þínum málum,“ segir Viðar. „Réttlætistilfinning hefur ein- kennt líf mitt. Ég hef séð svo marga sem eru á hriplekum bátum í lífinu og það þarf ekki að vera þannig. Ég býð mig fram og er í þriðja sæti, sem kall- ast baráttusæti og finnst það gott; baráttumaður í baráttusæti. Ég vildi komast á þann stað á listanum að ég væri með rödd; að ég gæti sett mitt fingrafar á stefnu flokksins um þau mál sem eru mér hugleikin. Það skiptir mig miklu máli að fara inn í innsta hring. Mínum málefnum var mjög vel tekið og fólk sammála að hafa þau á stefnuskrá,“ segir Viðar sem byrjar þá nýjan starfsferil ef hann kemst inn á þing, og það jafnvel þótt hann sé kominn langt á sjötugs- aldur. „Eins og ég segi; ég leik mörg hlut- verk í lífinu. Mér finnst ég vera kom- inn aftur til upprunans. Barnið sem fæddist í þessa stöðu, sem tókst að brjótast út úr henni, er nú komið í ræðupúltið að krefjast réttlætis. Ekki bara fyrir sig, heldur allt þetta fólk. Það er ekki náttúrulögmál að ákveðinn þjóðfélagshópur verði und- ir,“ segir Viðar. „Ég er svo bjartsýnn og finnst að tímarnir hafi breyst svo fallega. Sam- félagið sem ég ólst upp í var grimmt, kalt og fordómafullt. Fólkið sem hef- ur þróað samfélagið í það sem það er í dag, er fólkið sem er á eftirlaunum. Það á rétt á því að lifa síðustu árin sín í reisn. Þetta er fólkið sem kom okk- ur inn í þennan nútíma sem er heillandi, jákvæður og opinn. Ég öf- unda ungt fólk í dag að fá að eflast og þroskast í svona miklu betra sam- félagi.“ Langar að verða eldri Við förum að slá botninn í samtalið en blaðamaður spyr að lokum hvernig Viðar sjái fyrir sér framtíðina. „Ég hlakka til að breytast. Ég er haldinn þroskadýrkun, sem er and- stæðan við æskudýrkun, og ég er að reyna að innleiða hana. Ég segi að það sé eftirsóknarvert að eldast og þroskast, að vera eitthvað annað en maður var áður. Ég er búinn að vera yngri, nú langar mig að verða eldri. Ég er að fara inn á nýtt æviskeið. Líf- ið er svo ófyrirsjáanlegt og maður verður að vera opinn fyrir nýjum áskorunum,“ segir Viðar. „Þegar ég var ungur stóð ég eitt sinn fyrir framan spegil og horfði á þetta andlit sem var svo gjörsamlega ómarkað lífsreynslu, eins og óskrifað blað. Mér fannst það svo ömurlegt; mig langaði svo að bera þess merki að ég hefði lifað. Ég reyndi að krumpa á mér andlitið því mig lang- aði í lífsreynslu en vissi ekki að hún var áunnin. Hrukkur eru í raun heið- ursmerki lífsins og maður þarf að vinna fyrir hverri og einni þeirra. Þarna var ég ekki búinn að því en mér lá svo á.“ Nú eru komnar nokkrar hrukkur. Ertu þá ánægður með þær? „Já, ég er búinn að hafa fyrir þeim. Þetta hefur kostað mikla vinnu að koma mér upp þessari lífsreynslu og bera þess merki að ég hafi lifað. Ég játa, ég hef lifað.“Morgunblaðið/Ásdís ’ Mér finnst ég vera kominn aftur til upprun- ans. Barnið sem fæddist í þessa stöðu, sem tókst að brjótast út úr henni, er nú komið í ræðu- púltið að krefjast réttlætis. Ekki bara fyrir sig, heldur allt þetta fólk. Það er ekki náttúrulögmál að ákveðinn þjóðfélagshópur verði undir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.