Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Page 17
til þess að um 90 þúsundir borgarbúar væru lagstir
ósjálfbjarga nú! Og réttum mánuði eftir að veikinnar
varð vart voru hinir látnu jarðsettir í fjöldagröf, en þá
var talið að veikin væri í rénun. Það var rætt um hjarð-
ónæmi í upphafsumræðu um kórónuveiruna. Fæst
höfðum við heyrt slíkt nefnt áður. Það var hin hliðin á
gölluðum peningi. Framangreind lýsing á spánsku
veikinni sýnir að það var ekki mannanna að taka
meginákvörðun í þeim efnum. Á einum mánuði höfðu
hundruð látist og tveir af hverjum þremur íbúum höf-
uðstaðarins smitaðir og rúmfastir. Veikin sjálf valdi
hjarðónæmisleiðina í hluta landsins. En eins og lesa
má í áhugaverðum greinum í Læknablaðinu, t.d. eftir
Magnús Gottfreðsson lækni, og nýlegum yfirlitum
Hagstofu, þá tókst að loka og einangra stóra hluta
landsins tiltölulega hratt, þótt yfirvöldin hafi ekki öll
haft trú á því í upphafi og reyndar treyst á að spánska
veikin væri lítið annað en hefðbundin inflúensa, eins og
veikin um sumarið, sem stundum var kölluð fyrsta
bylgja hér, hefði gefið til kynna.
Afbrigðileg tilvera
Eins og þá virtist tilhneiging til að gera minna úr en
efni reyndust standa til, þá sýnist allt að því kækur að
grípa hvert fréttastrá um nýtt „afbrigði“ eins og fegins
hendi. Deltaafbrigðið, indverska afbrigðið, breska af-
brigðið, Suður-Afríku-afbrigðið, brasilíska afbrigðið og
endalaust má áfram telja afbrigðin sem furðu margir
komast í uppnám yfir.
Og í fyrstu fréttum af nýjum afbrigðum er oftast
fyrirferðarmest að bóluefnin, sem áttu að verja okkur
þessa bólusettu svona 92-96%, (hvað svo sem það þýð-
ir), séu nú fremur illa sett, eftir að einhver „vísinda-
maður“ leitaði og fann nýtt afbrigði.
Í fyrstu fréttum af nýju afbrigði úr nýrri sýslu, hér-
aði, landi eða dýragarði eru bóluefnin okkar lækkuð
hratt niður í 50%-60% vörn, og í seinni fréttatímanum
eru þeir farnir að velta fyrir sér opinberlega að réttast
væri að sprauta suma meira í tilefni dagsins. Og þá er
ekki orðið langt í nýtt minnisblað, sem aldrei veit á
gott.
Í einni frétt var á dögunum skotið inn í romsuna að
nú væru afbrigðin við veiruna komin í rúmlega 2.000!
Sennilega væri þá orðin þurrð í héruðum og löndum og
kannski mætti kenna hvert nýtt afbrigði við ár sem lið-
ið væri frá Kristburði og væri þó enn pláss fyrir ein 20
afbrigði. Og ef að þá flæddi upp úr, munu flestir vera
þannig þenkjandi, að úr því eigi „sérfræðingar“ og
hugsanlega þeir sem ekki eru sérfræðingar, en nógu
afbrigðilegir til að láta sér nægja að ræða málið ein-
göngu í sínum hóp, en grípa ekki hvert afbrigði sem
þeir frétta af, eins og frímerkjasafnarar, sem heyra um
vitlaust yfirstimplað frímerki, sem enginn nema þeir
og þrír aðrir, gera neitt með.
Það er augljóst okkur, sem minna en ekkert vitum,
að engin nein tök eru á eða gagn af að greina öll þessi
afbrigðilegu afbrigði í sundur, nema til að fella nem-
anda á prófi. Eða gera um það enn eina frétt sem skap-
ar eingöngu ys og þys út af engu og viðbótarskammt af
hræðsluáróðri sem nóg er komið af.
Ný stjarna?
Erlendis hamast stjórnlyndir menn við að hafa í hót-
unum við fólk sem ekki vill bólusetningu og láta eins og
óhjákvæmilegt sé að setja þá sem þráast við út af
sakramenti ríkisins og breyta þeim og merkja í fjórða-
flokks borgara. Ekki hefur enn verið tilkynnt hvort
þeir verði merktir stjörnu, svo megi vara sig á þeim,
eins og gert var við þá sem misstu tilverurétt sinn forð-
um. Helst er rætt um sérstakan passa sem hleypi bólu-
settum hingað og þangað sem útskúfaðir geti aðeins
látið sig dreyma um. En í sömu andrá er því haldið að
fólki að hin mikla, langþráða bólusetning sé hálfgert
„fake“ eins og fréttir CNN, því um leið og nýtt afbrigði
stingur upp kolli, er deilt í virkni hinnar forðum dýr-
mætu bólusetningar. Hún hleypur strax, eins og
skyrta úr gerviefni um 40%-50% í vörn „að sögn vís-
indamanna“, sem eru þó bersýnilega fyrir löngu búnir
að hlaupa meira en það sem vísindamenn, fyrst þeir
missa fótanna við minnsta goluþyt.
Lappað upp á app
Eitt það furðulegasta í varnarkerfinu uppgötvaðist
þegar að í ljós kom að „app“ hefur nú orðið lög-
regluvald og skikkar menn í einangrun í hundraðavís,
ef að rakningarapp getur sannað að þeir hafi rekist um
sömu slóðir og smitaðir síðustu dagana. Og þessir
hundrað verða fljótlega 10 þúsund þegar öppin leggja
saman. Boris forsætisráðherra fékk fyrirmæli í appi
um að hætta að stjórna Bretlandi í 10 daga þar sem
rakningarapp sýndi hann í námunda við ráðherra með
smit! Nú er það svo með Boris að hann fékk kórónu-
vírus þroskaðan í kóvid og var á sjúkrahúsi í þrjár vik-
ur samfellt og rétt slapp við að minningargreinarnar
sem stórblöðin voru byrjuð að skrifa næðu í prentun.
Hann var því eins uppfullur af mótstöðu og verða
kann. En til öryggis og í auglýsingaskyni þá lét hann
sprauta sig með bóluefni að minnsta kosti tvisvar og
hefur því sjálfsagt verið komin með ein 130% í vörn á
meðan við hin erum aðeins með 92%.
Munurinn er sá, að við hin erum ekki fífl og göngum
ekki með svona öpp á okkur, hvað svo sem það nú er.
Þegar Boris var búinn að vera í einangrun í nokkra
daga með sínum 50 starfsmönnum og 30 lífvörðum í
Chequers, sveitasetri forsætisráðherra, þá rann loks
upp fyrir honum að þetta var allt eins og hver önnur
vitleysa.
Hann þorði þó ekki að gefa út þá tilskipun að for-
sætisráðherra Breta ætti ekki lengur að hlusta á þetta
app sem var orðið næst á undan honum í valdaskal-
anum og því næst Elísabetu 2. sem hefur aldrei heyrt
app nefnt og hefur enginn þorað að nefna það við hana
þessi 70 ár sem hún hefur mætt í vinnuna. En appið
getur stoppað allt lestarkerfið því að lestarstjórarnir
hittast allir á sömu pöbbunum eftir vinnu og því eru
þeir settir þúsundum saman í einangrun. Sama gilti
um lögreglumenn og slökkviliðsmenn, strompahreins-
ara, rottubana og fjölda annarra sem að allir sáu í
hendi sér að væru algjörlega ómissandi. Hins vegar
var ekki hægt að færa fyrir því sterk rök að appið ætti
ekki að skipta sér af forsætisráðherra sem væri að
auki mest bólusetti maður Bretlands og setja hann í
einangrun þegar appinu hentaði. Því hefur löngum
verið haldið fram að það bjargi vitleysunni að þær séu
ekki allar eins. Það er ekki víst að það bjargi mann-
inum sem fann upp app-einræðisherrann mikla.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
25.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17