Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021
LÍFSSTÍLL
„Við sérhæfum okkur í hamborg-
urum og handverksbjór,“ segir
Bárður Árni Wesley Stein-
grímsson, vaktstjóri hjá Smiðj-
unni brugghúsi, þegar blaðamað-
ur leit við í upphaf vikunnar.
„Bjórinn er búinn til í Vík í
Mýrdal, en hann hefur verið seld-
ur í Vínbúðinni í nokkurn tíma
en fyrirtækið var stofnað 2017.
Hann er mjög góður, en það eru
hér átta tegundir hér á krana,“
segir Bárður og segir þau bjóða
upp á mat sem fer sérlega vel
með bjórnum.
„Auk hamborgaranna erum
við með rif, geggjaðar franskar,
„pulled-pork“-samlokur, kjúk-
lingavængi og blómkáls-
„vængi“,“ segir Bárður og segir
að fólk þurfi að vera óhrætt við
að puttarnir verði skítugir.
„Við opnuðum hér 9. júlí og
það hefur gengið gríðarlega vel
og margt fólk sem hefur flætt
hér í gegn,“ segir hann og nefnir
að eldhúsið sé opið frá hádegi til
tíu á kvöldin, en barinn mun
lengur.
„Hingað kemur fjölskyldufólk
og um helgar meira yngra fólkið.
Nú er mánudagur og það er al-
veg pakkað! Það hefur ekki verið
dauð stund síðan við opnuðum.“
Bárður hefur haft í nógu að snúast frá opnun og er ánægður með viðtökurnar.
Bjór og borgari
Borgari og
franskar
svíkur engan.
Á neðri hæð Mjólkurbúsins má
finna Ísey Skyr Bar og afar áhuga-
verða sýningu, Skyrland, sem á ef-
laust eftir að vekja athygli, jafnt á
meðal ferðamanna sem Íslend-
inga.
„Við erum hér með sýningu um
sögu skyrs sem er mjög skemmti-
leg. Þetta er öðruvísi nálgun á
þessa sögu,“ segir Elísabet Ósk
Guðlaugsdóttir, rekstrarstjóri
Skyrlands og Ísey Skyr Bars.
„Við erum að leggja lokahönd á
sýninguna sem opnar innan
skamms. Hér er sögð saga skyrs
og því mikil tenging við Mjólk-
urbúið; húsið sem við erum í. Við
stílum inn á bæði Íslendinga og út-
lendinga og munum einnig vera
með smakk á skyri. Hér verður
hægt að taka á mótum hópum en
við höfum fengið inn prufuhópa og
erum að þróa smakkið,“ segir El-
ísabet og segir söluna á skyrbarn-
um hafa gengið afar vel.
„Það er mjög gaman hér og líf
og fjör í húsinu. Alltaf brjálað að
gera,“ segir Elísabet og leiðir
blaðamann í gegnum sýninguna
sem er afar skemmtileg.
„Fyrirtækið Verkstæðið smíð-
aði sýninguna eftir hönnun Snorra
Hilmarssonar leikmyndahönn-
uðar,“ segir Elísabet sem stingur
höfði inn í sérhannaðan glerkassa
þar sem má sjá grænt gras og blá-
an himin. Hún sér ekki út, en
blaðamaður sér inn.
„Hér getur maður upplifað ís-
lenskt sumar og hægt er að ýta á
takka og finna lykt af sumrinu!
Þetta er alveg geggjað.“
Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir stingur höfði inn í íslenskt sumar.
Sagan sögð í
Skyrlandi
Skyrréttir slá í gegn
hjá Ísey skyrbar.
„Við bjóðum upp á lítil taco sem eru kannski meira í
amerískri útgáfu en mexíkóskri,“ segir Árni Evert
Leósson, eigandi El Gordito.
„Það hefur verið svo mikið að gera að við höfum
ekki náð að bjóða enn upp á allan matseðilinn og höf-
um því verið að keyra á rækju-, kjúklinga- og rifnum
grísa-tacos. Við opnuðum 10. júlí og það hefur verið
geðveiki síðan. Við höfum þrisvar fjórum sinnum
þurft að loka til að ná að vinna hráefnið. Við klár-
uðum allt hráefnið um helgina fyrir báða staðina, en
ég rek líka pastastaðinn Pasta Romano hér við hliðina
á, en við Andri Björn Jónsson erum saman í rekstr-
inum. Hann er kokkurinn,“ segir Árni og segist bjart-
sýnn á að það muni ganga vel í haust og vetur.
„Miðað við hvað maður heyrir eru túristar hér 40%
af kúnnum, en við erum ekki að skynja það. Hér eru
aðallega Íslendingar; mikið fjölskyldufólk. Veðrið
hjálpar til og margir á leið út úr bænum, enda oft röð
yfir brúna,“ segir hann og sýnir svo blaðamanni
pastastaðinn.
„Við búum til okkar eigið pasta frá grunni og erum
svo með mismunandi sósur. Við reynum að fara ná-
lægt ítölsku línunni með meira af tómötum og par-
mesan og minna af rjóma. En rjómapastað hefur ver-
ið vinsælast,“ segir hann og brosir.
„Af tacos hefur rifni grísinn verið vinsælastur.“ Andri Björn Jónsson og Árni Evert Leósson kvarta ekki yfir velgengninni.
Rjómapasta og rifinn grís
Tacos frá El Gordito kemur í þremur útgáfum.