Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021 LÍFSSTÍLL GÓÐAR FRÉTTIR FYRIR MELTINGUNA „Við bjóðum hér upp á taílenskan mat og sérstakan opnunarmatseð- il til að byrja með,“ segir Andri Már Jónsson, eigandi Menam, en sá staður var áður til húsa á Eyr- arvegi 8 á Selfossi. „Staðurinn var áður í eigu tengdamóður minnar og stofn- aður 1997 og var rekinn til 2018,“ segir hann. Ljóst er að Selfyssingar þekkja því staðinn vel og fagna að vonum opnuninni, en staðurinn hefur verið lokaður í þrjú ár. Krist- ín Árnadóttir, eða Stína í Menam, eins og margir þekkja hana, stóð vaktina í tuttugu ár en ákvað að hvíla sig á veitingarekstri. „Eftir fjölmargar áskoranir ákvað ég að opna staðinn aftur, byggðan á sama grunni. Ég er mat- reiðslumeistari og lærði á Hótel Holti og kom inn á staðinn árið 2002 og hef starfað hjá Menam meira og minna síðan,“ segir Andri og segist yfir sig glaður með móttökurnar. „Þetta hefur farið fram úr öllum væntingum og erum við mjög þakklát fyrir viðtökurnar sem við höfum fengið. Það hefur komið fyrir að allt hafi hreinlega selst upp, en fólk hefur almennt sýnt því mikinn skilning. Við vinnum mest allt frá grunni og því getur það gerst að hráefni klárist, en eins og einn tryggur viðskiptavinur sagði, það væri ekkert mál, hann væri nú búinn að bíða eftir að fá Menam- mat í þrjú ár,“ segir Andri bros- andi. „Menam eins og það var áður var með fjölmarga rétti á mat- seðli, þannig að við höfum úr miklu úrvali að velja. Við stefnum á að vera með um tíu vinsælustu réttina í boði ásamt því að koma með aðra rétti inn tímabundið, þá einnig tengt árstíðabundnu hráefni úr nágrenninu.“ Andri Már Jónsson hefur ekki undan að búa til taílenskan mat ofan í gesti. Byggt á gömlum grunni „Við bjóðum upp á steik og fisk og mannamat,“ segir Árni Berg- þór Bjarnason, eigandi veitinga- staðarins Samúelsson matbars, og á við að þarna sé enginn skyndibiti, heldur matur í fínni kantinum. „Þetta er glænýr staður og er nefndur í höfuðið á Guðjóni Sam- úelssyni, húsameistara ríkisins sem teiknaði Mjólkurbúið,“ segir Árni. „Kálfa-ribeye og steikarlokan eru klárlega okkar aðalsréttir, en spjótin eru líka vinsæl. Skelfisk- spjótið virðist vera langvinsæl- ast,“ segir Árni, en hann er mat- reiðslumeistari og vann áður á Grand hóteli. „Það hefur gengið alveg frá- bærlega og farið fram úr björt- ustu vonum. Það er búið að vera mjög gaman en við önnum ekki alltaf eftirspurn,“ segir Árni sem var með lokað þegar blaðamann bar að garði vegna anna um helgina, en var í óða önn að und- irbúa kvöldið. „Það er margt fólk hér núna en þetta er ekkert miðað við um helgina, þá var húsið sprungið! En hér er mikil gleði og ég hef mikla trú á að þetta gangi vel áfram. Þessi miðbæjarkjarni er svo vel skipulagður og svo verður tón- leikahús hér við hliðina á. Það var klikkuð stemning hér fyrir utan um helgina í góða veðrinu. Svo má bæta því við að nú er komin Stella á krana á Selfossi!“ Árni Bergþór Bjarnason býður upp á mat í fínni kantinum og Stellu á krana. Þá var húsið sprungið! Maturinn hans Árna lítur vel út.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.