Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021
FERÐALÖG
F
jórir karlar á sjötugsaldri
ferðast nú um landið á bæði
fæti og báti. Þeir sigla niður
ár á uppblásnum bátum, svoköll-
uðum „packraft“-bátum, sem þeir
síðan brjóta saman og skella ofan í
bakpoka sinn og fara leiðar sinnar
gangandi þegar þeim sýnist.
Mennirnir eru fjórir; David
Plante og Mark Chmeilewicz frá
New York-ríki í Bandaríkjunum,
Tom Randgaardt frá Minnesota í
sama landi og Didier Maclaine
Pont frá Hollandi.
„Ég hef verið með kajakferðir á
norðurslóðum í um 30 ár,“ segir
Plante sem nýlega fór á eftirlaun í
starfi sínu sem dýralæknir. Hann
er reynslumikill kajak-siglari en
hefur nú kolfallið fyrir ferðum á
packraft-bátum.
„Ég byrjaði að sigla á þessum
bátum því maður getur ferðast um
miklu stærra landssvæði en er
hægt á kajak. Maður kemst á staði
sem ekki væri annars hægt að
komast að,“ segir Plante en fyrsta
ferð hans á packraft-bát var um
320 kílómetra ferð í Alaska. Síðasta
ferðin á undan þessari var í Belís
þar sem hann og Didier ásamt
þremur öðrum sigldu í frum-
skógum og hellum landsins.
Algjört frelsi
Að sögn Plante eru bátarnir bæði
léttir, minna en 4 kíló og þola álag
vel. „Það er hægt að sigla í þeim í
5-8 sentimetra háu vatni og eins
stórum og kröftugum flúðum og
finna má í Miklagljúfri.“ Þegar
komið er að vatni eða á eru bátarn-
ir einfaldlega blásnir upp og sam-
anbrotin ár tekin upp úr töskunni.
Lítið mál er svo að taka saman bát-
inn og ganga af stað með hann í
bakpokanum.
„Þetta gerir manni kleift að
kanna svæði sem ekki væri annars
hægt. Í Alaska, til dæmis, vörðum
við tveimur dögum í að fara niður
eina ána, pökkuðum svo öllu saman
og gengum í tvo daga. Svo komum
við að sjó og þá sigldum við 12
kílómetra þar yfir,“ segir Plante.
„Þetta er hrikalega skemmtilegt.
Ég elska þetta. Maður finnur fyrir
algjöru frelsi.“
Plante segir árnar á Íslandi
henta vel til að ferðast á þennan
hátt. „Fólk hefur farið um ár á Ís-
landi á svona bátum áður en eng-
inn þá sem við fórum um daginn,“
segir hann en þá sigldu þeir fé-
lagar niður Norðlingafljót. „Við fór-
um niður bæði flúðir og litla fossa
á leiðinni.“
Þegar blaðamaður ræddi við
Plante höfðu þeir félagar verið hér
í 10 daga og áttu um þrjár vikur
eftir af ferð sinni. Plant segir að
ferðin sé ekki skipulögð í þaula
heldur snúist hún um að kanna
landssvæðið og finna bestu árnar
til að sigla niður.
Eitthvað sem
allir geta lært
Plante er 65 ára og segir sigling-
arnar halda honum í formi. „Ég hef
róið svo til allt mitt líf.“ Þá er hóp-
urinn allur þaulreyndur. „Ég held
að allir okkar hafi farið niður að
minnsta kosti 20 ár á norður-
slóðum, í nyrsta hluta Kanada og í
Alaska,“ segir Plante.
Mikla einbeitingu þurfi til að róa
þær ár sem þeir félagar hafa farið
niður. „Þú þarft að halda einbeit-
ingu allan tímann því þú veist aldr-
ei hvað kemur næst. Það er mjög
erfitt en eftir á bosir maður bara
sínu breiðasta af ánægju.“
Plante segist meira fyrir ævin-
týraferðmennsku en þá hefð-
bundnu. „Það er samnefnari okkar
allra í hópnum. En þú þarft ekki að
taka það út í öfgar því það sem við
erum að gera geta í raun allir
lært.“
Plante segir henta vel að taka
með sér packraft-bát á göngu um
Ísland. „Það eru svo margar ár
sem verða á vegi manns hér. Þegar
komið er að slíkri þarft þú ekki að
vera þaulreyndur ræðari til að taka
fram bátinn, blása hann upp, sigla
yfir ána og halda svo áfram göng-
unni,“ segir hann og bætir við að
hægt sé að fá léttari báta, einungis
um tvö kíló sem henti við minna
krefjandi aðstæður.
Koma aftur til Íslands
Plante segir að ferðirnar séu jafn
ólíkar og þær eru margar. „Frum-
skógurinn var ótrúlegur. Þar voru
leðurblökur flúgandi yfir manni,
fiskar sem maður hafði aldrei séð
áður í ánum, apakettir í trjánum og
þar fram eftir götunum. Umhverfið
í Alaska var einnig magnað með
skógarbirni allt um kring.“
Umhverfið á Íslandi sé einnig
einstakt. „Maður lítur til hliðar og
sér kindur þótt landslagið líkist því
sem maður sér á norðurslóðum,“
segir hann.
Spurður hvort ferðirnar hafi haft
mikil áhrif á hann, jafnvel breytt
viðhorfi hans til lífsins, stendur
ekki á svari hjá Plante. „Al-
gjörlega. Allir þeir staðir sem mað-
ur hefur séð hafa verið magnaðir.
Til dæmis að róa í skugga jökuls
hér á landi var ótrúlegt.“
Undir lok samtalsins segir
Plante að næst á dagskrá sé að
fljúga til Vestfjarða og ganga um
Hornstrandir. „Svo ætlum við að
sjá til. Við munum alveg örugglega
koma til Íslands aftur.“
Hér sigla þeir félagar niður Norðlingafljót með fallegt útsýni í baksýn. Að róa í nálægð jökuls segir Plante ótrúlega lífsreynslu.
Algjört frelsi
David Plante og félagar ætla ekki að verja eftirlaunaárunum í einhverri slökun. Þeir vilja frekar þeytast niður ár á uppblásnum
bátum og ganga klyfjaðir búnaði þess á milli. „Ég elska þetta,“ segir hinn 65 ára gamli Plante við Sunnudagsblaðið.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Frá vinstri: David Plante, Tom Randgaardt, Mark Chmielewicz og Didier Pont.Packraft-bátarnir þola vel að fara niður erfiðar flúðir.
Auðvelt er að pakka packraft-bátunum saman, skella þeim ofan í bakpoka og
ganga af stað eins og sést hér á þessari mynd af einum úr hópnum.