Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021 FERÐALÖG F jórir karlar á sjötugsaldri ferðast nú um landið á bæði fæti og báti. Þeir sigla niður ár á uppblásnum bátum, svoköll- uðum „packraft“-bátum, sem þeir síðan brjóta saman og skella ofan í bakpoka sinn og fara leiðar sinnar gangandi þegar þeim sýnist. Mennirnir eru fjórir; David Plante og Mark Chmeilewicz frá New York-ríki í Bandaríkjunum, Tom Randgaardt frá Minnesota í sama landi og Didier Maclaine Pont frá Hollandi. „Ég hef verið með kajakferðir á norðurslóðum í um 30 ár,“ segir Plante sem nýlega fór á eftirlaun í starfi sínu sem dýralæknir. Hann er reynslumikill kajak-siglari en hefur nú kolfallið fyrir ferðum á packraft-bátum. „Ég byrjaði að sigla á þessum bátum því maður getur ferðast um miklu stærra landssvæði en er hægt á kajak. Maður kemst á staði sem ekki væri annars hægt að komast að,“ segir Plante en fyrsta ferð hans á packraft-bát var um 320 kílómetra ferð í Alaska. Síðasta ferðin á undan þessari var í Belís þar sem hann og Didier ásamt þremur öðrum sigldu í frum- skógum og hellum landsins. Algjört frelsi Að sögn Plante eru bátarnir bæði léttir, minna en 4 kíló og þola álag vel. „Það er hægt að sigla í þeim í 5-8 sentimetra háu vatni og eins stórum og kröftugum flúðum og finna má í Miklagljúfri.“ Þegar komið er að vatni eða á eru bátarn- ir einfaldlega blásnir upp og sam- anbrotin ár tekin upp úr töskunni. Lítið mál er svo að taka saman bát- inn og ganga af stað með hann í bakpokanum. „Þetta gerir manni kleift að kanna svæði sem ekki væri annars hægt. Í Alaska, til dæmis, vörðum við tveimur dögum í að fara niður eina ána, pökkuðum svo öllu saman og gengum í tvo daga. Svo komum við að sjó og þá sigldum við 12 kílómetra þar yfir,“ segir Plante. „Þetta er hrikalega skemmtilegt. Ég elska þetta. Maður finnur fyrir algjöru frelsi.“ Plante segir árnar á Íslandi henta vel til að ferðast á þennan hátt. „Fólk hefur farið um ár á Ís- landi á svona bátum áður en eng- inn þá sem við fórum um daginn,“ segir hann en þá sigldu þeir fé- lagar niður Norðlingafljót. „Við fór- um niður bæði flúðir og litla fossa á leiðinni.“ Þegar blaðamaður ræddi við Plante höfðu þeir félagar verið hér í 10 daga og áttu um þrjár vikur eftir af ferð sinni. Plant segir að ferðin sé ekki skipulögð í þaula heldur snúist hún um að kanna landssvæðið og finna bestu árnar til að sigla niður. Eitthvað sem allir geta lært Plante er 65 ára og segir sigling- arnar halda honum í formi. „Ég hef róið svo til allt mitt líf.“ Þá er hóp- urinn allur þaulreyndur. „Ég held að allir okkar hafi farið niður að minnsta kosti 20 ár á norður- slóðum, í nyrsta hluta Kanada og í Alaska,“ segir Plante. Mikla einbeitingu þurfi til að róa þær ár sem þeir félagar hafa farið niður. „Þú þarft að halda einbeit- ingu allan tímann því þú veist aldr- ei hvað kemur næst. Það er mjög erfitt en eftir á bosir maður bara sínu breiðasta af ánægju.“ Plante segist meira fyrir ævin- týraferðmennsku en þá hefð- bundnu. „Það er samnefnari okkar allra í hópnum. En þú þarft ekki að taka það út í öfgar því það sem við erum að gera geta í raun allir lært.“ Plante segir henta vel að taka með sér packraft-bát á göngu um Ísland. „Það eru svo margar ár sem verða á vegi manns hér. Þegar komið er að slíkri þarft þú ekki að vera þaulreyndur ræðari til að taka fram bátinn, blása hann upp, sigla yfir ána og halda svo áfram göng- unni,“ segir hann og bætir við að hægt sé að fá léttari báta, einungis um tvö kíló sem henti við minna krefjandi aðstæður. Koma aftur til Íslands Plante segir að ferðirnar séu jafn ólíkar og þær eru margar. „Frum- skógurinn var ótrúlegur. Þar voru leðurblökur flúgandi yfir manni, fiskar sem maður hafði aldrei séð áður í ánum, apakettir í trjánum og þar fram eftir götunum. Umhverfið í Alaska var einnig magnað með skógarbirni allt um kring.“ Umhverfið á Íslandi sé einnig einstakt. „Maður lítur til hliðar og sér kindur þótt landslagið líkist því sem maður sér á norðurslóðum,“ segir hann. Spurður hvort ferðirnar hafi haft mikil áhrif á hann, jafnvel breytt viðhorfi hans til lífsins, stendur ekki á svari hjá Plante. „Al- gjörlega. Allir þeir staðir sem mað- ur hefur séð hafa verið magnaðir. Til dæmis að róa í skugga jökuls hér á landi var ótrúlegt.“ Undir lok samtalsins segir Plante að næst á dagskrá sé að fljúga til Vestfjarða og ganga um Hornstrandir. „Svo ætlum við að sjá til. Við munum alveg örugglega koma til Íslands aftur.“ Hér sigla þeir félagar niður Norðlingafljót með fallegt útsýni í baksýn. Að róa í nálægð jökuls segir Plante ótrúlega lífsreynslu. Algjört frelsi David Plante og félagar ætla ekki að verja eftirlaunaárunum í einhverri slökun. Þeir vilja frekar þeytast niður ár á uppblásnum bátum og ganga klyfjaðir búnaði þess á milli. „Ég elska þetta,“ segir hinn 65 ára gamli Plante við Sunnudagsblaðið. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Frá vinstri: David Plante, Tom Randgaardt, Mark Chmielewicz og Didier Pont.Packraft-bátarnir þola vel að fara niður erfiðar flúðir. Auðvelt er að pakka packraft-bátunum saman, skella þeim ofan í bakpoka og ganga af stað eins og sést hér á þessari mynd af einum úr hópnum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.