Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.07.2021, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.7. 2021 LESBÓK KVIKMYNDIR Quentin Tarantino, leikstjórinn goðsagna- kenndi, segir þróunina í kvikmyndaiðnaðinum niðurdrep- andi. Fjöldi framleiðslufyrirtækja brá á það ráð í faraldr- inum að annaðhvort gefa kvikmyndir sínar eingöngu út á streymisveitum eða hvort tveggja í kvikmyndahúsum og á streymisveitum. Warner Bros. mun þetta árið gefa allar myndir sínar út á HBO Max á sama tíma og þær fara í kvikmyndahús á meðan Disney hefur farið svip- aða leið. Tarantino er mikið kvikmyndanörd og er annt um kvikmyndahúsaupplifunina. Sjálfur gaf hann út myndina Once Upon a Time in Hollywood árið 2019, skömmu fyrir faraldurinn. „Við vorum eins og fuglar sem flugu í gegnum gluggann rétt áður en hann lokaðist á eftir okkur,“ sagði hann við ScreenCrush um málið. Rétt sluppu AFP Tarantino vill ekki fara beint á streym- isveitur. KVIKMYNDIR Leikkonan Margot Robbie sagði frá því í spjallþætti Jimmy Kimmel á dögunum að hún hefði sofið í herbergi með útskorna mynd í raunstærð af WWE-stjörnunni og leik- aranum John Cena í tvö ár. Robbie og Cena leika saman í mynd James Gunn, The Suicide Squad, sem verður frumsýnd vestanhafs eftir tvær vikur. Er Robbie var rúmlega tvítug var þáverandi kærasti hennar með Cena á heil- anum, svo mikið að hann geymdi mynd af hon- um í raunstærð í svefnherbergi sínu. „Stundum vaknaði ég um miðja nótt og brá við,“ sagði hún við Kimmel. Hún hugsaði svo í kjölfarið: „Ó, þetta er bara John Cena, þetta er allt í lagi.“ Í sama herbergi og Cena í tvö ár Robbie er ein sú vinsælasta í Hollywood. AFP Wolf Alice kemur fram á hátíðinni. Fyrsta tónlist- arhátíðin TÓNLIST Latitude-tónlistarhátíðin er haldin í Suffolk á Englandi um helgina og er þar með fyrsti stóri viðburðurinn sem haldinn er eftir að öllum fjöldatakmörkunum var aflétt í landinu. Búist er við að um 40 þús- und manns mæti á hátíðina á degi hverjum sem stjórnvöld nota til að sjá hvernig sé hægt að halda slíkar hátíðir við þær aðstæður sem nú eru uppi. Til að komast inn á hátíðina þurfa gestir að sýna fram á neikvætt Covid-próf tekið samdægurs eða vottorð um fulla bólusetningu. Þeg- ar komið er inn á hátíðina verða þó engar hömlur settar á mannmergð- ina sem þarf ekki að halda fjarlægð né klæðast grímum. Í sérstökum 90 mínútna þætti sín- um á Netflix, Inside, rýnir grín- istinn Bo Burnham í veruleika okkar á tímum netsins og snjallsíma. Í einu atriðinu bregst hann við lagi sem hann lék nokkrum sekúndum áður. „Það er svo mikið af lögum um störf verkalýðsstéttarinnar en fá um arðrán á nútímavinnumarkaði,“ seg- ir hann um lagið sem kallast Ólaun- aði lærlingurinn (e. Unpaid Intern). Burnham heldur áfram að tala um lagið þar til það klárast en þá skyndilega þarf hann að bregðast við atriðinu þar sem hann brást við laginu rétt áður. Burnham er heldur hissa á þessu öllu saman en fer að útskýra hvað hann var að gera í at- riðinu á undan. Þegar því er lokið þarf hann að bregðast við atriðinu þar sem hann bregst við atriðinu þar sem hann bregst við laginu. Rugl- ingslegt, ég veit. En þetta atriði endurspeglar að miklu leyti Inside sem er eins konar ádeila á þann heim sem ungt fólk býr við í dag, þá sérstaklega netið. Þessi stanslausa þörf og skylda fólks til að koma fram og sýna sig fyrir áhorfendum. Það þarf að viðhalda ákveðinni ímynd, hafa skoðun á öllu og bregðast við öllu. „Um hvað snýst þessi sýning?“ spyr Burnham á uppistandssýningu sinni frá árinu 2016, Make Happy. „Hún snýst um framkomu. Ég reyni að láta sýningar mínar snúast um annað en þær enda alltaf á því að snúast um framkomu.“ Hann gagn- rýnir samfélagsmiðla og líkir þeim við fangelsi því þar þurfa allir að koma fram fyrir framan alla aðra, alltaf. „Ef þú getur lifað lífinu án þess að hafa áhorfendur þá ættir þú að gera það,“ bætir hann við. Sló ungur í gegn Robert Pickering Burnham fæddist 21. ágúst í Massachusetts í Banda- ríkjunum árið 1990. Móðir hans, Patricia, er hjúkrunarfræðingur á líknardeild en faðir hans, Scott, á verktakafyrirtæki. Árið 2006 fór Burnham að deila myndskeiðum af sér á YouTube syngjandi grínlög við hljómborð eða með gítar. Upp- haflega deildi Burnham myndskeið- unum svo bróðir hans sem bjó fjarri fjölskyldunni gæti séð en þau urðu fljótt vinsæl á ljósvakamiðlinum. Burnham var sterkur nemandi og komst inn í Harvard, Brown og New York-háskóla en ákvað að taka sér ársfrí svo hann gæti einbeitt sér að uppistandi. Hann var aðeins 18 ára þegar hann tók upp sinn fyrsta uppi- standsþátt fyrir Comedy Central og fór aldrei aftur í skóla. Eins og myndböndin á YouTube byggði uppistand Burnham á lögum hans sem hann samdi sjálfur og skrifaði gríntexta við. Í lögunum tekst hann á við málefni eins og kyn- þætti, kynferði, kynhneigð, kynlíf og Burnham var í stóru hlutverki í myndinni Promising Young Woman sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta handrit í ár auk fleiri tilnefninga. AFP Velkomin á alnetið Í Netflix-þættinum Inside nær grínistinn Bo Burn- ham betur en nokkur annar utanum þá tilfinn- ingu sem margir hafa upplifað síðustu misseri, fastir inni með alnetið sér til huggunar. Hefur þátturinn hlotið lof gagnrýnenda og áhorfenda. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.