Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 Smá- og raðauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar breytingar á eldri hú .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Nauðungarsala Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi, s. 458-2000 Einnig birt á www.naudungarsolur.is Uppboð verður haldið í aðstöðu Vöku hf., Héðinsgötu 1-3, Reykjavík föstudaginn 9. júlí 2021 og byrjar kl. 11:00 á eftirfarandi eignum, sem hér segir: Hvorki ávísanir né kreditkort eru tekin gild sem greiðsla, einungis debetkort eða peningar. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, 30. júní 2021. Einnig verður boðið upp: IM-1986 Hundai nr. D0000568 árg. 2013, EB-2003 Liebherr 944HDSL skrnr. EB2003, Katrín KÓ skipaskrnr. 6490 UPPBOÐ AE748 AK522 ANE04 AP359 ARD09 ATE42 AY613 BEJ17 BF255 BF346 BKE75 BLD54 BPR29 BR422 BSS76 BY272 BZ754 DD954 DIF68 DM075 DVP95 DVZ79 DZA73 EB230 ED434 EDD58 EEP80 EK533 EM208 EMV67 ENU83 EVS07 FDD41 FDR33 FJE91 FKJ97 FSN37 GBA72 GFD48 GGF50 GMX82 GOY76 GOY78 HBJ33 HBX74 HFK96 HRF96 IEY56 IM637 INS19 ISL14 JE237 JHS74 JKJ01 JL313 JLH68 JM003 JP754 JXT11 JY277 JY776 JZ901 KAZ93 KBD75 KF465 KF834 KI023 KIA55 KL764 KLU57 KLY78 KNY58 KSL14 KU697 KU880 LBH54 LBT14 LI325 LIF28 LIX23 LJ884 LK733 LL769 LM347 LM928 LS803 LSP01 LU068 LV440 LY545 LZ626 MEK19 MF933 MG786 MU025 MUG80 MZ510 NA137 NA411 NB143 NBL42 NE328 NI884 NK842 NKZ10 NN111 NV770 OD625 OGB28 OHU26 OL197 OL631 OL735 ON541 ORV33 OXV03 OY538 OZF40 PB091 PF567 PFK80 PFL78 PG341 PG616 PGB86 PH418 PJB69 PL376 PLL64 PM111 PO549 PR596 PT170 PXX07 PY209 PY234 PZK83 PZS90 RDY99 RF618 RJ121 RJ598 RP256 RPR82 RSY28 RTM10 RV304 RY696 SEF28 SF726 SL418 SP972 SS107 ST496 STK50 SU501 SU635 SUZ91 SV398 SY257 TBN84 TEZ40 TF051 TFT27 TI760 TKZ76 TM039 TN242 TO183 TO520 TPL54 TRU12 TS457 TS479 TTM33 TU536 TY969 UA482 UD216 UE175 UI710 UK223 UL754 UN461 UNU02 US548 USG28 UV814 UVD14 UX304 UZ798 VAV20 VAY33 VD162 VDR11 VG645 VH650 VM293 VO627 VOY40 VP266 VR291 VSS27 VSZ46 VTR19 VU538 VZ144 YER60 YF410 YM166 YMK66 YMN28 YSR73 YT086 YUV00 YX553 YYU58 YZB25 ZEA57 ZGR46 ZH984 ZHT06 ZML28 ZNN44 ZR913 ZS840 ZSH67 ZT509 ZTV22 ZVK09 ZZ778 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Botsía kl. 10, Lárus kemur til okkar og ætlar að stjórna botsía, kl. 13.30 dansfimi Auðar Hörpu og allir velkomnir, kl. 13.30Tie dye smiðja, tilvalið að taka með sér barnabörnin og prófa að lita. Kl. 14.30 er svo tónlistagetraun sem hann Bjartur sumarstarfsmaður er með og verðlaun fyrir 1. og 2. sætið. Íssmakk kl. 14.30. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6- 8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30- 15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Leikfimi með Hönnu kl. 10-10.45. Hádegis- matur kl. 11.30-12.30. Bíósýning kl. 13-15. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl.13.45 -15.15. Poolhópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Ganga fyrir fólk með göngugrind fer frá Jónshúsi kl. 11. Hjólað með Vigni Snæ kl. 13. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, alltaf heitt á könnunni. Gönguhópur / leikfimi frá kl. 10 (Sólstofa). Prjónakaffi frá kl. 10-12. allir velkomnir. Gjábakki Boðið verður upp á 45 mínútna jógatíma í Gjábakka mánudaginn 5. júlí kl. 10.30 Félagsvist í GJÁBAKKA á föstudags- kvöldum kl. 20. Gullsmári Boðið verður upp á 45 mínútna jógatíma í Gullsmára kl. 11 í dag, föstudaginn 2. júlí. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Einstakl- ingskennsla á snjallsíma og spjaldtölvur kl. 9-12. Opin vinnustofa frá kl. 10.30. Kundalini jóga með Sigrúnu kl. 11-11.30. Korpúlfar Pílukast í Borgum frá kl. 9.30 í dag, morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum. Gönguhópur Korpúlfa leggur af stað frá Borgum kl. 10, þrír styrkleikahópar og kaffispjall að lokinni göngu. Kundalini jóga með Sigrúnu kl. 11.15, lögð áhersla á öndun og hugleiðslu, aðgangur ókeypis og allir velkomnir, tíminn er 45 mínútur. Bridshópur Korpúlfa byrjar að spila kl. 12.30 í dag í Borgum. Njótum og höfum gaman. Samfélagshúsið Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Gönguferð kl. 10.40, höldum áfram að plokka. Stólaleikfimi kl. 12.50 með Hönnu Bedbur, allir velkomnir. Kaffihús kl. 14.30. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á því að spila botsía kl. 10.30 og einnig hittist kaffihópur á sama tíma í handverks- stofu. Eftir hádegi er svo mikið fjör en það verður dansleikfimi kl. 12.50 og svo spilað bingó í matsalnum kl. 13.30. Eftir bingóið verður vöfflukaffi í matsalnum kl. 14.30. Verið öll velkomin á Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, pútt á flötinni við Skóla- braut kl. 11.Tækninámskeiðin byrja í næstu viku. Snjallsímanámskeið á mánudaginn kl. 13.30, spjaldtölvunámskeið á þriðjudaginn og samfélagsmiðlanámskeið á miðvikudaginn. Skráning er hjáThelmu í síma 8663027 eða thelmas@seltjarnarnes.is Auglýsing um deiliskipulag Fjósatungu í Fnjóskadal Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar samþykkti þann 24. júní 2021 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi hluta jarðarinnar Fjósatungu í Fnjóskadal eins og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 mælir fyrir um. Skipulagssvæðið afmarkast af hluta þess svæðis sem skilgreint er fyrir frístundabyggð á jörðinni skv. aðal- skipulagi. Skv. gildandi aðalskipulagi er 61,2 ha svæði skilgreint sem frístundabyggð í Fjósatungu og er svæðið staðsett í hlíðinni sunnan við bæjarstæðið í Fjósatungu. Skv. aðalskipulagi nær svæðið að gili ofan bæjarhúsanna í Fjósatungu í norðri, að bakka neðan hlíðarinnar í austri, að Grjótá í suðri og upp í um 250 m hæð í vestri. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að afmarka lóðir og byggingarreiti ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomuvegar og önnur þau ákvæði sem ástæða er til að skilgreina í deiliskipulagi vegna uppbyggingar frístundabyggðar í Fjósatungu í Fnjóskadal. Í fyrri áfanga deiliskipulags er gert ráð fyrir 44 lóðum fyrir frístundahús. Af þessum 44 lóðum er gert ráð fyrir að 20 þeirra verði staðsettar á svæði með aflíðandi halla syðst á svæðinu en 24 lóðir í hlíðinni sunnan bæjarstæðis Fjósatungu. Tillagan að breytingu mun liggja frammi á skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugum, frá og með föstudeginum 2. júlí 2021 með athugasemdarfresti til og með föstudagsins 13. ágúst 2021. Þá eru upplýs- ingar einnig aðgengilegar á heimasíðu Þingeyjarsveitar: https://www.thingeyjarsveit.is/is/stjornsysla/ skipulagsmal/skipulagsauglysingar. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 13. ágúst 2021. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Þingeyjarsveitar, Kjarna, 650 Laugar og/eða í tölvupósti á netfangið atli@skutustadahreppur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests teljast henni samþykkir. Atli Steinn Sveinbjörnsson Skipulagsfulltrúi Þingeyjarsveitar Tilkynningar Elsku Embla okkar, það var óbærilegt að heyra að þú værir farin frá okkur fyrir fullt og allt. Frá því þú varst lítið for- vitið stelpuskott var ljóst hvaða persónu þú hafðir að geyma. Greind, ákveðin, viljasterk og alltaf jafn fyndin, skemmtileg og orðheppin á þinn rólega og lágstemmda hátt. Þú varst líka einstaklega falleg að innan sem utan. Það er auðvelt að loka augunum og sjá þig fyrir sér þar sem þú og Heiðar Dagur er- uð tímunum saman að veiða síli í Frakklandi eða þar sem dýra- vinurinn Embla hefur handsam- að risastóra og ófrýnilega bjöllu, gefið henni nafnið Dúddi og gert að gæluskordýri. Eða þig og hina krakkana í ferða- hópnum „Hin fjögur fræknu“ að tína skeljar og kuðunga á ís- lenskri strönd í einu af okkar fjölmörgu ferðalögum og útileg- um. Elsku Embla, þú skilur eft- ir þig risastórt skarð í hjarta fjölskyldunnar sem aldrei verð- ur fyllt. Við munum alltaf minn- ast þín og aldrei gleyma þér. Elsku Guðrún Katrín, Arnar og Agla, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur í þessari erfiðu raun. Hafsteinn, Sólveig, Helena Huld og Heiðar Dagur. Embla, þú varst besta og yndislegasta manneskja sem ég hef nokkurn tímann kynnst og með mest smitandi og falleg- asta brosið. Ég er svo þakklát Embla Arnars Katrínardóttir ✝ Embla Arn- ars Katrínardóttir fæddist 11. sept- ember 2006 á heim- ili foreldra sinna, Guðrúnar Katrínar Bryndísardóttur og Arnars Guðmunds- sonar. Systir henn- ar er Agla Arnars Katrínardóttir, fædd 11. maí 2004. Embla lést á heimili sínu þann 7. júní 2021. Útför hennar fór fram í kyrr- þey að viðstöddum nánustu fjöl- skyldu og vinum frá Hljóðbergi í Hannesarholti 18. júní 2021. fyrir það að hafa þekkt þig þar sem þú varst svo fyndin og varst alltaf til staðar fyrir mig og alla í kringum þig. Þú komst manni alltaf í gott skap og mér leið alltaf vel hjá þér. Orð geta ekki lýst því hvað ég og allir sem þekktu þig munum sakna þín mikið. Þú verður allt- af með okkur þó það sé í gegn- um minningar sem ég er enda- laust þakklát fyrir að hafa. Og þó ég vildi óska þess að ég þyrfti ekki að skrifa þessa grein og þú værir enn þá hérna vona ég að þér líði betur núna þar sem þú ert og ég sendi mínar allra bestu óskir til fjölskyldu og vina þinna. Þín vinkona, Helena Huld Hafsteinsdóttir. Elsku Embla, ég vil bara þakka þér fyrir alla samveruna og æðislegu minningarnar sem við höfum átt í gegnum lífið, farið saman til útlanda, sprengt flugelda á mörgum gamlársdög- um, skreytt piparkökuhús og borðað yndislegu bollurnar sem Guðrún bakar á bolludögum. Þinn vinur, Heiðar. Elsku Embla, þú varst besta vinkonan mín. Það er svo sárt að hugsa til alls þess sem við áttum eftir að upplifa en þó er ég þakklát fyrir allar okkar minningar og að þú hafir gefið mér þá gjöf að fá að kynnast þér. Þú hafðir svo skemmtileg- an húmor, þú lést mig alltaf fara í hláturskast og mér leið alltaf vel í kringum þig. Og ég vissi að ég gat treyst þér. Ég sakna þín svo mikið og mér finnst óskiljanlegt að við fáum ekki að hittast aftur. Ég veit að sorg allra sem þekktu þig er mikil. Þú munt alltaf lifa í minn- ingu minni. Þín vinkona, Líba Bragadóttir. Elsku fallega amma mín, að þú skulir vera farin frá okkur er mjög skrítin tilhugsun, mér fannst alltaf amma og afi vera eilíf en svo er víst ekki. Það eru margar góðar minn- ingar sem koma upp í huganum þessa dagana og það er svo gott fyrir hjartað að tala um þær og hlæja. Það var alltaf svo spennandi að koma í hádeg- ismat til ykkar afa þegar við frænkurnar komum norður, þú varst alltaf búin að baka heims- ins bestu muffins, lengjur, hjónabandssælu og fleira góm- sætt, ásamt því varstu alltaf með Egils appelsínuþykkni tilbúið í glösunum okkar þegar við gengum inn um dyrnar, svo ég tali nú ekki um öll þau skipti sem þú komst suður og gistir á Brávallagötunni og þar var ým- Karólína Bernharðsdóttir ✝ Karólína Bern- harðsdóttir fæddist 14. október 1936. Hún lést 7. júní 2021. Útför Karólínu fór fram 16. júní 2021. islegt brallað sem hægt er að skemmta sér yfir um ókomna tíð. Þú varst svo fal- leg og fín í jarðar- förinni þinni eins og þér einni var lagið. Tyrell Arnar langömmustrákur sagði við mig eftir jarðarförina að núna væri amma orðin óska- dreki sem svæfi í töfrabolla og að ef okkur langaði til þess að óska okkur einhvers þyrftum við bara að loka augunum og segja orðið ósk og þá myndir þú birtast. Það komu nokkur tár hjá mömmunni þegar hún áttaði sig á því að barnið væri að hjálpa henni í sorginni á þennan fallega hátt. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Elsku amma, þangað til við hittumst aftur. Þín Birna Margrét.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.