Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur
beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann.
Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum.
Blettaþolið SýruþoliðHögg- og
rispuþolið
HÁTT
HITAÞOL
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Samræður við náungann taka
óvænta stefnu í dag. Þú skalt passa þig á því
hvað þú segir, teldu upp að tíu ef þér hitnar í
hamsi.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú virðist ekki ráða við aðstæður leng-
ur, en það er enn tími til að snúa hlutunum
við. Treystu vinum til að hjálpa þér.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er ástæðulaust að láta ein-
hverja drauga úr fortíðinni skemma fyrir sér.
Leggðu áherslu á að fara í stutt ferðalag til
að dreifa huganum.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert full/ur af orku og veist ekki
alveg hvernig þú átt að vera. Forðastu ill-
deilur við aðra. Þér verður boðið í veislu fljót-
lega.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Atburðarás dagsins mun leiða þig á
stað þar sem þú hefur aldrei komið áður.
Vinur leitar til þín með vandamál sem þú
getur auðveldlega leyst.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Reyndu að hvíla þig í dag. Börnin
taka mikinn þroskakipp þessar vikurnar. Þú
færð heimboð sem á eftir að breyta miklu.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þarft ekki að hafa hátt til þess að
koma málum þínum á framfæri. Mundu að
þakka fyrir það sem þú hefur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Haltu sambandi við fólk sem
skiptir þig máli. Gefðu þér tíma til að hugsa
visst mál ofan í kjölinn. Góðir vinir stuðla að
hamingju.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Litlu, gætilegu skrefin sem þú
tekur til þess að bæta starfsaðstöðuna leiða
til stórfelldra breytinga. Leiddu saman
makalausa vini og sjáðu hvort eitthvað ger-
ist.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þegar þú kynnir hugmyndir þínar,
færðu kannski ekki viðbrögðin sem þú bjóst
við, búðu þig undir það. Þú þarft ekki að
finna upp hjólið aftur.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Einhver óróleiki ríkir á vinnustað
þínum og þér finnst erfitt að átta þig á stöðu
mála. Reyndu að fullnægja ævintýraþránni
og breyta út af daglegum venjum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er hætt við að ákefðin hlaupi
með þig í gönur í dag. Gera peningar og
starfsframi þig hamingjusama/n eða ertu að
leita að einhverju öðru?
G
uðmundur fæddist í
Svignaskarði í Mýra-
sýslu í Borgarfirði 2. júlí
1961 og ólst þar upp við
almenn sveitastörf til 17
ára aldurs. Hann var í Barnaskólanum
á Varmalandi og fór síðan eitt ár í
Reykjaskóla í Hrútafirði. Guðmundur
er kominn af miklu hestafólki en faðir
hans var ,,Skúli í Skarði“, lands-
þekktur hestamaður sem var mjög
virkur í keppni og félagsmálum í Borg-
arfirðinum og allir hestamenn fyrr á
árum þekktu.
Eftir grunnskólann hóf Guðmundur
nám í stálsmíði í Iðnskóla Reykjavíkur
og var á samningi hjá tengdaföður sín-
um, Jóni Þórarni Bergssyni, sem rak
vélsmiðjuna Þrym hf. Guðmundur
hlaut meistararéttindi í iðngreininni
árið 1987 og hann starfaði hjá Vél-
smiðju Jóns Bergssonar til ársins 1986
er hann hóf að starfa sjálfstætt sem
verktaki í jarðvinnu og veitulögnum og
sinnir hann því starfi enn þann dag í
dag.
Guðmundur kynntist konu sinni
Oddnýju snemma. „Bergur, eldri
bróðir Oddnýjar, var í sveit heima á
Svignaskarði frá því hann var krakki.
Oddný kom oft í sveitina, en hún hafði
mikinn áhuga á hestum, en fjölskyldan
hennar var með hesta í bílskúrnum í
Kópavogi þar sem hún bjó. Við höfum
því þekkst frá því við vorum 8 og 9 ára.
Við byrjuðum saman á Geirmund-
arballi í Dalabúð í Búðardal árið 1978
og höfum verið saman síðan. Við fórum
að búa þegar við keyptum okkar
fyrstu íbúð í Kópavogi árið 1981.“
Ungu hjónin voru alveg frá upphafi
með hesta í Kópavoginum og svo
stækkaði fjölskyldan. Guðmundur hef-
ur brennandi áhuga á hestamennsku
og búskap, enda sveitastrákur inn við
beinið. Dætur hans smituðust af áhuga
foreldranna og eru allar miklar hesta-
konur, sérstaklega Berglind Rósa og
Valdís Björk, sem hafa sína atvinnu af
hestamennskunni og eru bæði að
temja, þjálfa og keppa í hestaíþróttum.
„Þær voru nú eiginlega allar bara með
hesta á heilanum frá fæðingu,“ segir
Guðmundur og hlær. Hann er gífur-
lega stoltur af dætrum sínum. „Þetta
eru svo flottar stelpur. Við værum
örugglega ekkert í hrossarækt í dag ef
allar stelpurnar hefðu ekki haft svona
mikinn áhuga á hestum. Elsta dóttir
mín rekur hestabúgarð í Svíþjóð og
eiginmaður hennar, Daníel Ingi, setti
nýverið heimsmet í 250 metra skeiði á
móti í Svíþjóð.“ Bæði Berglind Rósa
og Valdís Björk hafa verið í úrslitum í
landsmótum, Íslandsmótum og Norð-
urlandamótum og hafa mikla keppn-
isreynslu. Guðný Birna er hámenntuð,
en vinnur ekki við hestamennskuna
eins og systur hennar, en er þó mikil
hestakona engu að síður.
Árið 2002 keypti Guðmundur Hey-
holt, næstu jörð við æskuheimilið á
Svignaskarði, en þar hafa þau hjónin
byggt sér hús. Síðustu árin hefur hann
snúið sér í auknum mæli að hrossa-
ræktinni. „Yngsta dóttir mín, Valdís
Björk, temur fyrir okkur hestana, en
allir hestarnir mínir eru kenndir við
Svignaskarð.“ Guðmundur og Oddný
reyna að dvelja sem oftast í Borgar-
firðinum á sumrin. Það getur þó stund-
um reynst erfitt því Guðmundur er
mikill vinnuþjarkur og hann segir að
hann megi ekkert vera að því að eiga
afmæli að sögn eiginkonunnar. Hann
er svolítið af gamla skólanum og er
hógvær og jarðbundinn og ekki mikið
fyrir að mæra sig upp í rjáfur. „Konan
er líklega hvatvísari en ég.“
Guðmundur er búinn að vera að
keppa svolítið á mótum í vetur á reið-
hestinum Erpi, sem hann keypti í
haust, og gengið vel, þótt hann vilji lítið
gera úr því. „Í næstu viku erum við
Oddný að fara í viku ferðalag um Þing-
eyjarsýslurnar á hestum, sem verður
mjög gaman.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Oddný
Mekkín Jónsdóttir, leikskólakennari í
Guðmundur Skúlason járnsmíðameistari og hestamaður – 60 ára
Hjónin Gönguferð á Helgafell og gleðigjafinn Tumi að sjálfsögðu með í för.
Byrjuðu saman á Geirmundarballi
2021 Guðmundur á hestinum Erpi.
Dæturnar Valdís Björk, Guðný Birna og Berglind Rósa Guðmundsdætur.
Til hamingju með daginn
70 ÁRA Lísbet fæddist á Akureyri en ólst upp á Akranesi. Eftir grunnskólann
fór hún í Versló en lauk stúdentsprófinu frá MH. Lísbet er lífeindafræðingur og
starfaði á Landspítalanum í hátt í 40 ár og var þar deildarstjóri á Rannsókn-
arkjarna og stýrði þar 140 manna deild. Helstu áhugamál Lísbetar eru göngur og
ljósmyndun og svo fæst hún líka við skriftir. „Það má segja að náttúran eigi hug
minn allan, hafið, fjöllin og útiveran bæði heillar og heilar. Ég er þess fullviss að
náttúran hefur lækningamátt.“ Þegar Lísbet fer í gönguferðir er hún ekki að
hlusta á tónlist, heldur einbeitir hún sér að kyrrðinni og kliði fuglanna.
„Einna best er að fara til Grenivíkur og ganga þar á Kaldbak, sem er fjall sem
er fullt af orku og þaðan er stórkostlegt útsýni.“ Hún minnist líka á frábæra ferð
yfir Skeiðarárjökul sem var fjögurra daga ganga. „Ferðirnar hérna heima standa
meira upp úr en ferðirnar erlendis, en landið okkar er svo magnað. Til dæmis eru
Hornstrandir einstakt svæði og ég fer oft norður á Strandir bara til að ganga.“
Lísbet hefur farið í fimm daga gönguferð á Grænlandi með allan búnað á bak-
inu, farið á Inkaslóðir í Perú og farið tvisvar í Himalajafjöllin bæði Indlands- og
Nepalmegin. „Göngutúrarnir mínir halda mér heilbrigðri, bæði líkamlega og and-
lega og ég þakka það á hverjum degi að geta stundað mína útivist.“
Í gær lagði Lísbet af stað inn á miðhálendi í fjögurra daga ferð með Útivist og
heldur því upp á afmælisdaginn á fjöllum.
Lísbet Grímsdóttir