Fiskifréttir


Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 6

Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 6
6 FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997 EX-it ehf. Háeyri 4, 550 Sauðárkróki. Sími/fax: 453 6878 SÍKR ÖRYGGISTÆKI HITAMÆLAR HITAMÆLAR 5ÍMcrD©[iog]tiacr JJé^ggocn] §l €©□ @th£ Vesturgötu 16 - Símar 551 4680 og 551 3280 - Telefax 552 6331 (slenska Smáfiskaskiljan, fyrir togara og báta. FLOTROFAR FLÆÐIROFAR EX-it 60 Stundaglasið Kællvélar ehf Plötufrystar frá: A LÓÐRÉTTIR EÐA LÁRÉTTIR SJÓ EÐA LANDTÆKI MED EÐA ÁN VÉLA ALLAR STÆRÐIR GOTT VERÐ STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR S: 587-45-30 FAX:557-24-12 Flotin endurbœttur Ásdís ST 37 eftir breytingarnar. Á minni myndinni sést báturinn eins og hann leit út, áður en ráðist var í endurbæturnar. (Myndir: Snorri Snorrason). Óseyhf. í Hafnarfirði: Nýtt skip byggt ut- an um Ásdísi ST 37 Búið er að þrefalda brúttótonnatölu rækjuveiðiskipsins Ásdís- ar ST 37 frá Hólmavík. Skipið hefur verið lengt um sex metra, breikkað um 1,20 metra og þilfarið hefur verið hækkað um 50 sentímetra auk þess sem nýr hvalbakur og nýtt stýrishús hefur verið sett á skipið. Ásdís ST var 26 brúttótonn að stærð en eftir breytingarnar mælist það 77 brúttótonn. Breytingarnar á Ásdísi ST voru unnar hjá Ósey hf. í Hafnarfirði. Að sögn Hallgríms Hallgrímsson- ar hjá Ósey má í raun segja að skip- ið hafi verið endurbyggt svo til frá grunni um leið og tækifærið var notað til þess að endurnýja ýmsan búnað. Hönnun verksins, teikn- ingar og eftirlit með breytingunum var í höndum Skipa- og vélatækni ehf. í Keflavík. Nýjar togvindur frá Ósey Auk lengingar og breikk- unar og hækkunar á þilfari voru helstu breytingar á Ás- dísi ST þessar: Nýr hvalbak- ur var settur á skipið og í honum voru innréttaðar nýj- ar íbúðir og borðsalur auk þess sem komið var fyrir snyrtingu og stakkageymslu. Nýja brúin á skipinu var smíðuð úr áli og þar hefur verið komið fyrir nýjum og eldri fiskileitar-, siglingar- og fjarskiptatækjum auk véla- stýringa og fjarstýringar fyrir togvindur. Þá var smíðað nýtt dekkhús. Allar raf- magnslagnir, rafmagnstöflur og ljósa- og hitabúnaður var endur- nýjaður og komið var fyrir nýrri 38 KW ljósavél frá Perkins sem Mar- Afl ehf. hefur umboð fyrir. Lestin var útbúin fyrir fiskikör, klædd með ryðfríu stáli og einangruð, og sett í hana kælikerfi frá Hafliða Sævaldssyni. Togvindukerfi skipsins var end- urnýjað og settur var upp nýr tog- gálgi. Vindurnar eru frá Ósey og Séð aftur skipið. Á myndinni sjást nýju Óseyj- arspilin, nýi þilfarskraninn og í bakgrunni er toggálginn sem smíðaður var á skipið eru þær hvor um sig sjö tonna. Nýr 7,5 tonna krani var einnig settur upp og ný ankerisvinda og enn- fremur var allt vökvakerfi vegna vindubúnaðarins endurnýjað. Hið sama má segja um lensikerfi, lagn- ir, loka og dælur um borð í skipinu. Pá var settur nýr framgír við aðal- vél og loks var skipið málað með Hempels epoxy málningu frá Slippfélaginu Málningarverk- smiðju og var það verk í höndum V.Á þjónustunnar. Nýr Simrad dýptarmælir Fjöldi verktaka kom að breyt- ingum og endurbótum á Ásdísi ST. Allt tréverk var unnið af Brim hf. Um raflagnir sá Rafboði Garðabæ ehf. en Sínus hf. sá um allar tengingar og uppsetningu á tækjum í brú. Auk eldri tækja var bætt við nýjum Simrad dýptarmæli og GPS- tæki frá Simrad. Stýrisvéla- þjónusta Garðs hafði með höndum frágang á stýrisvél og Vélaverkstæði J. Ólafs- sonar sá um að rétta af aðal- vél. Allir aðrir verkþættir voru unnar af starfsmönnum Óseyjar. Að sögn Hallgríms er verkefnastaðan hjá Ósey góð um þessar mundir. Verið er að ljúka við breytingar á Sæmundi HF 85 og vinna hefst fljótlega við breytingar á Agli SH 195. Hjá fyrirtæk- inu starfa nú um 30 manns.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.