Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 31
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
Texti
Myndir: SLP
umtalsverðan. Nokkrir földungar
fengust og eins 50 kílóa fiskur sem
Japanir nefna mambo. Stefán segir
hann minna á guðlax en samkvæmt
upplýsingum frá Hafrannsókna-
stofnun sé ekki vitað til þess að
þessi fiskur hafi áður veiðst svo
norðarlega.
Lögðu 9000 kflómetra af
línu í veiðiferðinni
Þegar leið að mánaðamótum
október og nóvember virtist tún-
fiskaflinn vera að detta niður hjá
áhöfninni á Tokuju Maru en hin
túnfiskveiðiskipin tvö voru þá hætt
veiðum fyrir nokkru.
— Við fengum ekki einn einasta
fisk einn daginn í byrjun nóvember
og útlitið virtist ekki of gott. Dag-
inn eftir fengum við hins vegar
ágæta veiði og í kringum stór-
streymið fyrir miðjan mánuðinn
fengum við mjög góða veiði fjóra
Ótrúlegur agi og
vinnusemi
— Einn daginn vorum við búnir
að draga um 130 kílómetra af línu
án þess að fá einn einasta fisk en á
síðustu 20 kílómetrunum fengum
við sex góða fiska. Svona gátu afla-
brögðin verið sveiflukennd, segir
Stefán en hann upplýsir að það sé
lykilatriði við túnfiskveiðarnar að
geta lagt línuna hraðar en sem
nemur ferð skipsins. Það er gert
með tölvustýrðu línuspili sem
keyrir línuna út eins hratt og fiski-
skipstjórinn óskar eftir. Með þessu
móti er hægt að koma línunni nið-
ur á mismunandi dýpi en krókarnir
eru yfirleitt á um 50 til 200 metra
dýpi. Stefán segist ekki hafa getað
annað en dáðst að aganum og
vinnuhörkunni um borð í skipinu.
Til marks um vinnusemina megi
nefna að enginn tími sé látinn fara
til spillis. Dæmi um það sé að unn-
ið hafi verið við að setja upp tún-
Sporður af rúmlega 300 kg túnfiski. 92 sentímetrar eru á milli sporðend-
anna
daga í röð. Við vorum þá að fá frá
1,5 tonnum upp í 2,3 tonn á dag af
stórum og góðum túnfiski. Um
þetta leyti vorum við komnir vest-
ur undir landhelgislínuna beint
suður af Vestmannaeyjum. Þarna
fundum við 11°C heitan sjó og tún-
fiskurinn virtist halda sig í skilun-
um á milli hlýsjávarins og kaldari
sjávar en þó var hitinn sjaldnar
lægri en 9,5°C, segir Stefán en þess
má geta að öll japönsku skipin eru
útbúin með búnaði sem gerir þeim
kleift að taka á móti kortum frá
gervitunglum sem sína yfirborðs-
hita sjávar.
Þótt línuveiðum japönsku tún-
fiskveiðiskipanna hafi áður verið
lýst hér í blaðinu er ekki víst að
allir lesendur geri sér grein fyrir
því hve gífurlegt umfang veiðanna
er. Að sögn Stefáns lagði áhöfnin á
Tokuju Maru út línu sem samtals
var 150 kílómetrar á lengd á hverj-
um einasta degi. Sem beita var
notaður valinn smokkfiskur. Alls
telst Stefáni til að heildarlengd lín-
unnar, sem lögð var í veiðiferð-
inni, hafi svarað til tæplega 9000
kílómetra en til samanburðar má
nefna að það samsvarar vega-
lengdinni frá Grímsey og vel suður
fyrir miðbaug.
fisklínuna og undirbúa veiðarnar á
siglingunni frá Japan til íslands.
— Það eru 22 menn í áhöfn og
það ganga allir vaktir á dekki nema
loftskeytamaðurinn og kokkurinn.
Báðir skipstjórarnir, fiskiskip-
stjórinn og siglingarskipstjórinn,
taka þátt í vinnunni á dekkinu og
hið sama má segja um vélstjórana.
Það voru aldrei færri en 15 manns á
dekki í einu og öll vinna gekk
snurðulaust fyrir sig. Ef ég ætti að
lýsa vinnusemi áhafnarinnar með
einu orði þá væri það ósérhlífni. Á
matartímum var það áberandi að
áhöfnin, jafnt Japanirnir sem Ind-
ónesarnir, reyndi að eyða sem
minnstum tíma í matsalnum.
Menn gleyptu í sig matinn og síðan
nánast hlupu þeir út á dekk. Þessir
menn eru á sjó í rúma tíu mánuði á
ári og á þeim tíma fá þeir örfá tæki-
færi til þess að fara í land og þá
aðeins í stutta stund í hvert skipti.
Það eru mikil þrengsli um borð og
þrátt fyrir að Indónesarnir séu á
mun lægri launum en japönsku
yfirmennirnir þá varð ég ekki var
við neina stéttaskiptingu, segir
Stefán en hann segir áhöfnina hafa
tekið sér með kostum og kynjum
og gestrisnin hafi á stundum verið
yfirþyrmandi.
S J O MAN NAALMANAKIÐ
- HIÐ EINA SANNA-
ÁSAMT SKIPASKRÁ MEÐ MYNDUM!
ísíensfýt Sjómannaafmanaý ‘Jisýiféfajjs ísíands er að /joma út
í 73. sinn. (Petta er Sjómannaafmana/Qd sem ísfens/jir
s/jipstjórnarmenn nota.
í Sjómannaafmana/finu er sfjpasfrá með myndum af ísfensfum
sfipum op affar uppfýsinyar sem nauðsynfegar eru sjófarendum
ojy öðrum sem starfa í sjávarútvepji.
‘Tryggið yépur áséjift í síma 5510 500
- og borgið minna!
FISKIFÉLAGSÚTGÁFAN EHF
FISKIFÉLAG ÍSLANDS
LÖNPUN EHF. IH
Box 1517-121 Reykjavik
Sími: 552 9844 • Fax: 562 9840 —'©"O*