Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 30
30 FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
Túnfiskveiðar
Túnfískveiðar Japana í íslenskri landhelgi í sumar og í haust
hafa svo sannarlega skilað eftirtektarverðum árangri. Fyrstu
tvö skipin, sem reyndu fyrir sér á veiðunum, voru komin með
alls 765 túnfíska, sem samtals vógu tæp 90 tonn, í lok septem-
ber sl. og var áætlað aflaverðmæti þá um 200 milljónir króna.
Bæði skipin voru að veiðum fram undir miðjan október og
miðað við fréttir af aflabrögðum er ekki ólíklegt að ætla að
skipin hafí að lágmarki bætt við a.m.k.10 milljón króna afla-
verðmæti á þessum tíma. Þriðja skipið, Tokuju Maru, kom á
miðin upp úr miðjum september og þegar veiðunum var hætt
21. nóvember sl. var aflinn samtals orðinn 419 túnfískar eða
samtals rúm 53 tonn. Áætlað aflaverðmæti var þá um 130
milljónir króna og því er ekki óvarlegt að ætla að skipin þrjú
hafí náð að veiða um 1300 túnfíska, samtals tæp 150 tonn, að
verðmæti um 340 milljónir íslenskra króna innan landhelginn-
ar.
Túnfiskveiðiskipið Tokuju Maru stundaði veiðaríiandhelginni til 21. nóv.:
Stefán Lárus Pálsson við Tokuju Maru í Reykjavíkurhöfn
veiðieftirlitsmaður um borð í skip-
inu og hér á eftir greinir hann frá
gangi veiðanna eins og þær komu
honum fyrir sjónir.
Nýi skipstjórinn hafði
trú á veiðunum
Tokuju Maru lét úr höfn í Japan
3. ágúst sl. og var skipið komið til
Reykjavíkur 15. september til þess
að ná í Stefán og veiðileyfið vegna
túnfiskveiðanna. Tokuju Maru er
fimm ára gamalt skip og var það í
klössun í Japan. Skipið var smíðað
til veiða á suðlægum slóðum og
það var því frekar kalsasöm vist
sem beið áhafnarinnar hér á norð-
Túnfiskur dreginn á vigtina á dekki skipsins
— rætt við Stefán Lárus Páisson veiðieftiriitsmann
kum eigendum og áhöfn
innilega til hamingju með
bátinn. Sínus ehf. sá um
= mm === uppsetningu og frágang á
jfiyyj loftnetum-siglinga og
fiskileitartækjum.
RAftlNOA-, SI6LINEA- 0G FISKILEITART/EKI
Grandagarði 1a • 101 Reykjavík
SIMI: 552 8220 • FAX: 552 8226
aflabrögðin mjög köflótt. Suma
dagana var aflinn lítill sem enginn
en þess á milli fengum við alveg
þokkalegan afla, segir Stefán en
hann segir skipið hafa unnið sig
austur eftir út undir mörk fslensku
og færeysku landhelginnar. Lítið
var gert af því að fara suður fyrir
landhelgismörkin og voru veiðarn-
ar aðallega stundaðar á milli 61° og
61°30/ norður lengdar. Alls staðar
fékkst einhver afli þótt dagamunur
væri á veiðunum.
— Við fengum töluvert af stór-
um háfi, allt að tveggja metra löng-
um, sem aukaafla með túnfis-
knum. Það kom ekki á óvart en
hissa varð ég þegar við fórum að fá
sel á línuna. Þetta voru aðallega
vöðuselir og eins fengum við einn
stóran landsel og svo stærðar rost-
ung. Ég veit að þetta hljómar ótrú-
lega en skrýtnast var að fá rostung
á línuna svona sunnarlega enda
halda þessir selir sig aðallega á
heimsskautasvæðum. Sjómönnun-
um var mjög illa við þennan afla.
Þegar selirnir komu á línuna þá
ákölluðu indónesísku undirmenn-
irnir heilaga Maríu og krossuðu sig
í bak og fyrir áður en þeir skáru á
taumana og Japönunum var
greinilega illa við þennan auka-
afla, segir Stefán en hann segir
annan aukaafla ekki hafa verið
Fengu vöðuseli, landsel
og rostung á línuna!
Áhöfn japanska skipsins eyddi
ekki tímanum til ónýtis því skipið
hélt samdægurs frá Reykjavík og
var línan lögð 16. september á
svæði sem er um 140 mílur beint
suður af Vestmannaeyjum.
— Við fengum hálft annað tonn
af túnfiski í fyrstu lögninni eða alls
12 fiska og menn voru því bjartsýn-
ir á framhaldið. Hins vegar voru
Línan lögð. Afkastagetan er ótrúleg. Hver taumur er 40 metra langur og
þar af eru 13 metrar úr grönnu efni en 27 metrar eru úr sverara girni. Blý
er haft á fjórða hverjum taumi og er valdur smokkfiskur notaður sem
beita
urslóðum. Hin túnfiskveiðiskipin
tvö, sem leyfi höfðu til veiða í ís-
lenskri landhelgi, hófu veiðar
seinni hluta sumars en þrátt fyrir
að komið væri fram í september
var mikill áhugi fyrir því að nýta
leyfið sem Tokuju Maru hafði
fengið. Skipið var hér við veiðar í
um 20 daga í fyrra en árangurinn
var takmarkaður en að sögn Stef-
áns hafði hinn nýi fiskiskipstjóri á
Tokuju Maru mikla trú á að hægt
væri að ná góðum árangri þrátt
fyrir að liðið væri á haustið.
— Þetta er hörkukarl. Hann er
búinn að stunda túnfiskveiðarnar í
yfir 25 ár og nú var hann búinn að
ná því takmarki að verða skipstjóri
og vildi sanna sig sem slíkur, segir
Stefán.
Það var hald manna að ekki
þýddi að stunda túnfiskveiðarnar
lengur en fram í byrjun október en
óhætt er að fullyrða að áhöfn Tok-
uju Maru hafi afsannað þá kenn-
ingu því skipið fékk mjög góðan
afla í landhelginni í nóvember-
mánuði. Stefán Lárus Pálsson var
Fengu 1,5-2,3 tonn á dag í
aflahrotu um miðjan nóvember