Fiskifréttir


Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 22

Fiskifréttir - 19.12.1997, Blaðsíða 22
FISKIFRETTIR föstudagur 19. desember 1997 22 . tímum þotti s • vj-yí að skipin hrfðu . Mannslífin tianna komu a , j.argrj \ífsbarattu. Fy nreskum voru fórnarkostnaður^harðr^ ^ brak fannst^b^. menn minntir a ^rum. Fundur ra ^ er r\fjuð á síðustu áratugum. --------- Eins og fram hefur komið í frétt- um fékk Helga RE-49 óvenjulegan „afla“ í vörpu sína er skipið var að toga í kantinum á Halamiðum um miðjan nóvember sl. Upp kom reikháfur af togara, sem skipverjar tóku um borð og komu með til Reykjavíkur. Reykháfurinn var ótrúlega heillegur og var meira að segja unnt að greina á honum merkingar. Það var mönnum eðli- lega nokkur ráðgáta í fyrstu af hvaða skipi reykháfurinn væri og varleitað til HannesarÞ. Hafstein, fyrrverandi forstjóra Slysavarnafé- lags Islands, sem er flestum fróðari um sjóslys hér við land á síðustu áratugum. Hannes segist strax hafa fengið hugboð um að reyk- háfurinn væri af breska togaranum Goth, sem týndist um áramótin 1947-1948. Hugboð hans reyndist rétt og hægt var að færa á það sönnur að reykháfurinn væri af skipinu. Þar með var fundin lausn á fimmtíu ára ráðgátu og vitað nokkurn veginn hvar togarinn fórst en fram til þessa hafði enginn vitað hver raunveruleg örlög skips og 21 manns áhafnar hefðu orðið. Það eina, sem var vitað, að skipið hvarf með manni og mús í veiði- ferð til íslands. Sagan vöruð slysum og óhöppum Allt frá því að togarinn Aquar- ius frá Grimsby hóf veiðar hér við land árið 1891, fyrstur breskra tog- ara, og til þess tíma að togveiðum Breta lauk hér, var saga þessa veiðiskapar vörðuð slysum og óhöppum. Engin leið er að segja með vissu hversu margir breskir togarasjómenn týndu lífi á Is- landsmiðum og við íslandsstrend- ur en óhætt er að fullyrða að þeir voru mjög margir. Fyrr á árum gerðu menn sér ekki mikla rellu út af því þótt eitt og eitt skip hyrfi með manni og mús. Það var eins og málið kæmi aðstendendum mann- anna, sem fórust, og útgerð við- komandi skips einum við. Fjöl- miðlar í Bretlandi gátu þess í fáum orðum að skip og menn hefðu týnst og á Islandi vissu menn ekki um skipskaðana nema þá sem urðu við ströndina, eða þá þegar hraktir menn komust til lands á björgunar- bátum. Á seinni árum hafa breskir sagnfræðingar og rithöfundar hins vegar tekið sig til og kannað nokk- uð þennan þátt útgerðarsögu Breta. Þar fer fremstur í flokki maður að nafni Alec Gill, sem tók sér fyrir hendur að rannsaka og skrá örlög breskra togara og tog- arasjómanna frá því að eiginleg togaraútgerð hófst í Bretlandi árið 1835. Hefur hann sent frá sér at- hyglisverðar bækur um þau mál og koma m.a. fram í þeim nöfn skipa sem fórust við ísland en ekki var vitað um hérlendis áður. Þótt saga togveiða Breta hér við land einkenndist löngum af mikl- um yfirgangi og jafnvel ófyrirleitni þeirra, og þá sérstaklega á þeim tímum sem Islendingar áttu ekki sjálfir skip til að verja landhelgi sína, þá gerðu íslendingar jafnan allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga og hjálpa ef skip lentu í nauðum. Sagan geymir margar frásagnir af hetjudáðum björgun- armanna sem hikuðu ekki við að leggja líf sitt í hættu þegar koma þurfti nauðstöddum til hjálpar. Frægasta björgunarafrekið er tví- mælalaust björgunarafrekið við Látrabjarg í desember árið 1947, fyrir fimmtíu árum, en þá tókst að bjarga 12 mönnum af togaranum Dhoon frá Fleetwood, sem strand- aði undir bjarginu, við ótrúlega erfiðar aðstæður. Tæpu ári síðar var unnið annað mikið björgunar- afrek er togarinn Sargoon frá Hull strandaði undir Hafnarmúla við Patreksfjörð. Við sögu þeirrar björgunar komu einnig flestir þeirra sem björguðu mönnunum af Dhoon og það sem einstætt er við þessa björgun er það að Oskar Gíslason kvikmyndatökumaður var á staðnum og náði að mynda björgun síðustu mannanna sem náðust lifandi úr skipinu. Er sú mynd vafalaust meðal einstæðustu heimildarmynda sem til eru. Goth ferst við Vestfírði Tæplega hálfum mánuði eftir strand Sargoons við Hafnarmúla, þar sem ellefu menn af áhöfn skipsins týndu lífi, fórst togarinn Goth með allri áhöfn. Saga þess sjóslyss virðist keimlík sögu margra annarra slíkra slysa á þess- um árum. Enginn vissi hvað kom fyrir, hvenær eða hvar skipið fórst. Það hvarf einfaldlega með manni og mús. Á þessum árum voru breskir fjölmiðlar reyndar farnir að fjalla töluvert um sjóslys en vera má að jólatilstandið hafi orðið til þess að frásagnir af örlögum Goths voru bæði fáar, stuttar og slitrótt- ar. Þótt loftskeytamenn væru um borð í öllum togurum á þessum tíma voru samskipti milli skipa og skipa og lands ekki mikil. Liðu stundum margir dagar án þess að skipin létu frá sér heyra og átti það ekki síst við meðan þau voru að veiðum. í mörgum tilvikum var það nánast leyndarmál hvar þau héldu sig og hvernig vegnaði við veiðarnar. Það var helst í illviðrum eða þegar skipin voru á siglingu og þurftu að hafa samband við út- gerðir sínar sem loftskeytatækin voru notuð. Á fyrstu árunum eftir heimsstyrjöldina var algengt að til starfa loftskeytamanna réðust kor- ungir menn sem höfðu litla sem enga menntun eða reynslu í fjar- skiptum og kunnu jafnvel ekki að nota hinn fátæklega tækjabúnað sem var í skipunum. Meginskýr- ingin á skorti á loftskeytamönnum var sú að stríðið tók háan toll af þessari stétt og ekki hafði tekist að mennta nýja menn í stað þeirra sem féllu í stríðinu. íslenskir fjölmiðlar fjölluðu ekki mikið um hvarf Goths á sín- um tíma. Þegar skipsins var sakn- að og leit að því hófst eftir áramót- in kom í ljós að síðast hafði heyrst til skipsins, svo öruggt gæti talist, 14. desember. I sjórétti, sem síðar fór fram við The Merchant Shipp- ing Act, kom reyndar fram að loft- skeytamenn á togurum sem voru við Vestfirði töldu sig hafa heyrt til % Togarinn Goth frá Fleetwood. Fórst við Island með allri áhöfn í desember 1948. Það var ekki fyrr en tæpum fimmtíu árum síðar sem í ljós kom hvar hin vota gröf skips og áhafnar var. — rifjuð upp saga nokkurra breskra togara sem horfíð hafa á íslandsmiðum á síðustu áratugum Goths síðar en framburður þeirra var svo mikið misvísandi að réttur- inn taldi hann ekki marktækan. Daginn, sem síðast heyrðist til Goths, var að bresta á með illviðri fyrir Vestfjörðum og margir togar- ar leituðu vars undan því inn á Að- alvík og undir Grænuhlíð. Elliott, skipstjóri á Goth, hafði þá sam- band við starfsbróður sinn á togar- anum Lincon City frá Grimsby og tilkynnti að hann ætlaði að leita landvars. Ekki mun skipstjórinn hafa gefið upp staðarákvörðun en vitað var að hann hafði verið að veiðum á Halamiðum þar sem sést hafði til hans. Eftir þetta heyrðist ekkert frá Goth. Það segir sína sögu um andvara- og sambandsleysið að Goth var ekki saknað eða leit hafin fyrr en um hálfum mánuði eftir að síðast heyrðist til togarans en þá var komið fram yfir þann tíma sem skipið átti að koma til heimahafnar ef allt hefði verið eðlilegt. Utgerð Goths kom boðum til breskra tog- ara, sem voru að veiðum á Is- landsmiðum, og hafði einnig sam- band við Geir Zoéga, umboðs- mann breskra togara á íslandi, tilkynnti hvernig komið var og óskaði eftir aðstoð við leit að skip- inu. Þegar hjálparbeiðnin barst til Islands munu breskir togarar hafa verið búnir að svipast um eftir Goth án árangurs. Ekki mun hafa verið um mikla eða skipulagða leit að ræða en þess er þó getið í Morg- unblaðinu að 6. janúar hafi TF- Geysir, flugvél Loftleiða hf., leit- að um tvær og hálfa klukkustund út af Vestfjðrðum og að strand- lengjan á því svæði, þar sem búist var við að togarinn hefði leitað landvars, yrði könnuð. Þótt ekki kæmi það fram í fjölmiðlum á þess- um tíma þá var um tíma álitið að skipið hefði strandað skammt utan Aðalvíkur en þar sáust miklar trossur í fjörunni. Þegar þær voru kannaðar kom í ljós að þær voru gamlar og búnar að vera í fjörunni miklu lengur en skipsins hafði verið saknað. I lengstu lög vonuðu menn að sambandsleysið við Goth orskað- ist af því að loftskeytatæki skipsins hefðu bilað eða loftnet slitnað nið- ur. Skipið myndi fyrr eða síðar birtist í heimahöfn sinni. En dag- arnir liðu og vonirnar urðu að engu. Ummiðjan janúar var skipið talið af með allri áhöfn. Það var svo ekki fyrr en hálfri öld síðar er reykháfur togarans kom í vörpu Helgu að vitað var hvar skipið fórst. Enginn vegur er að geta sér til um af hvaða orsök- um skipið fórst en leiða má líkur að því að það hafi gerst um það leyti sem fyrirhuguð sigling í landvar átti að hefjast. Slíkt er miklu lík- legra en að skipið hafi komist í landvar og verið komið aftur á miðin er slysið varð, einkum vegna þess að verður og sjólag á þessum slóðum var skaplegt næstu daga og allmargir breskir togarar þarna að veiðum og því líklegt að einhver þeirra hefði orðið Goths var ef skipið hefði verið ofansjávar. Vera má einnig að skipstjórinn á Goth hafi hætt við þá fyrirætlun sína að halda í landvar og kosið að halda sjó úti á miðunum þess í stað. Ef svo hefur verið er líklegt að mikil ísing hafi hlaðist á skipið á skömm- um tíma og það farið niður. Lorella ferst Þegar saman fara fárviðri, vont sjólag og ísing geta örlög skipa ráð- ist á skammri stundu. Það kom glögglega í ljós er bresku togararn- ir Roderigo og Lorella frá Hull fór- ust með allri áhöfn, samtals 40 mönnum, við ísland 26. janúar 1955. Báðir voru þessir togarar nýlegir. Lorella H 455 var smíðað- ur árið 1947 og Roderigo H135 var enn nýrra skip, smíðað árið 1950. Báðir togararnir þóttu góð sjóskip og á þeim voru þrautreyndir skip- stjórnarmenn og áhafnir sem stundað höfðu veiðar við Island um árabil og þekktu því vel að- stæður. Togararnir höfðu báðir eins fullkomin siglingatæki og þá þekktust og um borð í þeim voru gúmbjörgunarbátar sem þá voru ekki orðnir algeng björgunartæki um borð í skipum. Samt sem áður gerðist það á örskammri stundu að skipin yfirhlóðust af ísingu og hurfu í hafið. Munurinn á örlögum þeirra og Goths var sá að á öldum ljósvakans var fylgst með síðustu mínútunum sem þau héldust of- ansjávar og öllum þeim, er til FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997 23 Texti: Steinar J Lúðvfksson heyrðu, bæði íslendingum og út- lendingum, munu þær mínútur minnisstæðar. Óveðrið, sem varð Lorella og Roderigo, að tjóni skall fyrirvara- lítið á að morgni 26. janúar. Fjöl- margir togarar, bæði íslenskir og erlendir, voru að veiðum út af Vestfjörðum en þar höfðu afla- brögð verið góð fyrstu daga ársins en tíð hins vegar mjög risjótt og frátafasöm. Þegar skipstjórnar- menn sáu loftvog hríðfalla og heyrðu slæma veðurspá frá Veð- urstofu íslands létu flestir hífa og héldu af stað ílandvar. Voru marg- ir togarar komnir í var undir Grænuhlíð um og upp úr hádegi. Þeir, sem þangað komust, prísuðu sig sæla því óveðrið hélt stöðugt áfram að magnast og samkvæmt upplýsingum, sem síðar komu fram, var talið að vindhraði hefði um tíma komist í 14 vindstig, eða ramasta fárvirðri. Jafnframt byrj- aði að snjóa þannig að skyggni var lítið. Þótt flestir togararnir væru að veiðum á hinum hefðbundnu Halamiðum héldu nokkrir breskir togarar sig enn norðar. Voru þeir um 80-90 sjómílur norðaustur af Horni. Þar hafði veður verið verra en þegar sunnar dró og keyrði um þverbak þegar leið undir hádegi 26. janúar. Meðal þessara togara voru Lorella og Roderigo, auk Conan Doyles, Lancellu og King- ston. Eftir að veður tók að versna höfðu togarar þessir oft samband sín á milli og einnig voru þeir í loftskeytasambandi við breska togara sem voru á leið eða komnir í landvar. Var auðheyrt af skeytum þeirra að háskasjór var kominn á þessar norðlægu slóðir og ísing tekin að setjast á skipin. Við hana varð ekki ráðið þar sem engir möguleikar voru að berja af skip- unum sökum hafróts og dimm- viðris. Lorella var nokkru norðar og austar en hinir togararnir og um klukkan hálftvö sendi skipið skyndilega út neyðarkall. í því var greint frá því að það væri kom- ið með mikla slagsíðu, tæki á sig sjó og ísing bættist stöðugt á það. Var auðheyrt á skeytunum að mik- il hætta var á ferðum. Togararnir, sem voru á þessum slóðum, svör- uðu þegar og voru í sambandi við Lorella í um það bil tíu mínútur. I síðasta kalli Lorella sagði loft- skeytamaðurinn að skipið væri komið á hliðinna og að endalokin virtust framundan. Kallaði hann á hjálp hvað eftir annað en síðan rofnaði sambandið við skipið og ekkert heyrðist frá því framar. Islensku skipin, sem fylgdust með skeytasendingunum frá Lor- ella, gerðu Slysavarnafélagi Is- lands í Reykjavík þegar aðvart. Þar var Henry A. Hálfdánarson á vakt og voru hans fyrstu viðbrögð þau að hafa samband við Varnar- liðið á Keflavíkurflugvelli og óska eftir því að flugvélar þaðan yrðu sendar til leitar ef þess væri nokkur kostur. Þegar þetta gerðist var enn sæmilegt veður syðra. Áhafnir flugvéla á Keflavíkurflugvelli voru kallaðar út og vélarnar búnar til brottferðar meðan ástand og veð- urhorfur voru kannaðar. Voru menn sammála um það að þótt vél- arnar kæmust á slóðir Lorella yrði THE SERVICE IN MEMORY OF THOSE WHO LOST THEIR LIVES IN THE HULL TRAWLERS St. Romanus Kingston Peridot Ross Cleveland HOLY TRINITY CHURCH Kingiton upon Hull Friday, 8th March, 1968 3 p.m. 8. mars 1968 var haldin minningar- athöfn um mennina sem fórust með St. Romanus, Kingston Peridot og Ross Cleveland í Holy Trinty kirkj- unni í St. Andrews hverfinu í Hull. Dreifimiðinn, sem myndin er af, var borinn þar í hvert hús og safn- aðist gífurlegur mannfjöldi að kirkjunni meðan athöfnin fór þar fram. lítið hægt að gera annað en að fylgjast með og veita skipverjum uppörvun, ef þeir hefðu komist í björgunarbáta. Eftir nokkrar vangaveltur var afráðið að ein flugvél færi en menn gerðu sér full- ljóst þegar í upphafi að mjög tví- sýnt væri að hún kæmist á svæðið. Fór vélin í loftið um klukkan hálf- fjögur. Strax eftir að fyrsta neyðarkallið barst frá Lorella ráðu skipstjórarn- ir á togurnum, sem voru næstir hinu nauðstadda skipi, ráðum sín- um. Lancella og Roderiog voru næstir slysstaðnum. Roderigo þó sýnu næst. Ekkert hik var á skip- stjóra Roderigo. Hann lagði strax af stað til leitar og reiknaði með að vera kominn á staðinn sem Lorella gaf upp eftir um það bil tvær klukkustundir. Var Lorella eftir þetta í stöðugu loftskeytasam- bandi, fyrst við bresku togarana en síðan einnig við björgunarflugvél- ina frá Keflavíkurflugvelli. Greindu togaramenn frá því að á þessum slóðum væri mikið illviðri, þungur sjór og að ísing væri farin að hlaðast á skipið. Roderigo var nýlega kominn á Islandsmið og var með nær tómar lestar þannig að skipið var hátt á sjónum og tók mikið á sig. Virtist hver sletta, sem kom inn á skipið, samstundis breytast í íshellu. Síðustu mínútur Roderigos Laust fyrir klukkan fjögur til- kynnti loftskeytamaðurinn að ástandið um borð færi versandi og að skipið væri orðið þungt í sjónum og lægi undir áföllum. Samt sem áður hélt Roderigo áfram á hægri ferð í áttina að slysstaðnum. Klukkan 16:12 sendi skipið sitt síð- asta skeyti. Með furðulega rólegri röddu kallaði loftskeytamaðurinn nokkrum sinnum „We are heeling right over - going over“ („Skipinu er að hvolfa“). Rödd hans þagnaði síðan skyndilega og ekkert heyrð- ist nema urg og truflanir í talstöðv- unum. Þrátt fyrir afleit flugskilyrði og svo gífurlega ókyrrð í lofti tókst flugvélinni frá Keflavíkurflugvelli að komast alla leið á staðinn þar sem síðast var vitað af Lorella og Roderigo. Þá var tekið að dimma og öll leitarskilyrði eins erfið og hægt var að hugsa sér. Þó sveimaði flugvélin yfir svæðinu í tæpar tvær klukkustundir og þótt flugmenn- irnir væru ekki margorðir um ástandið var augljóst að þeir áttu oft fullt í fangi með að halda vél- inni á réttum kili. Var komið sannkallað skammdegismyrkur á svæðinu þegar þeir hættu leit og sneru aftur heim á leið. Gekk flug- ið suður vel og lenti vélin á Kefla- víkurflugvelli heilu og höldnu um kvöldið. Jafnskjótt og hún var lent höfðu talsmenn Varnarliðsins samband við Henry A. Hálfdánar- son, gáfu honum skýrslu um ferð- ina og lýstu sig reiðubúna til þess Framh. bls. 25 Togarinn Kingston Peridot frá Hull. Nákvæmlega 13 árum eftir að Lorella og Roderigo fórust út af Vestfjörðum hvarf þessi togari út af Norðurlandi. Síðar kom í ljós að hann hafði sokkið á Skjálfandaflóa.

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.