Fiskifréttir


Fiskifréttir - 15.10.2004, Blaðsíða 1

Fiskifréttir - 15.10.2004, Blaðsíða 1
ISSN 1017-3609 MULTI-ICÉ Fjölískerfi STG ÍSVÉLAR ■ Fosshálsi 27 - 110 Rvk. - S. 587 6005 - www.stg.is Endurvinnanleg vörubretti Evrópubretti og Iðnaðarbretti í hæsta gæðaflokki BORGARPLAST www.borgarplast.is ÍSTISO 9001 Huginn greiddi hæstu launin Útgerðarfélagið Huginn í Vest- mannaeyjum, sem gerir út sam- nefnt uppsjávarvinnsluskip, greiddi hæst meðallaun útgerð- arfélaga á árinu 2003, sam- kvæmt úttekt tímaritsins Frjálsrar verslunar, eða 7.440 þúsund krónur fyrir ársverkið. Það samsvarar 620 þús. krónum á mánuði. Huginn greiddi jafn- framt næsthæstu meðallaunin á landinu öllu — næst á eftir Kaupfélagi Eyfirðinga svf. #1SÚ var tíðin að útgerðarfélög röðuðu sér í öll 20 efstu sætin á listanum yfir hæst meðallaun í landinu. A allra síðustu árum hafa önnur fyrirtæki, sérstaklega fjár- festingarfélög, farið að blanda sér í slaginn. Á árinu 2002 var staðan samt ennþá sú að af 16 efstu fyrir- tækjunum á listanum voru 14 sjáv- arútvegsfyrirtæki. Þetta breyttist mjög árið 2003, því þá voru aðeins 9 útgerðir meðal þeirra 20 sem greiddu hæst meðallaun á landinu. Sjá nánar bls. 3. Það lyftist svo sannarlega brúnin á körlunum á kolmunnaskipunum seint í síðustu viku þegar fréttist af kolmunna í veiðanlegu magni úti af Bakkaflóa, en algjör ládeyða hafði þá verið í þessu fiskiríi um tveggja mánaða skeið. Þótt heldur rólegra hafi verið yfir veiðunum í þess- ari viku eru menn vongóðir um að eyðimerkurgangan sé að baki og nú fari kolmunninn að gefa sig aftur á eðlilegan hátt. Myndin var tek- in um borð í Hólmaborgu SU um síðustu helgi eftir að lifnaði yfir veiðunum. (Mynd/Fiskifréttir: Hlynur Ársælsson). Kolmunnastofninn í NA-Atlantshafi: Mælist rúmar 10 milljónir tonna — nýliðunin er góð og stofninn í jafnvægi ef veiðar fara ekki fram úr áætlun á þessu ári Kolmunnastofninn á ætissvæðunum í NA-Atlantshafi mældist rúmar 10 milljónir tonna í alþjóðlegum mælingum sem fram fóru í maí-júní en niðurstöður mælinganna voru birtar nýlega. Þetta er um 10% lakari mæling en í fyrra en sá munur telst ekki verulegur, að því er Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, sagði í samtali við Fiskifréttir. Kolmunninn var mældur frá landgrunnsbrúninni við ísland, suður fyrir Færeyjar, austur að landgrunnsbrúninni við Noreg og langt norður fyrir Jan Mayen. Sveinn sagði að kolmunni hefði fundist á stórum hluta þessa svæð- is en þéttastur hefði hann verið á þremur svæðum, þ.e. austur af ís- landi, rétt suður af Færeyjum og á Lófótensvæðinu við Noreg. Stærsti kolmunninn fannst á íslenska haf- svæðinu og nyrst á útbreiðslusvæð- inu en smæsti kolmunninn fannst í austurhluta Noregshafs. Fram kom hjá Sveini að sjórinn hefði ekki verið eins hlýr í ár og árið 2003. Þá hefði verulega minni áta verið á hafsvæðinu að þessu sinni en í fyrra. Það gæti hugsan- lega verið skýringin á því hvað kolmunninn hefði verið óstöðugur á íslenska hafsvæðinu. Sveinn var spurður hvernig hann mæti styrk stofnsins í ljósi þessara mælinga? „Mælingarnar sýndu að 2000 ár- gangurinn er geysilega stór eins og áður hefur komið fram. Þetta er stærsti árgangurinn sem við höfum mælt hingað til. Þá kom einnig fram að 2003 árgangurinn virðist Dreifing kolmunnans. vera stór og mun stærri en 2002 ár- gangurinn. Nýliðunin virðist þannig vera mjög góð ennþá eins og hún hefur reyndar verið síðan 1995. Stofninn virðist því vera í jafnvægi núna miðað við þessa ný- liðun ef veiðar fara ekki fram úr þeim 1.800 þúsund tonnum sem gengið er út frá að veidd verði árið 2004,” sagði Sveinn. Eins og fram kom í Fiskifréttum í sumar mældust 2,2 milljónir tonna af kolmunna á Árna Frið- rikssyni á íslenska hafsvæðinu í júlí. Heildarlausn á samhæfðum vélbúnaði Samstarfsaðili Rolls-Royce (®t = HÉÐINN = I Stórás 6 • IS-210 Garðabæ Sími: 569 2100 • Fax: 569 2101 • www.hedinn.is

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.