Fiskifréttir - 15.10.2004, Blaðsíða 2
2
FISKIFRETTIR 15. október 2004
SJAVARUTVEGUR
KARLINN I BRUNNI
Hlutfallsleg skipting
ýsuafla eftir
útgerðarflokkum
- fiskveiðiárið 2003/2004
Smábátar á aflamarki 2%
Heimild: Fiskistofa
FISKMARKAÐIR
Allir markaðir (Islandsmarkaður) dagana 3.-9. okt. 2004 (Tölur fyrir slægðan fisk eru á undan tölum fyrir óslægðan fisk] Meðal- Lægsta Tegund Magn verð verð kg kr./kg kr./kg Hæsta verð kr./kg
ÞORSKUR 93.755 167,29 61,00 353,00
ÞORSKUR 278.492 151,93 75,00 284,00
ÝSA 136.126 107,68 48,00 175,00
ÝSA 315.106 98,10 57,00 187,00
UFSI 170.146 38,63 0,00 62,00
UFSI 11.978 36,57 5,00 49,00
LÝSA 4.406 58,85 33,00 68,00
LÝSA 4.931 50,32 10,00 55,00
GULLKARFI ósl. 70.538 73,31 5,00 102.00
LANGA 26.895 98,87 50,00 113,00
LANGA 33.389 87,12 6,00 91,00
BLÁLANGA 7.350 95,87 38,00 116,00
BLÁLANGA 224 85,25 30,00 92,00
KEILA 60.308 65,99 15,00 80,00
KEILA 28.727 59,72 10,00 68,00
STEINBÍTUR 52.150 134,19 27,00 148,00
STEINBÍTUR 13.742 113,60 54,00 134,00
TINDASKATA ósl. 8.613 7,58 0,00 18,00
HLÝRI 60.513 130,33 78,00 166,00
HLÝRI 1.605 114,84 88,00 132,00
SKÖTUSELUR 32.361 273,87 0,00 300,00
SKÖTUSELUR 37 210,81 180,00 230,00
SKATA 881 143,45 9,00 185,00
SKATA 22 34,00 34,00 34,00
HÁFUR 48 1,15 0,00 5,00
HÁFUR 279 24,51 0,00 35,00
HÁKARL sl. 369 48,00 48,00 48,00
ÓSUNDURLIÐAÐ 487 45,00 45,00 45,00
ÓSUNDURLIÐAÐ 156 60,00 60,00 60.00
LÚÐA 4.890 478,45 130,00 657,00
LÚÐA 155 511,85 314,00 606,00
GRÁLÚÐA sl. 753 197,78 182,00 210,00
SKARKOLI 37.713 189,19 50,00 268,00
SKARKOLI 65 178,00 178,00 178,00
ÞYKKVALÚRA sl. 7.464 256,62 21,00 359,00
LANGLÚRA 7.788 98,68 5,00 100,00
LANGLÚRA 3.337 87,26 5,00 90,00
STÓRKJAFTA sl. 1 0,00 0,00 0,00
SANDKOLI 4.537 68,72 27,00 70,00
SANDKOLI 727 33,74 33,00 70,00
SKRÁPFLÚRA 4.432 54,45 30,00 65.00
SKRÁPFLÚRA 188 50,00 50,00 50,00
SV-BLAND ósl. 22 60,00 60,00 60,00
SANDHVERFA sl. 55 650,00 650,00 650,00
KINNFISK/ÞORSKU 110 287,45 287,00 292,00
LITLIKARFI ósl. 57 7,00 7,00 7,00
LUNDIR/ÞORSK 43 297,14 291,00 299,00
URRARI ósl. 15 121,00 121,00 121,00
GELLUR 365 614,12 592,00 688,00
GELLUR 50 606,00 606,00 606,00
NÁSKATA sl. 153 22,54 6,00 55,00
UNDÞORSKUR 23.555 102,21 64,00 126,00
UNDÞORSKUR 26.539 87,16 10,00 108,00
UNDÝSA 11.970 79,99 59,00 98,00
UNDÝSA 18.414 61,26 10,00 80,00
LAX sl. 2.706 282,19 142,00 330.00
FLÖK/ÝSA 285 150,00 150,00 150,00
HVÍTASKATA sl. 18 16,00 16,00 16,00
LIFUR sl. 18 30,00 30,00 30,00
UNDUFS ósl. 340 12,00 12,00 12,00
1 570.399 111,58
Eiríkur Þóróar-
son, skipstjórí á
Björgu Hauks ÍS
Mikil fiskgengd hefur verið
fyrir Norðurlandi í sumar og
haust og margir smábátar í
krókaaflamarkskerfinu hafa
gert það gott á meðan lítill afii
hefur fengist víða annars staðar
á línuna. Margir bátar hafa því
flutt sig frá Suðurnesjum,
Breiðafirði og Vestfjörðum og
landa nú á höfnum fyrir norð-
an, svo sem á Drangsnesi,
Skagaströnd, Siglufirði og víð-
ar. Björg Hauks ÍS er í þeirra
hópi og hefur hún landað á
Drangsnesi frá því í ágúst í
sumar.
„Okkur hefur gengið þokka-
lega. Við erum aðallega að eltast
við ýsu því við eigum tiltölulega
mikinn ýsukvóta. Um 2/3 hlutar
kvóta okkar er ýsa enda vorum
við mjög duglegir að eltast við
hana á meðan ýsuveiðar voru
frjálsar,” sagði Eiríkur Þórðarson,
skipstjóri á Björgu Hauks IS í
samtali við Fiskifréttir er rætt var
við hann um aflabrögðin. Eiríkur
er skipstjóri á bátnum með Krist-
jáni Andra Guðjónssyni. Um 130
tonn af ýsukvóta eru á Björgu
Hauks ÍS miðað við slægt. í sept-
ember veiddu þeir rúm 40 tonn af
ýsu í 16 róðrum. Þeir fengu ekki
nema um 10 tonn af þorski með
og sagði Eiríkur að þeir væru
mjög ánægðir með þá samsetn-
ingu aflans.
Óvenjuleg ýsugengd
Þeir á Björgu Hauks IS hafa
lagt línuna vítt og breitt um
Húnaflóasvæðið, allt frá Stein-
grímsfirði norður undir Selsker.
Einna best var veiðin á svæði frá
Svartfossdýpi austur að Grímsey
í Steingrímsfirði en því svæði var
nýlega lokað fyrir línuveiðum
vegna undirmálsþorsk. Besti túr-
inn þeirra í haust var í kringum
4,5 tonn á 30 bala. Eiríkur sagði
Björg Hauks ÍS í höfn. Myndin er tekin fyrir lengingu. (Mynd: Hafþór Hreiðarsson).
Ekki þörf á
að loka fyrir
ýsuveiðar
— þótti undirmálsþorskur veiðist
hjá öðrum bátum
að báturinn bæri auðveldlega 30
bala eftir að hann var lengdur ný-
lega í 11,5 metra og mælist hann
nú 11,3 brúttótonn að stærð. „Það
er mjög óvenjulegt að ýsa veiðist á
þessum slóðum á þessum tíma. Við
höfum ekki verið hér áður ef frá er
talinn einn mánuður að sumri til
fyrir mörgum
árum. Þá höfum
við stundað hér
grásleppuveiðar.
Með hlýnandi sjó
virðist það svæði
færast til sem ýs-
unni líkar best að
vera á.”
Hvenær verða
sjóarar sáttir?
Fram kom hjá
Eiríki að ýsan væri
mjög góð. Um 50-
60% hennar eru
blönduð stór ýsa.
Þótt stærðin væri góð mætti ýsan
samt vera holdmeiri, en hún er þó
heldur að braggast miðað við það
sem hún var fyrr í haust. Aflinn af
Björgu Hauks ÍS er boðinn upp á
fiskmarkaði á Drangsnesi í gegn-
um Fiskmarkað Suðurnesja, ísa-
firði. Meðalverðið hefur verið í
kringum 100 krónur á kíló í haust
,,Fiskifræðingar
eru ekki ennþá
farnir að skilja
það að við get-
um að verulegu
leyti stjórnað því
hvaða tegundir
verið er að veiða
með því að velja
réttu beituna og
rétta dýpið.”
fyrir ýsuna. Eiríkur var spurður
hvort hann væri sáttur við það
verð? „Við reynum að sætta okkur
við það. Það er að minnsta kost
mikill munur frá því verðið var
lægst í fyrra en þá fór það niður í
30-50 krónur á kíló. Annars er
þetta afstætt. Ég man að við vorum
ekki sáttir þegar
verðið fór niður í 200
krónur á kíló fyrir
tveimur til þremur
árum. Það þætti gott
verð í dag. Hvenær
verða sjóarar sáttir
við fiskverð? Það
verður aldrei!”
Ekki samráð
við sjómenn
Eins og nefnt er
hér að framan var
svæði í Steingríms-
firði lokað nýlega
fyrir línuveiðum. Ei-
ríkur sagðist vera mjög ósáttur við
þá ráðstöfun. „Við beitum með
sandsíli sem hentar ýsunni en
þorskurinn tekur síður og um 80%
af afla okkar er ýsa. Við erum
einnig að veiða á rneira dýpi en
línubátar sem stunda þorskveiðar,
eða á um 50 fóðmum. Einhver bát-
ur var síðan að veiðum hér með allt
aðra beitu en við notum og lagði
línuna upp á grunnvatni. Aflinn
hjá honum reyndist vera að tals-
verðu leyti undirmálsþorskur.
Gæslan greip til þess ráðs að loka
á þennan bát en um leið lokaði
hún á mig sem er að veiða á allt
öðru dýpi. Við erum hvattir til
þess að laga okkur að kerfinu og
leggja áherslu á að haga veiðum í
samræmi við þær tegundir sem
aflaheimildir okkar eru í. Við ger-
um það og náum góðum árangri.
Allt er í góðu lagi hjá okkur en þá
er svæðinu lokað og okkur sagt
að fara eitthvað annað. Ég er ekki
sáttur við það sérstaklega í Ijósi
þess að hjá mér voru mældir 60
þorskar og aðeins tveir þeirra
reyndust vera undir máli. Ég kalla
þetta ekki að veiðunum sé stjórn-
að í samráði við sjómenn.”
Teikna einhvern kassa
Eiríkur ítrekaði að þeim sám-
aði þessi vinnubrögð. „Fiskifræð-
ingarnir teikna einhvern kassa á
kortið án þess að spá nokkuð í
hlutina. Þeir eru ekki ennþá farnir
að skilja það að við getum að
verulegu leyti stjómað því hvaða
tegundir verið er að veiða með því
að velja réttu beituna og rétta dýp-
ið. Ég fór í fyrra með eftirlits-
manni frá Fiskistofu inn á svæði
sem hafði verið lokað um hríð
fyrir handfærum og línuveiðum.
Ég gat sagt honum fyrirfram hvað
mikið hlutfall af þorski kæmi á
línuna miðað við beitu og dýpi og
það gekk eftir. Kjarni málsins er
sá að það á ekki að loka á þá sem
hafa náð árangri í því að veiða ýsu
þótt undirmálsþorskur veiðist hjá
öðrum bátum. Við höfum verið í
sambandi við Landssamband
smábátaeigenda og meiningin er
að ræða við sjávarútvegsráðuneyt-
ið og Hafrannsóknastofnun um að
fá þessu breytt,” sagði Eiríkur.
Fiski
FRETTIR
Útgefandi: Framtiðarsýn hf. Mýrargötu 2 101 Reykjavík Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðjón Einarsson gudjon@fiskifrettir.is Ritstjórn: Sími: 569 6625 Fax: 569 6692
Ritstjórnarfulltrúi: Kjartan Stefánsson kjartan@fiskifrettir.is Sími: 569 6624 Fax: 569 6692
Auglýsingastjóri: Hertha Árnadóttir hertha@fiskifrettir.is Auglýsingar: Sími: 569 6623 Fax: 569 6692
Áskrift og innheimta:
Sími: 511 6622
Fax: 569 6692
Skip.is - fréttavefur Fiskifrétta
Eiríkur St. Eiríksson Sími: 569 6610
Fax: 569 6692
Prentvinnsla:
Gutenberg
Áskriftarverð fyrir hvert tölublað:
Greitt m. greiðslukorti: 371 kr/m.vsk
Greitt m. gíróseðli: 421 kr/m.vsk
Lausasöluverð: 495 kr/m.vsk