Fiskifréttir - 15.10.2004, Síða 3
FISKIFRÉTTIR 15. október 2004
3
FRÉTTIR
Huginn VE. (Mynd: Tryggvi Sigurðsson).
Huginn greiðir
hæstu launin
Utgerðarfélagið Huginn í Vestmannaeyjum, sem gerir út samnefnt
uppsjávarvinnsluskip, greiddi hæst meðallaun útgerðarfélaga á árinu
2003, samkvæmt úttekt tímaritsins Frjálsrar verslunar, eða 7.440
þúsund krónur fyrir ársverkið. Það samsvarar 620 þús. krónum á
mánuði.
Huginn var einnig efstur á þess-
um lista árið 2002 en þá voru með-
allaunin mun hærri eða 9.396 þús-
und krónur fyrir ársverkið eða sem
svarar 783 þús. kr. á mánuði. I öðru
sæti að þessu sinni er frystitogara-
útgerðin Stálskip í Hafnarfirði með
6.961 þús. kr. meðallaun fyrir árs-
verkið sem er litlu minna en árið
2002. Bergur-Huginn í Vestmanna-
eyjum er í þriðja sæti eins og árið
áður en meðallaunin lækka nokkuð
milli ára eins og hjá flestum út-
gerðunum á listanum.
Rétt er að leggja áherslu á að
verið er að tala um meðallaun fyrir
ársverk en ekki laun einstakra skip-
verja. Algengast er, að minnsta
kosti á vinnsluskipunum, að skip-
verjar fari ekki í allar veiðiferðirn-
ar. Þá er nauðsynlegt að taka fram
að listinn er ekki tæmandi því
skráning á hann er undir því komin
að fyrirtækin sjálf gefi upp tölur úr
rekstri sínum en á því getur verið
misbrestur. Auk þess má nefna að
margar minnstu útgerðirnar eru
ekki með í þessari úttekt og þar
gætu leynst háar launatölur sem
ekki komast hér á blað.
Hæstu meðallaun sjávarútvegsfyrirtækja 2003
(skv. úttekt Frjálsrar verslunar)
Meðal- Breyt. Bein
laun frá fyrra Ars- laun í
Fyrirtæki Sveitarfélag í þús. ári i % verk millj.
1. Huginn hf. útgerð Vestmannaeyjar 7.440 -7 25 186
2. Stálskip ehf. Hafnarfjörur 6.961 -2 56 390
3. Bergur - Huginn ehf. Vestmannaeyjar 6.911 -17 44 304
4. ísleifur ehf. Vestmannaeyjar 6.140 -28 15 92
5. Þorm. rammi - Sæberg hf. Siglufjörður 5.988 -10 256 1.533
6. Útgerðarfél. Frigg ehf. Reykjavík 5.742 -18 12 69
7. Skagstrendingur hf. Skagaströnd 5.712 -15 115 657
8. Haraldur Böðvarsson hf. Akranes 5.697 6 280 1.595
9. Þorbjörn Fiskanes hf. Grindavík 5.367 -8 287 1.540
10. Hraðfrystih. - Gunnvör hf Hnífsdalur 5.056 -14 180 910
11. Grandihf. Reykjavík 5.015 -21 338 1.695
12. Eskja (Hraðfr. Eskifj.) EskiQörður 4.910 -22 156 766
13. Humarvinnslan ehf. Þorlákshöfn 4.643 11 14 65
14. Loðnuvinnslan hf. Fáskr. Fáskrúðsfjörður 4.633 3 120 556
15. Síldarvinnslan hf. Neskaupstaur 4.501 1 374 1.683
16. ísfélag Vestmannaeyja hf. Vestmannaeyjar 4.501 -15 184 828
17. Skinney - Þinganes hf. Höfn 4.467 25 177 791
18. Siglfirðingur hf. Siglufjörður 4.460 45 5 22
19. Sólborg ehf Stykkishólmur 4.422 -21 9 40
20. Samherji hf. Akureyri 4.345 3 706 3.068
21. Fiskkaup hf. Reykjavík 4.275 10 40 171
22. Fiskmark. Suðurnesja hf. Njarðvík 4.234 5 32 136
23. Fiskvon ehf. Patreksfjörður 4.200 -18 10 42
24. Tangi hf. Vopnafjörður 4.187 -3 100 419
25. Vinnslustöðin hf. Vestmannaeyjar 4.163 -3 210 874
26. Garðar Guðm. hf. (Ólafsf.) Njarðvík 4.096 -50 25 102
27. Fiskmarkaður Vestm. Vestmannaeyjar 3.975 - 4 16
28. Fiskmarkaður íslands hf. Ólafsvík 3.892 2 36 140
29. Fiskiðjan Skagfirðing. hf. Sauðárkrókur 3.783 -4 176 666
30. Guðm. Runólfs. hf., útgerð Grundarljörður 3.627 13 83 301
31. Hraðfrystihús Helliss. hf. Hellissandur 3.509 -4 57 200
32. Sigurður Agústsson ehf. Stykkishólmur 3.309 -7 70 232
Smábátasiómenn
/ ■
Urval rekstrarvara fyrír
smábátaútgerð.
9
Upplýsingar í síma 560 3400
MKG há FRAMTAK
Nýjir bryggjukranar
• Lækkaö verö
• Innbyggð dælustöð
• Fljótleg uppsetning
• Lengri bóma - 4-7 m
• Fyrirferðarminni undirstaða
• Meiri lyftigeta - 1000 kg x 7 m
• Þýsk gæðavara sem hefur sannað gildi sitt
• Á annað hundrað MKG kranar seldir á íslandi
Ryðfrír tjakkur, rör,
slönguendar og baulur
Dælustöð innbyggð
t undirstöðu
8
í
Stjómtæki hægra-
eða vinstra megin
við hurö
Hafið samband við
sölu- og markaðsdeild
mtmSEH VÉLA'OGSKIPAÞJÓNUSTAehf
Drangahrauni I -1 b Hafnarfjörður
Sími: 565 2556 • Fax: 565 2956
Netfang: i n f o @ f r a m t a k . i s
Heimasíða: http://www.framtak.is