Fiskifréttir


Fiskifréttir - 15.10.2004, Síða 9

Fiskifréttir - 15.10.2004, Síða 9
& w'® w w w W ^ FISKIFRÉTTIR 15. október 2004 9 FRETTIR 0 i 0 i 0 Hrólfur Einarsson ÍS fékk 45 tonn á sex dögum Krókaaflamarksbáturinn Hrólfur Einarsson ÍS fékk góðan afla á línuna í síðustu viku og í byrjun þessarar. Frá miðvikudegi til mánu- dags voru þeir með um 7-8 tonn í hverjum róðri og fengu um 45 tonn upp úr sjó á sex dögum. Olafur Jens Daðason, skipstjóri á Hrólfi Ein- arssyni IS, sagði í samtali við Fiskifréttir að þessi afli hefði fengist að mestu leyti út af Hornvíkinni og þar í kring. „Þetta er mjög góður afli en það er þó ekki óvenjulegt að vel veiðist á þessum slóðum á þessum tíma. Við vorum með svipaðan afla í fyrra en þetta er kannski ívið meira en þá,” sagði Ólafur. Frá 1. septem- ber er Hrólfur Einarsson ÍS kominn með um 125 tonna afla. I hrinunni síðustu daga fengu þeir mest um 8.150 tonn upp úr sjó í einum róðri á 32 bala, eða um 255 kíló að með- altali á bala. Þeir lögðu línuna frá 4-5 mílum frá landi út á 12-13 míl- ur. Aflinn var blanda af ýsu og þorski. Meira veiðist af ýsu innar og er hún þá um helmingur aflans en þegar utar dregur er þorskur um 75% aflans. Ólafur sagði að fiskur- inn væri mjög góður miðað við þetta svæði. Þorskurinn er um 2-3 kíló að stærð og ýsan að meðaltali 1,8 kíló. Þegar rætt var við Ólaf sl. þriðjudag var Hrólfur Einarsson IS að veiðum í Djúpinu þar sem veð- ur hafði versnað á norðursvæðinu. Þeir voru þá að fá um 70-80 kíló á balann sem Ólafur sagði vera ágæt- isafla svona uppi í kálgarðinum. „Annars skiptist veiðin við Djúpál- inn. Vestan við hann er aflinn held- ur lélegur en austan við hann hefur veiðst vel. Aukinn sjávarhiti veldur því að þorskurinn gengur meira norður og austur en áður.” Þeir á Hrólfi Einarssyni IS nota margskonar beitur bæði síli, síld, smokk og makríl. „Við bjóðum fisk- inum upp á eins konar hlaðborð. Hann getur valið um beitu. Makríll- Síldveiðar: Sýni tekin við iöndun fyrir stofngreiningu — mest af norsk-íslensku síldinni veiðist grynnst en suðurlands- síldin veiðist dýpra Eftir að í ljós kom að norsk-íslensk sfld veiðist í bland við suður- landssíld austur af landinu munu eftirlitsmenn Fiskistofu hér eftir at- huga afla sfldarskipanna í þeim tilgangi að tryggja að aflinn sé rétt skráður til aflamarks. Um miðja vikuna lá ekki ljóst fyrir í hvaða hlutföllum suðurlandssfldin og norsk-íslenska síldin voru að veiðast fyrir austan, að því er Guðmundur Jóhannesson, deildarstjóri hjá veiðieftirlitssviði Fiskistofu, sagði í samtali við Fiskifréttir. Guðmundur sagði að sérfræð- ingar á Hafrannsóknastofnun hefðu farið austur fyrr í vikunni og Þorskur við A-Grænland Vart hefur orðið við þorsk í veiðanlegu magni við Austur- Grænland. Færeyski flaka- frystitogarinn Vesturvón hef- ur fengið 60 tonn af þorski á tilraunaveiðum á þessu haf- svæði og vonast menn til þess að framhald verði á veiðinni. Enginn þorskur hefur veiðst um árabil við Austur-Grænland en þar voru áður gjöful þorsk- veiðimið að sögn færeyska út- varpsins. Það á eftir að koma í ljós hvort veiðin verður viðvar- andi en það ætti að skýrast á næstunni. unnið að því að móta reglur varð- andi sýnatökur og greiningu með eftirlitsmönnum Fiskistofu. Teknar verða 400 síldar úr hverri veiðiferð og þær lengdarmældar, vegnar og greindar. Þegar niðurstöður liggja fýrir úr stofngreiningu verður afl- anum skipt milli þessara tveggja stofna. Tekin höfðu verið sýni úr nokkrum skipurn eftir að reglurnar voru mótaðar en greiningu var ekki lokið. „Reikna má með því að það taki einn til tvo daga að fá niður- stöður að minnsta kosti fyrst í stað. Dæmi eru um báta sem virðast hafa landað nánast 100% norsk-ís- lenskri síld en einnig eru dæmi um báta sem landa nánast 100% af suðurlandssíld. Hjá öðrum er afl- inn mjög blandaður. Svo virðist sem mest hafi fengist af norsk-ís- lensku síldinni í grunnnótina hjá þeim sem gátu veitt allra grynnst. Þeir sem voru að veiðum dýpra úti fengu nánast eingöngu suðurlands- síld,” sagði Guðmundur. inn hefur reynst mjög vel og smokk- urinn líka. Annars virðist mér sem hitastig sjávar ráði því nokkuð hversu vel veiðist á hveija tegund beitu. Eg hef engar vísindalegar sannanri fýrir því en þetta er atriði sem vert væri að rannasaka,” sagði Ólafur. Hann gat þess einnig að smokkurinnn væri mjög dýr. Talað væri um að næsta sending sem kemur til landsins muni kosta um 200 krónur kílóið. Líklegt væri að dregið yrði úr notkun hans. Ólafur Jens Daðason skipstjóri. Dextron 12 Plus DEXTRON 12 PLU5 ofurtóg í öllum stærðum. Utbúum gilsa, grandara og leiðara með eða ón nylon og polyester hlífa. HOFFELL SU-80 Strength table 12 strand braided ropes Diam.mm Weight in kg/lOOm Breaking strength 5 2,00 4200 6 2,60 4950 8 4,32 8100 10 6,00 12000 12 8,15 19700 14 10,50 24200 16 12,20 27000 18 17,00 35750 20 20,50 42000 22 25,10 49200 24 30,60 58100 26 36,50 67800 28 41,30 75700 30 48,30 85400 32 52,00 93700 34 60,40 109000 36 69,90 114900 38 78,70 129000 40 83,40 143100 42 93,60 156000 44 104,60 169200 46 126,20 185000 48 136,05 193000 50 149,11 204000 52 163,15 221400 58 193,20 284000 62 232,10 310300 66 262,20 348000 68 279,00 384800 74 334,20 435600 82 401,30 532300 88 455,15 96 592,15 ELLINGSEN Olíuverzlun íslands hf. Sundagörðum 2 • 104 Reykjavík Sími 515 1100 • Fax 515 1010 VERSLUN ATHAFNAMANNSINS Grandagarði 2 ] Reykjavík ] Sími 580 8500 j Fax 580 8501

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.