Dagrenning - 01.09.1939, Qupperneq 18

Dagrenning - 01.09.1939, Qupperneq 18
375^ ^ ^ DAGRENNING hreystiyrðum Finns: ‘ Ef ég reiðist, reiðist ég illa, og ef ég s!æ þá slæ ég fast.” Margt fleira mætti nm Finn segja, þótt ég hirði ekki að tína það fram. Hann varð maður gamall, fillilega sjö- tugur aðárum, og sá nokkurn veginn fyrir þörfum sínurn alla ævi, þótt ólíklegt megi þikja, þar sem hann var fram úr hófi drykkfeldur og óvinnu- gefinn, enda lengst af á ferða- lögum.—Lesb. Um 1876, og allmörg ár eftir það bjuggu bræður 2 á Eyvindarstöðum í Vopriaíirði. Þeir hétu Þorsteinn og Frið- rik. Ekki man ég hvers synir þeir voru. Þeir voru ein- kennilegir menn að mörgu leyti, og ekki við alþýðuskap. Fáskiftir voru þeir um hagi eða háttu annara manna, en gamaldags og einrænir til orða og gerða. Þó var þeim ekki vits varnað. Sérstaklega var því við brugðið hvað þeir væru smákvæmir í viðskift- um, því þeir reiknuðu upp á brot úr smápeningum, en jafnt í sjálfs síns sök sem annara. Reikningsmenn voru þeir miklir, en reiknuðu alt í huganum. Þeir áttu bróður, er Sigurður hét og var hann alla æfi hjá þeim. Hann var þeirra einkennilegastur og af mörgum talinn hálfviti, Allir voru þeir bræður komnir um miðjann aldur, þegar ég man fyrst eftir þeim, um 1870, en ekki vissi ég hver þeirra var elstur- Sigurður var jafnan þungur til vinnu en síhugs- andi og gruflandi um einhver vísindaleg efni, sem euginn skildi. Hagur var hann vel, en ekki notaðist það vel til heimiiisþarfa, því ætið voru það nýar uppgölvanir, sem hann fékst við. Meðal annars heyrði ég að hann hefði smíð- að stundaklukku þegar hann var unglingur, en hefði þó aldrei séð klukku áður. Hafði hann smíðað hana alla úr gömlum tunnustöfum, og merkt hana með 24 tíma- mörkum, því það hafði hann heyrt að væri rétt tímaskift- ing á sólarhrmgnum. Hafði klukka sú gengið furðu rétt eftir eyktar mörkum, Þá var kaupmaður (framhald næst)

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.