Dagrenning - 01.09.1939, Blaðsíða 21
NÆLUR
★
Með hnefum slærðu haus á
þér,
er hyg-gur þú muni vísdóm
geyma.
Þær dyr að knýja ónýtt er,
því engin lifandi sál er
heima.
Ég var staddur í stór-
barginni Winnipeg fyrir
skömmu síðan, og bar þar
margt nýstárlegt fyrir augu
mín; þar meðal annars það,
að ég sá Nick ganga mn í
Leland.
Misjafnt hefir miðlað
verið mannkostum. Sumir
eiga við svo daufa heyrn að
stríða, að þeir heyra ekki
helminginn af því, sem fram
fer, en aðrir hafa svo fá-
dæma góða heyrn, að þeir
heyra jafnvel það, sem al-
drei hefir komið fyrir. Líkt
er með málfærin, marg-
blessuð, —Vart er hægt að
toga orð út úr sumun, hvað
sem við liggur, en aftur eru
það aðrir, sem virðast hæg-
lega geta talað fyrir marga
í senn.
Um þessar mundir mun
standa ytír Eliasarmessa í
Árborg.
Ofugt snúast allar sveifar.
—Orðin sú er líðan manna,
nú verða þeiraðlepja leifar,
sem leka af borðum höfð-
ingjanna.
Kom þú til vinar þíns
ókvaddur, ef honum illa geng
ur. _____
Lágur þrepskjöldur hef-
ir oft langann mann felt.
^agremtmg
Óháð Mánaðarrit grefið út af
MARLIN MAGNUSSON
að Víðir P. O. Man., og prentað hjJ
THE NORTHERN PRESS
Kostar $1.00 árgangurinn. Borgr-
ist fyrirfram. Aðsendar greinar
um hvaða mál og stefnur sem er á
dagskrá verða birtar í ritinu ef
kurteislega ritaðar, en nafn höf-
undarins verður að fylgja rit-
gjörðum öllum, en það verður
ekki birt i ritinu ef þess er oskað.
Ritið er óháð í trúmálum og póli-
tík. Áskriftargjöld sendist til
ráðsmannsins og eins pantanir
fyrir ritinu.
G. P, Magnusson, ráðsm.
Margan hefir lukkan
blíndaS, en ólukkan gert aftur
sjáandi.