Dagrenning - 01.04.1942, Blaðsíða 14

Dagrenning - 01.04.1942, Blaðsíða 14
Þá vorar Hver ís-stöngull tárast í mæðranna mold, sem móðir er barn sitt grætur. Þá sólskinið steypist um fannþakta fold, en frostharkan undan lætur. Ég hlusta á frækornsins hjarta slátt, í helgidóm ófæddra blóma; finn arfborinn seiðandi sigur-mátt, frá söngfugla röddum hljóma. Þá fyllist mín sála af dýrðlegum draum; hver dagur af skapandi þrá. Við ylríki sólar í ístára-straum, alt sléttlendið glitrandi lá, sem þróttur í alheims þakkar gjörð, í þögulli helgí bæn, þar ljósgeislar halda um lífið vörð, uns laufblöðin titra græn. ARI G. MAGNUSSON. ••«» ....... Kaupendur Dagrenningar í Viðir-bygð, gerðu vel ef þeir vildu snúa sér til Emil Magnússonar, Víðir, með borgun fyrir ritið. •")» ===«<•••

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.