Fréttablaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Jóhann er 26 ára gamall tölvunar­ fræðingur með mikinn áhuga á stafrænni markaðssetningu, vef­ forritun, efnissköpun og að læra nýja hluti. „Ég byrjaði að vinna sem vef­ foritari hjá KeyNatura en fann síðan mikla ástríðu fyrir markaðs­ setningu á netinu og tók yfir sem stafrænn markaðsstjóri KeyNat­ ura,“ segir Jóhann en hann hefur unnið hjá fyrirtækinu í tvö ár. „Mitt fyrsta verk var að smíða nýja netverslun fyrir KeyNatura ásamt því að setja upp áskriftar­ kerfið. Það virkar þannig að þú færð vítamín send heim, fyrst í áldós en svo færðu áfyllinga­ poka inn um bréfalúguna. Ég er mjög stoltur af þessu kerfi, en með áskrift færðu 15% afslátt af vörunum og fría heimsendingu,“ útskýrir hann. „Þetta hefur vakið mikla lukku og er fólk almennt mjög ánægt með þessa lausn, enda hentugt fyrir fólk sem tekur vítamínin sín daglega.“ Jóhann bjó einnig til báðar vefsíður fyrirtækisins, keynatura. is og saganatura.is, en hann segir mikilvægt fyrir fyrirtæki að hafa góða netverslun og því sé stöðugt verið að vinna í að bæta hana. „Við höfum verið að vinna í nýrri útgáfu af netverslun Key­ Natura sem verður opnuð í lok árs. Við erum búin að vera vinna í því að gera síðuna notendavænni og einnig gera mínar síður þar sem áskrifendur geta stjórnað áskriftinni sinni betur,“ segir hann. KeyNatura er lítið sprota­ fyrirtæki svo Jóhann þarf að vera tilbúinn að hoppa í öll verk. „Ég hef unnið mikið á innan­ landsmarkaði en líka á erlendum markaði þar sem við erum að selja formúlurnar okkar undir vöru­ merki kaupanda. Ég sé einnig um að fyrirtækið sé sýnilegt á öllum miðlum, bý til auglýsingar og birti þær á samfélagsmiðlum eins og Facebook, Instagram og Google.“ Notar vörurnar sjálfur Vörurnar frá KeyNatura eru þekktar fyrir gæði og hafa fengið mikið hrós frá þeim sem nota þær. Jóhann segist sjálfur nota þær og getur því mælt með þeim. „Vinsælustu vörurnar okkar eru AstaSkin, AstaEye, SagaPro og SagaImmune. AstaSkin inni­ heldur astaxanthin sem unnið er úr þörungi, seramíð sem viðheldur rakastigi húðarinnar, kollagen sem er byggingarefni húðarinnar og sérvalin vítamín sem eru talin hafa góð áhrif á húðina. Ég tek sjálfur AstaSkin og finnst það hjálpa mér að halda heilbrigðri húð allt árið um kring. Ég hef séð mikinn mun á bólum og þurrki í húð. AstaEye er hannað til að við­ halda góðri augnheilsu og koma í veg fyrir hrörnun augnbotna. Varan inniheldur astaxanthin en er í grunninn byggð á formúlu úr rannsókn sem kallast AREDS2 og var gerð af augnlæknum, í vörunni er því lútein, zeaxanthin, kopar og sink auk annarra vítamína sem stuðla að góðri augnheilsu. SagaPro er unnið úr íslenskri ætihvönn sem hefur lengi verið þekkt fyrir góða eiginleika sína. SagaPro er hannað fyrir fólk með ofvirka þvagblöðru og hefur hjálpað mörgum að fækka klósett­ ferðum. SagaImmune, er alhliða fæðu­ bótarefni sem styður ónæmiskerfi líkamans. Það er mikilvægt þegar allar þessar pestir eru að ganga. Ég hef verið að nota SagaImmune og finnst það gott á veturna, það inni­ heldur góðan skammt af D­víta­ míni sem er mikilvægt á þessum árstíma,“ segir Jóhann. „Uppáhalds vörurnar mínar auk AstaSkin og SagaImmune eru Energy, SagaMemo og AstaLýsi. Energy er ein af mínum uppá­ haldsvörum, hún gefur jafna orku og einbeitingu yfir daginn. SagaMemo er gott fyrir minnið og hjálpar mér að einbeita mér betur í vinnunni. AstaLýsi er einstök blanda af íslensku astaxanthini, ómega­3, þorskalýsi og D­vítamíni og ég tek það á hverjum morgni. Það er líka mjög bragðgott og hefur tvisvar verið verðlaunað af alþjóð­ legri stofnun sem kallast iTQi fyrir bragðgæði þess.“ Frábærir tilboðsdagar Þann 11. nóvember er Singles’ Day eða Dagur einhleypra sem hefur á undanförnum árum orðið að einum stærsta netsöludegi ársins um allan heim. Jóhann segir að þau hjá KeyNatura séu spennt fyrir deginum. „Dagurinn kemur upprunalega frá Kína og þróaðist út frá net­ menningunni þar, en núna eru netverslanir um allan heim farnar að bjóða upp á tilboð þennan dag,“ útskýrir hann. „Við höfum verið að taka þátt undanfarin ár og það er alltaf skemmtilegt að skipuleggja svona viðburði. Við tökum þátt með heimapopup.is þar sem yfir 200 verslanir bjóða upp á frábær tilboð og afslætti. Þessi netsprengja er kjörið tækifæri til að gera góð kaup eða klára jólagjafainnkaupin.“ Þennan dag verður 20% afsláttur hjá KeyNatura og frí sending á afhendingarstað TVG með kóð­ anum „singles“ á keynatura.is. „Þetta er mjög flott tilboð sem fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara. Dagurinn gefur tilvalið tæki­ færi til að prófa nýjar vörur frá okkur,“ segir Jóhann. „Það eru fleiri tilboðsdagar fram undan en næst á eftir Singles’ Day er Black Friday. Þá ætlum við að vera með spennandi áskriftartil­ boð sem verður kynnt þann dag. Endilega fylgist vel með okkur á samfélagsmiðlum næstu daga.“ ■ Jóhann bjó til nýjar vef- síður fyrir fyrir- tækið og gerði endurbætur á vefverslun. Ný uppfærsla er væntanleg. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR AstaEye er fæðubótarefni hannað til að viðhalda góðri augnheilsu. AstaSkin inniheldur vítamín og bætiefni sem viðhalda rakastigi húðarinnar. AstaLýsi er einstök blanda af íslensku astaxanthini, ómega-3, þorskalýsi og D-vítamíni. SagaImmune er alhliða fæðubótarefni hannað til að efla ónæmiskerfið. SagaMemo er hannað fyrir minnið og bætir einbeitingu. MYNDIR/AÐSENDAR Energy er hannað fyrir þá sem vilja hámarka andlega og líkamlega getu. Við höfum verið að taka þátt undan- farin ár og það er alltaf skemmtilegt að skipu- leggja svona viðburði. Jóhann Einar Ísaksson 2 kynningarblað A L LT 10. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.