Fréttablaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 1
2 2 1 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1
Fólk elskar
milljónir
Táknmynd
aldauðans
Lífið ➤ 22 Tímamót ➤ 14
Þú færð okkar besta verð á líf- og sjúkdómatryggingum
og getur tryggt þig og þína á örfáum mínútum á tm.is
Tryggingar fyrir það
allra mikilvægasta
JÓLASERÍUR Í MIKLU ÚRVALI
tsh@frettabladid.is
MENNTAMÁL Yfirstjórn Mennta-
málastofnunar (MMS) og for-
stjórinn, Arnór Guðmundsson,
fá falleinkunn í áhættumati sem
mannauðsfyrirtækið Auðnast fram-
kvæmdi að beiðni ráðuneytisins.
Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð-
um, sem Fréttablaðið hefur undir
höndum, eru sjö af ellefu áhættu-
þáttum metnir rauðir, sem táknar
óviðunandi áhættu sem nauðsyn-
legt er að bregðast við án tafar.
Í niðurstöðunum segir: „… núver-
andi stjórnarhættir hafa skapað
óæskilegan starfsanda sem ógnar
öryggi og heilsu starfsfólks.“ Öll
atriðin tengjast stjórnun með
beinum eða óbeinum hætti. Þá
hefur meirihluti starfsfólks lýst yfir
vantrausti á hendur forstjóranum,
Arnóri Guðmundssyni.
Meðal þess sem kemur fram í
matinu er að helmingur starfs-
fólks telji sig hafa orðið vitni að
eða upplifað einelti, kynferðislega,
kynbundna áreitni eða of beldi á
vinnustað.
Starfsánægja og starfsandi innan
stofnunarinnar eru metin að þeim
sé mjög ábótavant og ríkjandi orð-
ræða í viðtölum við starfsfólk beri
merki þess að óheilbrigð þróun
starfsanda, sem rekja megi til
stjórnarhátta, hafi fengið að við-
gangast í langan tíma.
Tillögur um greiningu, fræðslu
og stjórnendahandleiðslu hafa
ekki borið árangur. Dæmi eru um
„alvarlegar afleiðingar á sjálfsmynd
og lífsánægju starfsfólks“ og þegar
hafi komið upp dæmi um alvarleg
veikindi með áhrifum á heilsufar,
fjarveru frá vinnu til lengri tíma og
uppsagnir.
Arnór Guðmundsson vildi ekki
tjá sig um málið að svo stöddu. Að
sögn Kristrúnar Heiðu Hauksdótt-
ur, upplýsingafulltrúa mennta- og
menningar málaráðuney tisins,
hefur ályktun trúnaðarmanna
MMS borist ráðuneytinu. SJÁ SÍÐU 4
Yfirstjórnin fær falleinkunn í mati
Arnór Guð-
mundsson, for-
stjóri Mennta-
málastofnunar
Yfirstjórn Menntamála-
stofnunar fær falleinkunn
í áhættumati. Meirihluti
starfsfólks lýsir yfir vantrausti
á forstjóranum Arnóri Guð-
mundssyni. Dæmi eru um
alvarleg veikindi með áhrif-
um á heilsufar starfsfólks.
Þrír fulltrúar stjórnvalda á Íslandi kynntu í gær landið sem heimsmeistara í jafnrétti kynjanna á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu í gær. Þetta voru þau Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Willum Þór Þórsson, settur forseti Alþingis. SJÁ SÍÐU 6 FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
VIÐSKIPTI Um 80 prósent af við-
skiptavinum Play verða erlendir
þegar f lugfélagið hefst handa við
að f lytja farþega á milli Banda-
ríkjanna og Evrópu. Birgir Jónsson,
forstjóri Play, segir að 90 milljónir
farþega hafi fyrir Covid-19 flogið á
milli heimsálfanna. „Segja má að
Icelandair og Play séu litlar mýs
á þessum markaði,“ segir hann
aðspurður hvort pláss sé fyrir fleiri
en eitt alþjóðlegt flugfélag á Íslandi.
Nú er nýting f lugvéla Play 8-9
tímar á sólarhring. Þegar flugfélagið
hefst handa við að flytja farþega á
milli heimsálfanna verður nýtingin
15-16 tímar á sólarhring. SJÁ SÍÐU 10.
Áttatíu prósent
verði erlendir