Fréttablaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 22
Singles’ Day er á morgun
og þá gefast einstök tilboð
og tækifæri til að dekra við
sjálfan sig og aðra.
thordisg@frettabladid.is
Hátíðin Guanggun Jié er dagur
einhleypra í Kína. Daginn ber upp
á þann 11. nóvember, þar sem tölu-
stafurinn 1, endurtekinn fjórum
sinnum í dagsetningunni 11.11.,
táknar einhleypa manneskju.
Uppruna Dags einhleypra (e.
Singles’ Day) má rekja til kín-
verskra háskólanema sem vildu
að gamni sínu fagna sjálfum sér
og því að þeir væru einhleypir. Var
dagurinn í upphafi kallaður Dagur
piparsveins og piparmeyja (e.
Bach elor’s Day).
Á degi einhleypra í Kína eru
haldin blind stefnumót og við-
burðir fyrir einhleypa, en í seinni
tíð hefur dagurinn þróast yfir í
magnaða netverslunarferð þar sem
einhleypingar gera vel við sig í mat
og drykk, kaupa sér gjafir og dekra
sem mest við sjálfa sig. Það sama á
reyndar líka við um pör. Þá kaupir
hvor einstaklingur um sig gjöf sem
hæfir hans áhugamálum og setur
hans eigið einstaklingseðli í for-
grunn. Singles’ Day er líka orðinn
vinsæll brúðkaupsdagur í Kína,
þar sem talan 11 hefur sameinað
tölustafinn 1 í tvo.
Tími fyrir svolítinn dagamun
Vinsældir Singles’ Day hafa breiðst
út um gjörvalla Asíu, Evrópu og
Bandaríkin; líka til Íslands. Þetta
er dagur til að fagna sjálfstæði
sínu og sjálfum sér, sama hvort
einstaklingurinn er einhleypur
eða ekki. Nú skal njóta og gefa
sjálfum sér gaum og gæsku, og
splæsa í það sem hugurinn stendur
til, njóta afslátta og góðra tilboða.
Það er líka vitað að umhyggja
fyrir sjálfum sér dregur úr streitu,
kvíða og varnarviðbrögðum. Því er
ekkert nema gott um það að segja
að baða sjálfan sig úr ást og þeirri
vellíðan sem fylgir góðum inn-
kaupum og dekri við líkama og sál,
um leið og það er hægt að gera góð
kaup fyrir jólin á Singles’ Day.
Hvernig sem allt fer, er tilvalið
að skemmta sér í búðarápi á netinu
á Singles’ Day. Þessi skemmtilega
hugmynd sem fæddist á heimavist
einhleypra í Kína hefur orðið að
góðri áminningu fyrir okkur öll,
því hvort sem maður er einhleypur
eða í sambandi, þá erum við ein-
staklingar sem eiga skilið allt gott.
Því er 11. nóvember kjörinn dagur
til að staldra við, hugsa um sjálfan
sig og gera sér örlítinn dagamun. ■
Dagur til að gera vel við sig
Demantar eru bestu vinir kvenna, söng Marilyn Monroe og er tilvalið að gleðja sig með fallegu skarti. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Í dag er dagurinn til að kaupa ilmvatnið sem þig hefur dreymt um að eignast.
Vetur er kominn og þá er indælt að eiga mjúkt, hlýtt og stællegt teppi.
Það felst dekur
og umhyggja
í því að eiga
kyrrðarstund
með sjálfum
sér. Litabók
fyrir fullorðna
tryggir slíkan
gæðatíma.
Dekur fyrir
líkama og sál er
endurnærandi,
svo sem nota-
legt andlits-
nudd.
Á Singles’ Day má leyfa sér lúxus.
20% afsláttur af öllum fatnaði www.systurogmakar.is
8 kynningarblað 10. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURSINGLES’ DAY