Fréttablaðið - 10.11.2021, Blaðsíða 18
Ég keypti mér
þvottavél á Black
Friday í fyrra. Mér
fannst vera mjög góður
afsláttur á Black Friday.
Ef maður þarf til dæmis
að kaupa heimilistæki
bíður maður eftir þeim
degi.
Ingveldur Kristjánsdóttir
Ingveldur Kristjánsdóttir
markaðssérfræðingur segist
nýta sér afsláttardaga eins
og Singles’ day og Black
Friday. Hún segist helst
versla innanlands en net-
verslun jókst mikið hjá
henni í Covid.
elin@frettabladid.is
Ingveldur, eða Inga eins og hún
er kölluð, segist vera mjög með-
vituð um þessa afsláttardaga og
bíða gjarnan eftir þeim með kaup
á stærri tækjum. „Ég nýtti mér 11.
nóvember, eða Singles’ day í fyrsta
skipti fyrir ári. Ég keypti mjög
margar jólagjafir á þessum degi.
Mér fannst muna miklu á verði,
sérstaklega þegar um dýrari vöru
var að ræða. Það skiptir alveg máli
að fá 20% afslátt, eins og til dæmis
þegar keyptar eru dýrar flíkur
hjá 66°Norður eða öðrum slíkum
fyrirtækjum. Ég hef bara nýtt mér
Singles’ day hér heima en það
verður áhugavert að sjá nýju vef-
verslunina, Boozt, á þessum degi.
Ég er spennt að sjá hvort þeir verði
með einhverja brjálaða afslætti,“
segir Inga.
Notendavæn þjónusta
Þegar Inga er spurð hvort það hafi
Verslar og borgar í símanum
Inga segist hafa notfært sér netið mikið til að kaupa jafnt matvörur og annað
eftir að Covid skall á. MYND/AÐSEND
Það er ótrú-
lega þægilegt
að geta notað
símann til að
versla og fengið
góðan afslátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
verið Covid sem kom henni af stað
að versla á netinu, svarar hún því
játandi. Það hafi skipt máli. „Það
kom mér alla vega í gang að kaupa
matvörur hjá Heimkaupum. Mér
fannst frábært að fá heimsendingu
samdægurs með matvörur. Covid
hefur líka komið fyrirtækjum í
gang með að breyta áherslunum,
jafnt með heimsendingum og
notendavænni greiðsluleiðum.
Ég versla og borga með símanum
mínum sem er mjög þægilegt,“
segir hún.
Inga segist líka nota daga eins
og Black Friday og Cyber Monday.
„Þetta eru stóru dagarnir fyrir tæki
og tól. Ég keypti mér þvottavél á
Black Friday í fyrra. Mér fannst
vera mjög góður afsláttur á Black
Friday. Ef maður þarf til dæmis að
kaupa heimilistæki bíður maður
eftir þeim degi,“ segir hún.
Frábært að fá afslátt fyrir jól
Inga segist notfæra sér alla þessa
afslætti fyrir jólin. „Þetta er dýr-
tíðartími og mann munar um
þennan afslátt sem er veittur,“
segir hún. „Ég er mjög ánægð með
að Íslendingar hafi tekið upp
Singles’ Day og aðra afsláttardaga.
Peningarnir haldast heima þegar
maður verslar innanlands sem
hlýtur að vera gott fyrir markaðs-
kerfið. Ég kaupi eitthvað á netinu
nokkrum sinnum í mánuði. Eftir
Covid hefur maður vanist á að
skoða hvað er í boði á netinu. Það
er mjög þægilegt þar sem margar
netsíður eru orðnar mjög góðar
og þægilegt að versla í símanum ef
kaupferlið er gott. Sumar verslanir
eru líka með þægilegt app.“
Þegar Inga er spurð hver séu
bestu kaupin hennar á netinu
svarar hún: „Líklega dýrari gjafir.
Þvottavélin sem ég keypti í fyrra
var mjög góð kaup. Slæm kaup
hef ég aðallega gert í fatnaði. Ég
hef keypt of lítið eða of stórt. Ég
gef þau yfirleitt. Mér finnst mjög
sniðugt eins og er hjá Boozt að
það er einfalt að senda til baka og
öll gjöld eru innifalin í verðinu.
Maður þarf ekki að bæta við ein-
hverjum aukagjöldum þegar varan
kemur. Ég keypti alltaf mikið á
Amazon en fékk alltaf einhverjar
aukagreiðslur hjá póstinum sem
hækkaði verð vörunnar. Ég hef
verið dugleg að kaupa barnabækur
á netinu, bæði í gegnum Heimkaup
og Forlagið. Einnig hef ég keypt
leikföng á fínu verði,“ segir Inga
en dóttir hennar er fjögurra ára
og er strax komin með skoðanir á
netverslun. „Hún bendir stundum
á eitthvað í iPadinum og spyr
hvort við getum ekki keypt þetta á
netinu,“ segir Inga sem er sjálfstætt
starfandi markaðssérfræðingur og
tók sig til í Covid og fór í masters-
nám í markaðsfræði. „Ég starfaði
mikið fyrir veitingastaði og ferða-
þjónustu sem þurftu að loka svo
það var ekki mikið að gera hjá mér.
Þess vegna notaði ég tækifærið og
fór í nám,“ segir hún.
Þegar Inga er spurð hvort hún sé
farin að huga að jólum svarar hún:
„Ég er farin að huga að jólagjöfum
en byrja ekki að skreyta fyrr en
aðventan nálgast og vonandi
smá snjór. Dóttir mín á afmæli í
desember og við erum byrjaðar að
skoða spennandi gjafir á netinu.
„Ég býst við að klára allar gjafir
á þessum afsláttardögum fram
undan og eiga síðan afslappaða
aðventu,“ segir hún. ■
30%
AF ÖLLUM VÖRUM
www.lindesign.is
LINDESIGN.IS
KÓÐI í VEFVERSLUN
“1111”
DAGUR
VEFVERSLUNAR
Líttu við á BeLLadonna.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
25% Singles day
afsláttur af völdum vörum með kóðanum 1111
4 kynningarblað 10. nóvember 2021 MIÐVIKUDAGURSINGLES’ DAY