Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Page 7

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Page 7
1. RannsóknaraðferSir. Megintilgangur gróðurrannsókna þeirra, sem hér um ræðir, er að afla upplýsinga, er auðvelda ákvörðun á beitarþoli afréttarins. í því skyni er nauðsynlegt að ákveða heildarstærð hins gróna lands og eðli þess. Vegna þess hve beitargildi gróðurlendisins er breytilegt, verður að flokka það niður í smærri heildir, gróðurhverfi, eftir vissum reglum og ákveða útbreiðslu hvers þeirra. Æskilegt er að afla sem gleggstra upplýsinga um þau atriði, er mest áhrif hafa á gróðurfarið, einkum veðurfar og jarðveg. Loks þarf að gera ákvarðanir á beitargildi hinna einstöku gróð- urhverfa og finna þannig beitarþol alls afréttarins, þ. e. a. s., hve mikla beit afrétturinn þolir í meðalsumri, án þess að of nærri honum sé gengið. Slíkar ákvarðanir liggja utan ramma þessara rannsókna, en síðar mun þó verða drepið á nokkur atriði í sambandi við þær. Það skal tekið fram, að lítið tóm gafst til jarðvegsathugana á Gnúpverjaafrétti, og eru þvi upplýsingar um það efni af skornum skammti. Veðurathuganir hafa ekki verið gerðar á þessu né öðrum afréttarsvæðum, og er veðurfars- lýsing því ekki nákvæm. Mölholm Hansen (1930) og Steindór Steindórsson (1945 og 1952) hafa lagt grundvöll að lýsingu og flokkun gróðurs á íslandi í gróðurfélög og er stuðzt við verk þeirra við þær rannsóknir, sem hér er lýst. Að sjálf- sögðu er þó einkum byggt á verkum hins síðarnefnda, og í þessari rit- gerð eru að mestu notuð sömu nöfn og skýrgreiningar og í ritum hans. Gróðurhverfin eru nefnd eftir þeim plöntum, sem mestan svip setja á gróðurfarið, koma oftast fyrir og þekja mestan hluta jarðvegsyfirborðs- ins. Slíkar einkennisplöntur eru oftast tvær, en stundum fleiri. Gróðurhverfin eru ákvörðuð með sjónhendingu, en ekki með ná- kvæmum athugunum. Slíkar vinnuaðferðir eru að vísu ekki nákvæmar, og mælingar eða flokkun, sem byggjast á tiltölulega fljótlegu persónu- legu mati, hafa ætíð sína annmarka. Ýtarlegar mælingar til ákvörðunar á gróðurhverfum hefðu hins vegar tafið starfið svo óhóflega, að það hefði ekki náð tilgangi sínum. Við kortagerðina voru notaðar loftmyndir í mælikvarða ca. 1:32 000. Á þær má teikna með allmikilli nákvæmni mörk milli einstakra gróð-

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.