Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Síða 20
16
H i—H 4 Mosaþemba.
(Grimmia heath).
Mosaheiði er ýtarlega lýst í hálendisritgerðum Steindórs Stein-
dórssonar (1945 og 1952). Mosaheiðin eða mosaþemban, eins og hún
heitir í daglegu tali, einkennist af því, að grámosategundir, aðallega
Rhacomitrium hypnoides og R. c.anesccns, eru svo ríkjandi í gróðri, að
þær setja algerlega svip sinn á landið og þekja meginhluta þess, en
blómplöntur (fanerogamar) eru ætíð mjög strjálar.
Gróðurskilyrði mosaheiðarinnar eru: lítill snjór á vetrum, en rakt
loftslag á sumrum. Mestum þroska nær hún, þar sem veðrahamur er
allmikill, en hún þolir illa sandfok, eins og fyrr er getið. Mosaheiðin er
fyrsta gróðurteppi hrauna og ógróins lands til fjalla. Hún er öðrum
gróðurhverfum harðgerðari og yzta varnarlína gróðurs hér á landi. Þar
sem veðrasamt er, en snjólétt til fjalla, ná blómplöntur ekki þroska,
en grámosaheiðin ríkir ein.
Mosaþembur finnast á smáblettum í allt að 900 m hæð, en þær þekja
naumast samfelld svæði ofan við 800 m. Sunnanlands nær mosaheiðin
allt frá sjávarmáli upp til efstu gróðurmarka, en norðanlands er mjög
lítið um samfellda mosaheiði nema á annnesjum.
Mosaheiðin er mjög útbreidd á Gnúpverjaafrétti. Raunar er mosi í
flestum gróðurhverfum afréttarins, en í misjafnlega ríkum mæli, og
stundum er álitamál, hvort hann sé það áberandi, að gróðurhverfið
eigi að teljast til mosaþembu eða bera nafn ríkjandi blómplantna.
Höfuðeinkenni blómplöntugróðurs mosaþembunnar er, að hann er
svo strjáll, að hann þekur aldrei meira en 20—30% af yfirborðinu og
oft miklu minna. Á mjög veðurbörðum stöðum eru oft aðeins einn
eða tveir blómplöntueinstaklingar á hverjum fermetra.
Mosaþemban er hér greind i fjögur gróðurhverfi: 1) hreina mosa-
þembu, 2) mosaþembu með stinnastör, 3) mosaþembu með stinnastör og
runnagróðri og 4) mosaþembu með runnagróðri. Mosaþembugróður-
hverfin (Hi-—H 4) þekja nálega 39% af hinu gróna svæði afréttarins.
Aðallega koma þau fyrir á suður- og miðhluta hans, en tiltölulega lítið
norðan til vegna áfoks.
Gróðurhverfið H 2 kemur víða fyrir í mosaheiðinni, en þó ekki á
þeim stöðum, sem veðurbarðastir eru og snjóléttastir. Stinnastörin getur
orðið bæði þroskamikil og allþétt.
Gróðurhverfið H 3 kemur helzt fyrir í dældum mosaheiðarinnar og
þar sem jarðraki er mestur. Stinnastör er ríkjandi meðal blómplantn-
anna, en krækilyng, grasvíðir og grávíðir eru einnig áberandi.
í gróðurhverfinu H 4 er grasvíðir og grávíðir mest áberandi, en
krækilyng kemur einnig fyrir. Þetta gróðurhverfi er í snjóþyngstu boll-
um og lautum mosaheiðarinnar.
Vegna stinnastararinnar hafa H 2 og H 3 án efa mest beitargildi.