Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Síða 22

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Síða 22
18 all stórþýft. í stórgerðu þýfi er verulegur munur á gróðri þúfna og Iauta, og er þá oftast mikið af grámosa í þúfunum. Rakaskilyrði eru yfirleitt áþekk í stinnastarar- og mýrastararmýr- um. Mýrastörin þrífst þó við meiri raka, og finnast því blautari mýra- stararmýrar. Vatn stendur ekki kyrrt í stinnastararmýrinni, því að henni hallar nokkuð að öllum jafnaði. Þó eru oft hallalítil stinnastarar- belti meðfram flóasvæðum, en slík belti finnast naumast á Gnúpverja- afrétti. Því þurrari sem stinnastararmýrin verður, þeim mun algengari verða víðitegundir og grámosi, og breytist þá mýrin smám saman í víði- eða mosaheiði án skarpra marka. Mýrlendi afréttarins er skipt i 8 gróðurhverfi. 11 Stinnastarar—hengistarar gróðurhverfi. (C. rigida—C. rariflora association). Gróðurhverfið er útbreitt á Gnúpverjaafrétti. Mun það vera algeng- ara í suðurhluta en norðurhluta hálendis Islands. Gróðurhverfið þekur blautasta hluta stinnastararmýrarinnar, og er oft lítill munur á raka- stigi þess og flóans. Þó þornar þessi mýrartegund allmiklu meira en flóinn hluta úr sumrinu. Halli er lítill og mýrin smáþýfð. Mosi er mikill, og eru þúfurnar aðallega mosaþúfur. Hengistör er alls staðar áberandi og þekur sums staðar meira en stinnastör. Annars er tegundafjöldi gróðurhverfisins allmikill. Stærð gróðurhverfisins er um 2390 hektarar. 12 Stinnastarar—grávíðis gróðurhverfi. (C. rigida—Salix glauca association). Gróðurhverfið er allútbreitt á hálendinu, einkum þar sem mýrlendið er tiltölulega þurrt, og er víða á svo þurrum stöðum, að það nálgast að vera heiði. Yfirborðið er hallandi og alíþýft. Á slíku landi er túnvingull og fjallasveifgras oft mjög áberandi, og getur þá hvor plantan um sig þakið eins mikið og stinnastör. Sækir sauðfé í slíka bletti. Stærð gróðurhverfisins er um 1470 ha. Þau tvö mýrargróðurhvefri, sem hér hafa verið nefnd (I i og I2), þekja stærstan hluta af mýrlendi afréttarins. Hin mýragróðurhverfin sex (I 3—I s) eru sjaldgæfari og þekja mun minni svæði. Þó skal þeirra að nokkru getið. 13 Stinnastarar—blástarar gróðurhverfi. (C. rigida—C. rostrata association). Finnst á takmörkum mýra og flóa, og er því um mjög raka stinna- stararmýri að ræða. Hinnar stórvöxnu blástarar gætir mjög í svip gróð- urhverfisins, enda þótt hún kunni að þekja minni flöt en stinnastör

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.