Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Page 24

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Page 24
20 18 Hengistarar—hálmgresis mýri. (C. rariflora—Calamagrostis neglecta association). riér er hálmgresi alláberandi ásamt hengistörinni. AÖalmunurinn á þessu gróðurhverfi og því, sem síðast var lýst (I7), er sá, að hér er um mýri en ekki flóa að ræða. Stærð gróðurhverfisins er 3 hektarar. J 1 Jaðar. (Calamagrostis neglecta—Salix glauca association). Segja má almennt, að hugtakið jaðar sé eins konar dilkur, sem í eru dregnar landtegundir, sem eru rakari en þurrlendi, en þurrari en mýri. Jaðrar mynda einmitt oft belti inilli mýra og þurrlendis og hafa nokkuð af eiginleikum beggja þessara landtegunda, en eru þó oftast áþekkari mýrinni. Á Gnúpverjaafrétti var jaðar merktur aðeins á einum stað, þó að þessa landtegund sé raunar víðar að finna þar á smáræmum og skikum. Jaðartegund sú, er hér um ræðir, Iiggur að ánni Kisu og virðist þannig til orðin, að mýri hefur þornað og gróður eyðzt við áfok sands, en er tekin að gróa að nýju. Gróður er tiltölulega gisinn. Á þurrari rimum er grávíðir ríkjandi, en hálmgresi í drögum og þar sem rakara er. Stærð gróðurhverfisins er um 25 hektarar. 6. Stærð gróðurhverfa. í töflu 2 er færð stærð einstakra gróðurhverfa, hundraðshluti hvers þeirra af öllu gróðurlendinu og hvar og hve oft þau koma fyrir á af- réttinum. Stærð hins kortlagða svæðis er um 28 000 hektarar, en af því eru 14 283 ha eða 51 hundraðshluti gróðurlendi. Af hinu gróna svæði eru 5 542 ha mosaþemba (H 1—H4), en þar sem beitargildi hennar er lítið, má telja, að raunverulegt beitarsvæði afréttarins, sunnan Fjórðungssands, sé um 8 700 ha. Af töflu 2 má draga nokkrar ályktanir um það, hvernig gróðurfarið breytist, er norðar dregur. Mosaþemba (H 1—H 4) þekur 44.7% af öllu gróðurlendi korts I og 43.1% af gróðurlendi korts II. Á nyrzta hluta svæðisins (kort III) þekur hún aðeins 15.7% af gróðurlendinu. Er það í samræmi við það, sem áður var nefnt um áhrif sandfoks á mosa. Mýrlendi þekur 38% af gróðurlendi korts I, 19.9% af gróðurlendi korts II og 32.2% af gróðurlendi korts III. Mýrargróðurhverfið 11, sem hefur mesta útbreiðslu allra gróðurhverfa afréttarins, er aðallega að finna á korti I, 14 kemur aðeins fyrir á korti II og 1 3, 10, 17, I 8 og jað- arinn (J 1) aðeins nyrzt, eða á korti III. Þá er áberandi, að víðigróður-

x

Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur
https://timarit.is/publication/1605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.