Rit Landbúnaðardeildar : B-flokkur - 01.06.1957, Síða 26
22
Samanlögð stærð þeirra var 44 ha. Þá reiknast H 3 að vera 22 ha og
I 2 22 ha o. s. frv.
Uppblástur í gróðurhverfunum er táknaður með bókstöfunum L,
N og P. Táknar L, að minna en Vz gróðurhverfisins sé uppblásinn, N,
að %—% sé uppblásinn, en P, að meira en % sé uppblásinn. Við út-
reikninga á stærð gróðurhverfanna er ekki tekið tillit til slíks upp-
blásturs. Venjulega er um smá fokbletti að ræða, rof í þúfum o. s. frv.
og verður að ákveða uppblástursflokk (L, N eða P) með sjónhendingu
í hverju tilfelli.
7. Um beifcargildi plantna og gróðurhverfa.
Með rannsóknum þeirn, sem hér hefur verið lýst, hafa verið tekin
til meðferðar þrjú af þeim atriðum, sem nauðsynlegt er að ákveða i
sambandi við mat á beitarþoli afréttarlanda. Þessi atriði eru:
1) Stærð gróðurlendis á afréttinum.
2) Flokkun gróðursins í smærri heildir, gróðurhverfi.
3) Heildarstærð hvers gróðurhverfis.
Tafla 3. Plöntuval sauðfjár. Niðurstöður norskra rannsókna (Y. Vigerust 1949).
Grades given different Norwegian range species to indicate their palatabilihj.
Fjöldi athugana Number of óbservations Meðal gildistölur Mean grades Lœgst gildistala Minimum grade Hæst gildistala Maximum grade
Túnvingull (Festuca rubra) 1 1.7 — _
Sauðvingull (Festuca ovina) 8 2.0 1.4 2.6
Snarrótarpuntur (Deschampsia caespitosa) 9 2.8 2.4 3.0
Bugðupuntur (Deschampsia flexuosa) 9 1.9 1.6 2.5
Hálíngresi (Agrostis tenuis) 4 1.9 1.7 2.5
Hálmgresi (Calamagrostis neglecta) 1 1.3 - -
Ilmreyr (Anthoxanthum odoratum) 9 1.4 1.1 1.7
Fjandafæla (Gnaphalium Norvegicum) 1 0.5 - -
Fjallasmári (Sibbaldia procumbens) . 2 0.2 +1) 0.2
Kornsúra (Polygonum viviparum) 9 0.9 0.7 1.1
Axhæra (Luzula spicata) 4 0.4 0.3 0.7
Ljónslappi (Alchemilla alpina) 2 0.4 0.3 0.5
Stinnastör (Carex rigida) 6 2.1 1.7 2.7
Mýrafinnungur (Scirpus caespitosus) 1 1.7 - -
Bláberjalyng (Vaccinium uliginosum) 4 0.3 0.1 0.5
Krækilyng (Empetrum hermafroditum) 2 0
Fjalldrapi (Betula nana) 1 ++ - -
Grasvíðir (Salix herbacca) 1 0.1 - -
Grávíðir (Salix glauca) 2 0.3 0.3 0.4
Loðvíðir (Salix lanata) 1 0.3 ” —
1) + táknar, að plantan sé nær ekkert bitin.