Fréttablaðið - 16.11.2021, Side 1
2 2 5 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1
Jólafjársjóður
fannst á loftinu
Glæpur en
engar löggur
Lífið ➤ 26 Menning ➤ 18
Lögmaður hefur stefnt ein-
staklingi sem kærði hann til
úrskurðarnefndar. Hætt er við
að áminningin falli úr gildi
þar sem kærandinn kærir sig
ekki um að verja úrskurðinn.
arib@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Þörf er á lagabreyt-
ingum til að koma í veg fyrir að
eftirlit með störfum lögmanna sé
ekki í höndum einstaklinga, að mati
lögmanna. Ef áminningu á hendur
lögmanni er skotið til dómstóla
er það hlutverk kærenda að verja
áminninguna og standa straum af
kostnaði.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hefur lögmaður stefnt
einstaklingi vegna kæru sem leiddi
til áminningar. Lögmaðurinn var
áminntur í tengslum við inn-
heimtustarfsemi sem á að vera
undir eftirliti Lögmannafélags
Íslands, LMFÍ. Kærandinn sem
leitaði til úrskurðarnefndarinnar
hefur hvorki áhuga né fjárhagslega
burði til að standa í málaferlum
við lögmanninn, því er hætta á að
áminningin verði látin niður falla.
Ingimar Ingason, framkvæmda-
stjóri LMFÍ, segir að það komi fyrir
öðru hvoru að lögmenn sem uni
ekki niðurstöðu úrskurðarnefndar-
innar leiti til dómstóla.
LMFÍ er ekki aðili málsins og
getur því ekki tekið til varna.
Lögum um eftirlit með innheimtu-
Ekki hlutverk borgaranna að verja
áminningar úrskurðarnefndarinnar
Ingimar Inga-
son, fram-
kvæmdastjóri
LMFÍ
starfsemi lögmanna var breytt árið
2018. Þá óskaði LMFÍ eftir því að
lögmenn sem reki innheimtu þurfi
að tilkynna það en ekki var orðið
við því.
Ingimar segir að félagið hafi
kallað eftir breytingum á gildandi
lagaumhverfi vegna skorts á skýr-
ari valdheimildum og viðurlögum,
sambærilegum þeim sem Fjármála-
eftirlitið hefur samkvæmt ákvæð-
um innheimtulaga.
Einar Gautur Steingrímsson lög-
maður segir að Lögmannafélagið
þurfi að fá vopn í hendurnar sem
bíti. SJÁ SÍÐU 6
Bólusetningarátak gegn Covid-19 hófst á ný í Laugardalshöll í dag þar sem landsmenn geta fengið örvunarskammt með bóluefni Pfizer. Átakið stendur í fjórar vikur og mynduðust raðir fyrir utan
Laugardalshöll sem minntu á þær sem voru er fyrra bólusetningarátakið stóð yfir í sumar. Þau sem enn eru óbólusett eða hálfbólusett geta þar einnig fengið sprautu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
COVID-19 Þrátt fyrir að sífellt f leiri
ríki heims hafi gripið til þess ráðs að
setja réttindum þeirra sem ekki eru
bólusettir gegn Covid-19 skorður er
hið sama ekki upp á teningnum á
Íslandi. Eini munurinn á réttindum
þeirra sem eru bólusettir og óbólu-
settir hér á landi er varðandi lengd
sóttkvíar og einangrunar.
Einstaka vinnustaðir hér á landi
hafa þó beint þeim tilmælum til
starfsfólks að það láti bólusetja
sig. Í mörgum löndum heims hefur
heilbrigðisstarfsfólk verið skikkað í
bólusetningu, vilji það halda starfi
sínu, en starfsfólki Landspítala er
ekki skylt að láta bólusetja sig og er
enn nokkur hluti þess óbólusettur.
SJÁ SÍÐU 4.
Óbólusettir með
mikil réttindi hér