Fréttablaðið - 16.11.2021, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 16.11.2021, Blaðsíða 11
Síðastliðin ár hefur verið unnin mikil og merkileg grunnvinna í máltækni fyrir íslensku. Máltækni- áætlun, sem hugsuð var til fimm ára, hefur gengið vonum framar og mun ljúka fyrr en bjartsýnustu spár gerðu ráð fyrir. Það er frábær byrjun á því risavaxna verkefni að gera íslensku gjaldgenga á sem flestum snerti- flötum tungumála og tækni. Það er fagnaðarefni að sjá svo fljótt árang- urinn af þessari markvissu vinnu sem dregur úr hættunni á því að við Íslendingar missum af máltæknilest- inni og spennandi möguleikar fari forgörðum. Íslenskan þrífst líka best þegar við notum hana sem mest. Grunnhugsun fyrstu máltækni- áætlunarinnar er að þróa opna innviði sem skiptast í nokkur kjarnaverkefni. Þar á meðal eru gagnasöfn og fleira sem nýtist fyrir talgreiningu, talgervil, vélrænar þýðingar og ritvilluleiðréttingar eða málrýni. Þar að auki er verið að þróa almennar málheildir, orð- fræðigögn og nauðsynleg stoðtól. Þessar kjarnalausnir verða gefnar út undir opnum leyfum svo hver sem er getur nýtt sér þær án endurgjalds. Þannig geta fyrirtæki til dæmis nýtt talgreini, talgervil, vélrænar þýðingar og sjálfvirkar villuleið- réttingar í þróun hugbúnaðar fyrir viðskiptavini sína, til dæmis til að efla þjónustu við sjón- eða heyrnar- skert fólk. Nú er komið að næstu skrefum og þau þurfa að endurspegla sama metnað og ráðið hefur ferðinni til þessa. Næsta máltækniáætlun okkar Íslendinga þarf að fylgja eftir þessari frábæru byrjun og virkja enn betur þann öfluga hóp sérfræðinga á sviði máltækni sem orðið hefur til á síðustu árum og kalla fleiri til samstarfs. Spennandi verkefni bíða í aukinni samvinnu við atvinnulífið og samfélagið allt; að styrkja grunn- inn áfram en sækja um leið fram af krafti þannig að snjallar máltækni- lausnir birtist sem fyrst og nýtist skjólstæðingum og viðskiptavinum stofnana og fyrirtækja. Hver veit nema við getum þá bráðum textað kynnana í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í beinni eða kveikt ljósin heima hjá okkur á íslensku? Er það ekki málið? n Hvenær get ég kveikt ljósin á íslensku? Örn Úlfar Sævarsson formaður fulltrúa- ráðs Almanna- róms: Miðstöðvar máltækni Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms Mér þykir vænt um Ríkisútvarpið. Í um það bil í sjötíu ár hef ég verið trúr hlustandi þess. Það er að segja einkum þess hluta dagskrárinnar sem nú kallast Rás 1. Í öll þessi ár hefur það veitt mér mikla ánægju og miðlað dýrmætum fróðleik. Ég er einnig alinn upp við að hlusta á tónlist. Tónlist var í háveg- um höfð á æskuheimili mínu. Því má segja að ég hafi hlotið það sem kalla má gott tónlistaruppeldi. Þar átti Ríkisútvarpið sinn stóra þátt. Ég hef áður drepið á þetta mál. En nú er Snorrabúð stekkur. Í fyrsta lagi er stöðugt verið að fylla upp í dauðan tíma í útvarpinu með alls konar tónlistarf lutningi, eins konar kynningarstefjum í byrjun hvers þáttar. Þessir tónlistarbútar eru oft langdregnir og greinilega hugs- aðir til uppfyllingar. Þeir eru endurteknir dag eftir dag og verða þá f ljótlega ákaf lega hvimleiðir. Hlustandinn neyðist til að hlusta á þá annars á hann á hættu að missa af byrjun næsta þáttar. Þessi ósið- ur er sérstaklega áberandi þegar hlustað er á Morgunvakt Rásar 1. Í öðru lagi er endurtekið efni að verða sífellt fyrirferðarmeira í dagskránni. Oft er sjálfsagt að nota gamlar upptökur en fyrr má nú rota en dauðrota. Þá má spyrja sig. Hvað er það sem veldur þessari þróun niður- lægingarinnar? Ég veit lítið sem ekkert um rekstur fjölmiðla en mig grunar að þarna sé peningaskortur aðalástæðan. Í samfélagi okkar eru sterk öfl sem vilja veg Ríkisútvarps- ins sem minnstan, helst að því verði lokað fyrir fullt og allt. Þá eru menn f ljótir að gleyma öryggishlutverki stofnunarinnar. Það kostar að reka stofnun eins og Ríkisútvarpið. Óhóflegur sparnaður í kostnaði við mönnun þess er nú þegar farinn að segja illilega til sín. n Enn um tónlistarmisnotkun Ríkisútvarpsins Ingimundur Gíslason augnlæknir Þung ský fjallar um hrikalegt slys við ysta haf og örlagaríkan björgunarleiðangur „Þetta er lítil perla sem vel má hugsa sér að lesa aftur og aftur.“ STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR / VIKAN „Höfundurinn er þaulreyndur sagnamaður og frásögnin nýtur þess út í ystu æsar.“ KRISTJÁN JÓHANN JÓNSSON / FRÉTTABLAÐIÐ „... ég kláraði bókina án þess að leggja hana frá mér. Ég grét líka með ekkasogum yfir öllum síðari hluta hennar.“ GRÉTA SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR / VÍÐSJÁ „ÁKAFLEGA ÁHRIFARÍK.“ KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR / KILJAN Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA ÞRIÐJUDAGUR 16. nóvember 2021 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.