Fréttablaðið - 16.11.2021, Blaðsíða 4
Við sjáum ekki merki
þess að fólk sé að
streyma til baka á skrá.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar
Það kom enginn að
máli við mig og sagðist
ósáttur eða myndu
ekki fylgja þessu.
Jón Reynir Sigur-
vinsson, skóla-
meistari MÍ
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU
TIL AFHENDINGAR EFTIR ÁRAMÓT
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
Réttindi óbólusettra um víða
veröld eru æ meira takmörk-
uð með hverjum deginum.
Ísland er meðal fárra ríkja
þar sem bólusettir og óbólu-
settir hafa sömu réttindi en
það gæti breyst eftir þriðju
sprautuna. Skólameistari MÍ
segir starfsfólk sitt fylgja bólu-
setningarskyldu.
kristinnhaukur@frettabladid.is
COVID-19 Útgöngubann óbólu-
settra í Austurríki hefur hreyft við
umræðunni en Ísland er meðal fárra
landa í Vesturheimi þar sem óbólu-
settir hafa fullt atvinnu- og ferða-
frelsi. Í auknum mæli hafa lönd
verið að setja reglur um bólusetn-
ingarskyldu fyrir tilteknar starfs-
stéttir, á tiltekna staði eða viðburði
eða sem skyldu fyrir alla.
Samkvæmt nýjum austurrískum
reglum mega óbólusettir aðeins
vinna og fara í verslanir til þess að
kaupa í matinn. Sams konar reglur
hafa verið til skoðunar í Berlínar-
borg, svokölluð 2g regla.
Þetta eru þó langt frá því að vera
hörðustu reglurnar. Algera bólu-
setningarskyldu má finna í ýmsum
Asíuríkjum á borð við Indónesíu,
Sádi-Arabíu, Kasakstan, Túrkmen-
istan og Tadsíkistan, og einnig í
Páfagarði og nokkrum eyjaklösum
í Kyrrahafinu.
Algengara er að ríki setji skyldu
á vissar starfsstéttir, svo sem heil-
brigðisstarfsfólk, umönnunar-
stéttir, kennara eða alla opinbera
starfsmenn. Slíkar reglur eru meðal
annars í gildi í Bandaríkjunum,
Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Ástr-
alíu, Póllandi, Tyrklandi, Rússlandi
og mörgum fleiri ríkjum. Í Banda-
ríkjunum hefur einnig verið tekist
á um frumvarp Joes Biden forseta
um bólusetningarskyldu allra fyrir-
tækja með yfir 100 starfsmenn.
Ýmis ríki setja skilyrði um bólu-
setningu fyrir ákveðna viðburði eða
fyrir aðgang að veitingastöðum og
skemmtistöðum. Holland, Sviss,
Danmörk og Rúmenía falla í þennan
flokk.
Þá hafa ýmis ríki farið sérstakar
leiðir eins og til dæmis Lettar, sem
leyfa öllum fyrirtækjum að segja
óbólusettu fólki upp og fylkið New
South Wales í Ástralíu, þar sem
óbólusettum er bannað að fara inn
á heimili annarra.
Hér á Íslandi hafa óbólusettir haft
sömu réttindi og aðrir ef frá er talin
lengd sóttkvíar og einangrunar.
Óbólusettir eru 11 prósent lands-
manna, 12 ára og eldri, og f lestir
úr þeim hópi eru yngri en fertugir.
Meðal annars starfa 480 óbólusettir
einstaklingar á Landspítalanum en
Már Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri meðferðarsviðs, hefur sagt
innan við 20 andsnúna bólusetn-
ingum.
Þetta kann að breytast miðað við
orð Þórólfs Guðnasonar sóttvarna-
læknis í útvarpsviðtali á Bylgjunni
í gærmorgun. Það er að ef þriðja
sprautan, örvunarskammturinn,
gengur vel fái bólusettir „aukin rétt-
indi“. Það er að þeir fái að komast á
staði, þurfi ekki að fara í sóttkví og
f leira í þeim dúr. Hingað til hefur
Þórólfur talað gegn bólusetningar-
skyldu.
Þó að stjórnvöld boði ekki bólu-
setningarskyldu að svo stöddu hafa
einstaka vinnustaðir gert það. Jón
Reynir Sigurvinsson, skólameist-
ari Menntaskólans á Ísafirði, segir
engan hafa mótmælt skipunum
hans um að enginn starfsmaður
skólans kæmi óbólusettur til vinnu í
haust. Þetta voru þó tilmæli og ekki
gerð krafa um skírteini.
„Það kom enginn að máli við mig
og sagðist ósáttur eða myndu ekki
fylgja þessu. Ég trúi fólki,“ segir Jón
Reynir aðspurður um hvernig þetta
hafi gengið. Hann segir alla þá skóla-
meistara sem hann hafi rætt við á
sama máli og hann. Engin tilmæli
hvað þetta varðar hafi hins vegar
komið frá ráðuneytinu. „Við höfum
alveg sloppið við smit ef frá er talið
upphaf faraldursins þegar ljósrit-
unarvélin okkar dreifði nokkrum
kórónaveirum,“ segir hann. n
Frelsi óbólusettra mikið hér á landi
Bólusetningar-
mótmæli við
heilbrigðisráðu-
neytið í ágúst.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
kristinnhaukur@frettabladid.is
ATVINNUMÁL Ráðningarstyrkir um
7.000 manns renna brátt út og óvíst
er hvort úrræðið verði framlengt.
Vinnumálastofnun segist ekki ótt-
ast að holskefla fólks komi aftur inn
á skrá þótt það verði ekki framlengt.
„Enn hefur ekki verið tekin
ákvörðun um hvort gildistími
úrræðisins verður framlengdur en
verið er að safna gögnum og meta
málið áður en ákvörðun verður
tekin um framhaldið,“ segir Grétar
Sveinn Theódórsson, upplýsinga-
fulltrúi félagsmálaráðuneytisins en
fundað var með Unni Sverrisdóttur,
forstjóra Vinnumálastofnunar, í gær.
Í átakinu Hefjum störf var slakað
verulega á reglum um ráðningar-
styrki til þess að koma fólki af
atvinnuleysisskrá. Hjá þeim sem
höfðu verið á skrá í sex mánuði
eru greidd 100 prósent af atvinnu-
leysisbótum í styrk og 50 prósent
hjá þeim sem höfðu verið í skemur
en sex mánuði.
„Við sjáum ekki merki þess að
fólk sé að streyma til baka á skrá,“
segir Unnur en þó sé erfitt að
meta árangurinn núna. Hún segir
Vinnumálastofnun ekki hafa tekið
afstöðu til þess hvort mælst verði
til þess að úrræðið verði framlengt.
Unnur segir stofnunina undir-
búna undir verstu sviðsmyndina, en
nú eru þegar um 10 þúsund manns
á atvinnuleysisskrá eða tæplega 5
prósent sem er sama hlutfall og fyrir
faraldur. Hún á hins vegar ekki von
á henni. „Mér sýnist að sóttvarna-
aðgerðir stjórnvalda séu ekki það
íþyngjandi að þær hafi veruleg áhrif
á atvinnulífið,“ segir hún. n
Ekki ákveðið hvort ráðningarstyrkir verði framlengdir
gar@frettabladid.is
DÓMSTÓLAR Málflutningur í laga-
stuldarmáli Jóhanns Helgasonar
gegn Warner, Universal og fleiri tón-
listarfyrirtækjum fer fram í áfrýj-
unardómstóli í Los Angeles í dag.
Jóhann telur lagið You Raise Me
Up eftir Rolf Lövland í raun lagið
Söknuð eftir Jóhann sjálfan. Dóm-
stóll í Los Angeles hafði áður vísað
máli hans frá en jafnframt hafnað
hátt í 50 milljóna króna málskostn-
aðarkröfu tónlistarfyrirtækjanna.
Jóhann áfrýjaði frávísuninni og
fyrirtækin fyrir sitt leyti áfrýjuðu
höfnun málskostnaðarkröfunnar.
Þrír dómarar sitja í dóminum í
dag og fá lögmenn hvors aðilans 15
mínútur til að flytja mál sitt. n
Jóhann á dagskrá
í Los Angeles í dag
Jóhann
Helgason.
gar@frettabladid.is
BÓKMENNTIR Samkvæmt niður-
stöðunum könnunar sem Miðstöð
íslenskra bókmennta, í samstarfi
við sex aðila á bókmenntasviðinu,
lét gera lásu íslenskir karlar færri
bækur í ár en í fyrra en enginn
munur er á lestri kvenna á milli ára.
Í tilkynningu segir að meðalfjöldi
lesinna bóka sé nú jafn því sem
hann var fyrir Covid-19 faraldurinn
eða 2,3 bækur á mánuði. Í faraldr-
inum hafi lesturinn farið upp í 2,5
bækur á mánuði.
Karlar lásu færri
bækur á þessu ári
4 Fréttir 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ