Fréttablaðið - 16.11.2021, Qupperneq 2
Sarah Wagstaff er ánægð með
að Arngrímur Jóhannsson
hafi verið dæmdur vegna and-
láts föður hennar en kveður
upphæð bóta vera vonbrigði.
gar@frettabladid.is
„Það er erfitt að lýsa því hvernig mér
líður núna öðruvísi en að mér sé létt
að það skuli hafa verið rétt að taka
slaginn og vekja athygli á málinu
opinberlega,“ segir Sarah Wagstaff
sem síðastliðinn föstudag voru
dæmdar bætur vegna andláts föður
hennar í f lugslysi á Íslandi.
Héraðsdómur Reykjavíkur telur
Arngrím Jóhannsson flugstjóra hafa
sýnt stórfellt gáleysi í aðdraganda
þess að hann nauðlenti flugvél sinni
í Barkárdal 9. ágúst 2015 og Kanada-
maðurinn Arthur Grant Wagstaff
fórst. Þrjú Börn Grants kröfðust
hvert um sig tólf milljóna króna í
bætur en voru dæmdar tvær millj-
ónir. Ekkjunni Roslyn voru dæmdar
3,4 milljónir en 35 milljóna króna
kröfu hennar vegna missis fram-
færanda var vísað frá.
„Ég er svo ánægð með að dómur-
inn tók undir með fjölskyldu minni
og komst að þeirri niðurstöðu að
andlát föður míns hefði vissulega
borið að vegna vanrækslu af hálfu
Arngríms,“ segir Sarah. Hún sé
ánægð með að hafa vakið athygli á
málinu. „Sérstaklega á þætti Sjóvár
sem reyndi að komast hjá greiðslu
undir því yfirskini að faðir minn
hefði haft þá stöðu um borð að vera
flugmaður sem ekki var að fljúga.“
Sarah vonast til að barátta fjöl-
skyldunnar gagnist f leirum. „Til-
finningin er að við höfum unnið
ötullega að því að setja betri viðmið
um vernd annarra f lugmanna og
farþega. Vonandi verður það jákvæð
arfleifð fyrir nafn föður míns.“
Þótt Sarah segist sátt við rök-
stuðning og niðurstöðu dómar-
anna séu það mikil vonbrigði að
bæturnar séu miklu lægri en það
sem þau óskuðu eftir. „Sérstaklega
í ljósi þessa langa tíma og erfiðleika
sem fjölskylda mín hefur mátt þola
í langdregnu ferli,“ segir hún en
Sarah hefur áður lýst ýmsum vand-
kvæðum við rekstur málsins.
Sarah segir að bæturnar hjálpi til
við að greiða námskostnað hennar
og systkina hennar. „Og vonandi
munum við geta komið til Íslands á
næsta ári, heimsótt slysstaðinn og
farið með kveðjubæn fyrir pabba
minn,“ segir hún.
Í dóminum segir að Arngrímur
hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi með
því að halda áfram að f ljúga inn
Barkárdal þrátt fyrir gangtruflanir
í stað þess að snúa við þegar þeirra
hafi orðið vart. Sjálfur sagði Arn-
grímur að þeir Grant, sem einnig
var f lugmaður, hafi tekið ákvarð-
anir um flugið sameiginlega.
„Það að tveir þrautreyndir f lug-
menn ræði saman um framkvæmd
flugs í aðdraganda þess og á meðan
á f luginu stendur gerir þann sem
er ekki við stjórnvölinn ekki að
f lugmanni í viðkomandi f lugferð.
Það að hann leysi einhver tiltekin
verkefni af hendi fyrir f lugið eða
á meðan á því stendur gerir hann
ekki heldur að f lugmanni,“ segir í
dóminum. Er því hafnað að flokka
beri Grant „sem einhvers konar
ótryggðan aukaf lugmann“. Sjóvá
og Arngrímur séu bótaskyld gagn-
vart fjölskyldu Kanadamannsins. n
Vonandi munum við
geta komið til Íslands.
Sarah Wagstaff
Vaskir menn að störfum
Jólaljósin eru víða komin upp og lýsa upp svartasta skammdegið fram yfir hátíðirnar. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru afar einbeittir er þeir unnu hörðum
höndum að uppsetningu jólaljósa við Sóleyjargötu í gær. Í dag eru 38 dagar þangað til landsmenn opna jólapakkana. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sarah segir fjárhæð bóta
eftir föður sinn vonbrigði
Arthur Grant Wagstaff með börnum sínum þremur. MYND/AÐSEND
Bílamerkingar
Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 777 2700 | xprent@xprent.is
Vel merktur bíll er besta auglýsingin.
Tökum að okkur allt frá litlum merkingum
að heilpökkuðum bílum.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL „Staðan hjá okkur er
þannig að textavinnsla við gerð
stjórnarsáttmála er mjög langt
komin og við stefnum að því að
hefja samtal um verkaskiptingu
síðar í þessari viku,“ segir Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra um
stöðuna í stjórnarmyndunarvið-
ræðum.
Stjórnarmyndunarviðræður hafa
sjaldan tekið jafn langan tíma og nú
en það helgast þó af öðru en ósam-
stöðu samningafólks. Beðið er eftir
því að undirbúningsnefnd kjör-
bréfanefndar ljúki störfum og þing
verði kallað saman til að kveða upp
úr um gildi kjörbréfa.
Fréttablaðið hefur áður haft eftir
forsætisráðherra að ríkisstjórnir séu
myndaðar að loknum kosningum
og á meðan ekki liggi fyrir hvort
kjósa þurfi upp í einu kjördæmi,
verði ný stjórn ekki mynduð.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verður miðað við það að
stjórnarflokkarnir þrír haldi sínum
ráðherrafjölda í nýrri stjórn. Hins
vegar má búast við að ráðherrum í
stjórninni fjölgi um einn og talið er
öruggt að Framsóknarflokkurinn
muni njóta þess. n
Stjórnarsáttmáli að verða tilbúinn
Forsætisráðherra bíður Birgis eins
og restin af þjóðinni.
adalheidur@frettabladid.is
KOSNINGAR „Við erum auðvitað að
reyna að ræða okkur niður á ein-
hverja niðurstöðu og það tekur
lengri tíma þegar maður er að reyna
að ná samstöðu um málin, heldur
en ef hver og einn færi heim að
skrifa sitt nefndarálit,“ segir Birgir
Ármannsson formaður undirbún-
ingsnefndar kjörbréfanefndar.
Beðið er með óþreyju eftir því að
nefndin ljúki störfum og þing verði
kallað saman.
„Það er ekki farið að reyna á það
með afgerandi hætti en við höfum
alltaf talað um að það væri æskilegt
að komast að sameiginlegri niður-
stöðu,“ segir Birgir. Nefndin hafi
verið samstíga í gegnum ferilinn
hingað til, bæði um hvernig beri að
haga vinnubrögðum og áherslum í
starfinu.
Birgir bindur vonir við að nefndin
ljúki vinnunni í þessari viku og
undirbúningur er hafinn í þing-
inu fyrir mögulega þingsetningu í
næstu viku. n
Birgir freistar þess
að ná samstöðu
Birgir Ármanns-
son, formaður
undirbúnings-
nefndar kjör-
bréfanefndar
2 Fréttir 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ