Fréttablaðið - 16.11.2021, Page 24
Smiðjuvegur 12, rauð gata - S. 566 6630 - gluggagerdin@gluggagerdin.is
Ríkisskattstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar
eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. nóvember 2021, virðis-
aukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. nóvember 2021 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið
hafa í eindaga til og með 15. nóvember 2021, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisauka-
skatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi,
bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri
framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum,
skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings
úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðs-
leyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatrygg-
ingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan
fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur,
sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum
og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð
er allt að 25.000 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 2.500 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til
að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt,
áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara,
þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án
frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun
fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá
dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. nóvember 2021
Auglýsing um
skipulagsmál
í Hveragerði
Auglýsing um breytingu á deiliskipu-
lagi fyrir Kambaland í Hveragerði.
Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar þann 11. nóvem-
ber 2021 var samþykkt breyting á deiliskipulagi fyrir
Kambaland í Hveragerði.
Deiliskipulagssvæðið, sem nær til um 30ha. lands,
afmarkast til suðurs og vesturs af Hringvegi (Suðurlands-
vegi), til norðurs af Hamrinum og til austurs af núverandi
byggð við Smyrlaheiði, Valsheiði, Kjarrheiði, Borgarhraun
og Kambahraun.
Tillagan felur í sér fjölgun íbúða á norður hluta svæðisins
og við Kaplahraun og breytingu á leikskólalóð og versl-
unar- og þjónustulóð. Deiliskipulag þetta hefur hlotið
meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Landfylling í Skerjafirði
Reykjavíkurborg hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frum-
matsskýrslu um landfyllingu í Skerjafirði.
Kynning á frummatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 16.11.2021-11.01.2022 hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er
aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 11.01.2022 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykja-
vík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
hagvangur.is