Fréttablaðið - 16.11.2021, Qupperneq 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Leikstjórinn Ágúst Guð-
mundsson var að glugga í
gamlar spólur uppi á lofti
þegar hann fann týndan
fjársjóð: Glaðlegt jólalag frá
honum og Valgeiri Guðjóns-
syni sem þeir sömdu á níunda
áratugnum. Lagið átti að vera
hluti af jólamynd.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég fann þetta bara í pappakassa
uppi á lofti,“ segir leikstjórinn
Ágúst Guðmundsson afar kátur
með að hafa fundið gamla kasettu
þar sem leyndist jólalag með honum
og Valgeiri Guðjónssyni. Lagið ber
nafnið Góðan dag og gleðileg jól!
en Ágúst fór rakleitt með það í raf-
ræna vinnslu og nú hafa þeir félagar
í hyggju að gleðja þjóðina á tímum
faraldurs og dumbungs í sinni.
Ágúst segir sig ráma í að lagið
hafi verið tekið upp 1984 eða 1985.
„Kannski jafnvel fyrr …“ segir hann
íhugull áður en honum snýst hugur.
„Nei, ekki fyrr. Árið 1982 kom Með
allt á hreinu og lagið er tekið upp
eftir hana,“ segir Ágúst.
Steingleymdi laginu
Ágúst rifjar upp fyrirætlanir sínar
um að gera sérstaka jólamynd þar
sem lagið átti að koma fyrir. Hún
átti að vera barnamynd þar sem
jólasveinar áttu að koma við sögu.
„Hún átti að vera full af einhverjum
furðuverum úr íslenskri þjóðtrú,“
útskýrir leikstjórinn.
Í laginu bregða þeir Ágúst og Val-
geir sér í hlutverk jólasveinanna sem
lenda í vandræðum með rímið. „Eitt
atriðið átti að vera þannig að þeir
væru að reyna að semja nýtt lag en
lenda í vandræðum með rímorðin,
enda gerist það á hverju ári að sömu
rímorðin fara í endurnýtingu,“ segir
leikstjórinn og lítur um öxl í höll
minninganna.
„Og þegar ég hlustaði á lagið
aftur þá fannst mér þetta nú tals-
vert fyndnara en mig minnti. Og
það fannst Valgeiri reyndar líka.
Þetta kom honum rosalega á óvart
enda var hann alveg búinn að
gleyma þessu.“
Ágúst segist þó ekki ætla að
dusta rykið af handritinu góða.
Það bíði betri tíma. „Ég er ekkert
farinn að hugsa um það. Það eina
sem er bitastætt eftir þetta ævin-
týri er þetta lag og allt í einu fór ég
að velta fyrir mér: Hvernig var með
þetta lag aftur?“ útskýrir Ágúst.
Hann segir þeirri hugsun hafa
lostið niður eins og eldingu í huga
sér. „Svei mér þá, hvað kom mér
til að hugsa þetta? Ég fór bara allt
í einu að hugsa um þetta lag og
spurði sjálfan mig: Hvar var þetta
lag?“
Gömlu snældurnar á vísum stað
Ágúst viðurkennir að hafa verið
dágóða stund að leita að réttri
snældu uppi á lofti. Hann hafi þó
verið búinn að koma öllum snæld-
um frá þessum tíma fyrir í sama
kassa.
„Ég notaði þær mikið meðal ann-
ars þegar við vorum að undirbúa
Með allt á hreinu. Þá setti ég kas-
ettutæki í gang þegar við vorum að
spinna atriðin,“ útskýrir Ágúst.
„Þetta gerðum bara við eldhús-
borðið heima hjá mér þar sem Með
allt á hreinu fæddist,“ segir leik-
stjórinn og nú tónlistarmaðurinn
Ágúst Guðmundsson. ■
Fann gamlan en gleðilegan
jólafjársjóð uppi á háalofti
Ágúst hafði
jólakvikmynd
í huganum
þegar lagið var
samið en varð
tröllum gefið í
hartnær fjörutíu
ár. FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Með allt á hreinu kom, sá og sigraði.
Hvernig veit maður að
maður er með sárasótt?
Guðrún
Aspelund
yfirlæknir sótt-
varnasviðs
„Sárasótt er
greind með
blóðprufu sem
er hægt að láta
taka hjá öllum læknum. Sýklalyf
er gefið við sárasótt og læknar
sjúkdóminn,“ segir Guðrún. Í
nýútkomnu fréttabréfi sótt-
varnalæknis segir að fjöldi tilfella
af sárasótt hérlendis sé áhyggju-
efni.
„Sýkingin berst oftast á milli
manna með kynmökum en getur
einnig gerst við blóðsmit og frá
móður til fósturs,“ segir Guðrún
og heldur áfram:
„Fyrstu einkenni sárasóttar eru
sár á þeim stað sem bakterían
komst í snertingu við, oftast á
kynfærum, í endaþarmi eða á
vörum eða í munni.
Nokkru síðar geta myndast
útbrot í húðinni. Við langt gengna
ómeðhöndlaða sárasótt koma
einkenni frá miðtaugakerfi og
hjarta- og æðakerfi.
Fyrstu einkenni sárasóttar
koma í ljós tíu dögum til tíu
vikum (oftast þremur vikum) eftir
smit.“ ■
Sárasóttin greinist með blóðprufu
■ Sérfræðingurinn
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið virka daga 10–18 og laugardaga 11–17
Pottréttir / Súpur / Fiskréttir
Meðlæti / Kökur / Eftirréttir / Kjötréttir
„Ljósberi er einfaldlega
heimsklassa unglingabók!“
Gunnar Helgason rithöfundur
VERÐLAUNABÓK
Kynngimagnaður spennutryllir
fyrir táninga á öllum aldri eftir
Ólaf Gunnar Guðlaugsson
Sigurvegari Íslensku barnabóka-
verðlaunanna 2021
26 Lífið 16. nóvember 2021 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ