Heilsuvernd - 01.06.1975, Qupperneq 7

Heilsuvernd - 01.06.1975, Qupperneq 7
Rannsóknir frá Afríku Um það leyti sem menn fóru að gefa þessu gaum var tekið eftir því, að mikill munur var á hægðum dreifbýlismannsins og borg- arbúans í Afríku. Þetta var rannsakað nánar, og fannst þá, að hægðir dreifbýlismannsins eru þyngri (4 - 500 g á sólarhring) og það tekur fæðuna mun styttri tíma frá því að hennar er neytt að skila sér í hægðum (25-35 klst.). Hjá borgarbúanum fundust hins vegar formaðar hægðir, að meðaltali 120 g að þyngd, sem skiluðu sér 72 - 89 klst. eftir neyslu fæðunnar. Þrýstingssjúkdómar Frekari rannsóknir frá Bretlandi og Svíþjóð hafa sýnt, að þetta hægðaleysi borgarbúans er samfara hækkuðum þrýstingi í ristlinum sjálfum og veldur því að pokar myndast í slímhúðina. Samdráttarhreyfing ristils má líkja við hnefa, sem er krepptur saman. Sé hnefinn fullur af gljúpri mold, þrýstist moldin út til beggja hliða. Sé of lítil mold í hnefanum, lokast hnefinn í báða enda, og moldin þrýstist þá út á milli fingra. Stóru bláæðamar frá ganglimum og grindarbotni liggja fast upp við ristilinn. Verði þær fyrir þrýstingi, þenjast þær út, og æðahnútar geta myndast. Það kann einnig að hafa þýðingu, að dreifbýlismaðurinn situr á hækjum sér við hægðir, en við þá stellingu framkallast enginn þrýstingur í þetta æðakerfi líkamans. Botnlangabólga framkallast þegar hægðastífla verður í botn- langatotunni Áður fyrr var hún læknuð með stólpípugjöf, sem dugði þó skammt þegar gröftur hafði náð að myndast og gat var komið á lífhimnu (skinu). Hinn aukni þrýstingur í ristli, kviðarholi og bláæðum gang- lima, sem framkallast af ónógum burðarefnum í hægðum, er talin vera orsök þessara sjúkdóma, sem sameiginlega hafa verið kallaðir þrýstingssjúkdómar. Grófmeti Hinn mikli munur á þyngd hægða dreifbýlismannsins og hins „tæknimenntaða“ er talinn stafa af því, að burðarefni fæðunnar hafa verið numin á brott úr fæðu hins síðarnefnda. Það kann að HEILSUVERND 55

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.