Heilsuvernd - 01.06.1975, Blaðsíða 14
fram meltingartruflanir, og þarf þá að gefa ný lyf til að ráða
bót á þeim.
Sum hormónalyf valda ýmsum óþægilegum breytingum hjá
körlum og konum, svo sem skeggvexti á konum, vexti brjósta
og getuleysi til samfara hjá körlum.
Sum hormónalyf valda ýmsum óþægilegum breytingum hjá
aukinn útskilnað á steinefnum eins og kalíum, og það verður að
bæta upp með inntöku steinefnalyfja.
Fjöldi lyf ja hefir ofnæmi í för með sér sem lýsir sér með ýms-
um hætti, m.a. sem hættulegt lost. Meðal þeirra er pensillínið
sem lengi var talið meinlausasta fúkalyfið. En nú veldur það
nokkur hundruð mannslátum í Bandaríkjunum á ári. Pensillín og
fleiri fúkalyf geta eytt gerlum, sem halda þruskusveppum í skefj-
um, og notkun þeirra getur því valdið þruskusmitun í munni,
þ.e. munnangri, og jafnvel lífshættulegri þruskusmitun í lungum.
Fúkalyfjum hefir stundum verið blandað í fóður búfjár og ali-
dýra og getur þannig komið fram í afurðum þeirra, bæði kjöti
og mjólk, svo sem í sambandi við lækningu á júgurbólgu. Neyt-
endur geta þannig fengið ofnæmi fyrir þessum lyfjum, og stafar
þá hætta af notkun þeirra.
Aukaverkanir lyfja
Fyrir nokkru kom út á ensku bók um aukaverkanir lyfja.
Þar voru talin mörg hundruð lyf, en það er ekki nema lítill hluti
alls þess aragrúa sem á markaðinum eru. í lyfjaskrám lækna er
einnig greint frá aukaverkunum sem tilgreind lyf geta haft í för
með sér. Oft koma hættulegar aukaverkanir ekki fram, svo að
sannað verði, fyrr en eftir langvarandi notkun lyfjanna, enda
þótt lyfjaverksmiðjum sé lögð sú skylda á herðar að prófa ræki-
lega hvert nýtt lyf áður en leyft er að setja það á lyfjamarkaðinn.
Aspirín var talið meinlaust lyf. En nú hefir komið í ljós að það
getur valdið blæðingum í maga og blóðnösum og ýmsum eitrunar-
einkennum hjá börnum Og alltaf er verið að taka úr umferð lyf,
sem notuð hafa verið um lengri eða skemmri tíma, vegna þess
að skaðlegar aukaverkanir hafa komið fram. Þannig hefir fyrir
62
HEILSUVERND