Heilsuvernd - 01.06.1975, Side 19
NIELS BUSK GARÐYRKJUSTJÓRI
íslenska kartaflan
versnandi fer
Á síðari árum hefir talsvert borið á óánægju með íslenskar kart-
öflur, ekki síst þær sem grænmetisverslun landbúnaðarins af-
greiðir. Aðfinnslurnar eru vafalaust ekki ástæðulausar En auð-
vitað er ekki hægt að skella skuldinni á grænmetisverslunina.
Hún gerir ekki annað en veita kartöflunum viðtöku og dreifa
þeim í verslanir eða til neytenda, og þær koma til hennar úr flest-
um landshlutum. Orsakanna, sem geta verið margar, hlýtur að
vera að leita hjá kartöfluframleiðendunum. íslenskar kartöflur
voru áður fyrr hreinasta afbragð sem regluleg nautn var að leggja
sér til munns. Og hví skyldi svo ekki geta verið enn?
Til þess að leita skýringa á þessu ástandi var ákveðið að boða
til fundar um þessi mál, og var hann haldinn í félagsheimili
Þykkvabæinga 20. mars. Þar fluttu erindi ráðunautar og aðrir
kunnáttumenn, og kartöfluframleiðendur og aðrir áhugamenn voru
velkomnir á fundinn, enda var þar fullt hús.
E. B. Malmquist ráðunautur setti fundinn og stjórnaði honum
og flutti inngangserindi um vandamálin. Kom þar m.a. fram, að
kartöflugæðum hefði hnignað mjög undanfarin ár og afföll vegna
skemmda stóraukist. Jóhann Jónasson, forstjóri grænmetisversl-
unarinnar tók í sama streng og sagði geymsluþol kartaflna vera
miklum mun minna en áður þrátt fyrir bætt geymsluskilyrði.
Kristinn Jónsson, tilraunastjóri á Sámsstöðum, skýrði frá til-
raunum sem þar hafa verið gerðar á undanförnum árum, og
HEILSUVERND
67