Heilsuvernd - 01.06.1975, Qupperneq 20

Heilsuvernd - 01.06.1975, Qupperneq 20
margir bændur tóku til máls á fundinum. Virtust allir sammála um að kartöflugæði hefðu minnkað stórlega og kenndu m.a. um notkun tilbúins áburðar og breyttum upptökuaðferðum. Tilbúinn áburður er nú almennt notaður einvörðungu við kart- öfluræktun í stórum stíl_ Þá á ekki að nota nema ákveðið magn af hverri tegund áburðar á hvern hektara. En sumir freistast til að bæta við þetta í þeirri trú að þá fái þeir meiri uppskeru. En svo einfalt er dæmið ekki. Uppskeran verður ekki meiri að vöxtum;, nema síður sé, og hún verður lélegri að gæðum. Illgresiseyðing er framkvæmd með efnum sem gera kannski ekkert tjón séu þau notuð í hófi, en mörgum hættir til að fara einnig þar yfir mörkin með þeim árangri að kartöflumar verða verri á bragðið. Upptakan á sinn þátt í að skemma kartöflurnar. Notaðar eru stórar og afkastamiklar vélar sem fara illa með hinar nýju og viðkvæmu kartöflur. Þær eru teknar á tveggja metra hátt hjól þar sem moldin skilst frá, og síðan falla þær niður á færiband og hoppa þar og skoppa til að losna við leifarnar af moldinni áður en þær eru sekkjaðar. Allt þetta hnjask skemmir kartöfluhýðið, í það koma sprungur, sýnilegar og ósýnilegar, og gegnum þær er greið leið fyrir bakteríur eða sveppa. Slíkar kartöflur má heita ógerlegt að geyma til lengdar. Kartöflur ætlaðar til útsæðis ætti því aldrei að taka upp með þessum vélum. Kristinn Jónsson sagði frá áburðartilraunum sem staðið höfðu í nokkur ár og sýndu, að búfjáráburður gat gefið meiri uppskeru en tilbúinn áburður, hvort heldur sem var í moldar- eða sand- görðum. En í þessum tilraunum hafði því miður ekki verið gerð athugun á geymsluþoli og bragðgæðum. I Heilushæli NLFl í Hveragerði höfum við ræktað kartöflur árum saman með nokkuð mismunandi árangri hvað uppskerumagn snertir. En óhætt er að fullyrða út frá þessari reynslu okkar, að kartöflur ræktaðar í moldargörðum með búfjáráburði án tilbúins áburðar, án illgresislyfja eða lyfja til sjúkdómavarna, teknar upp með einfaldri vél og safnað saman með höndunum, taka langt fram kartöflum ræktuðum með venjulegum aðferðum, bæði hvað snertir útlit, bragðgæði og geymsluþol. 68 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.