Heilsuvernd - 01.06.1975, Síða 21
PÁLlNA R. KJARTANSDÓTTIR
HÚSMÆÐRAKENNARI
Uppskriftip
Skandínaviskt salat
125 g salatblöð
3 tómatar
3 egg
% tesk. borðsalt
7-8 hreðkur
5 g graslaukur eða karsi
25 g smjörlíki eða smjör
Olíusósa (mayonnaise)
Eggin eru soðin í 10 mín., kæld, skurnin tekin af og eggin skorin
í tvennt eftir lengdinni. Rauðurnar pressaðar gegnum sigti, smjör-
líkinu hrært saman við, graslaukurinn klipptur smátt og blandað
út í. Þessu er sprautað í toppa í eggjahvítubátana. Salatblöðin
eru skoluð vel í köldu vatni, látin í bunka á kringlótt fat, tómat-
arnir skolaðir vel, skornir í fjóra hluta og þeim raðað ásamt
fylltum eggjunum í krans kringum salatið. Yfir salatið er hellt
olíusósunni. Hreðkurnar eru þvegnar, skornar í þunnar sneiðar,
dreift yfir salatið, og síðast er niðurklipptum graslauk eða karsa
stráð yfir.
Grænmetissalat með rúsínum
1 dl af rjóma er þeyttur, safa úr hálfri sítrónu og % matsk. af
púðursykri hrært saman við; 4 - 5 grænkálsblöð söxuð fínt og
blandað saman við rjómann ásamt 1 bolla af rúsínum.
HEILSUVERND
69