Heilsuvernd - 01.06.1975, Page 22
A við og dreiff
Notkun fjallagrasa í Noregi
1 norska tímaritinu „Sunnhets-
bladet" er nýlega grein um ís-
lensku fjaliagrösin, en þau ganga
þar og viða erlendis undir nafninu
íslandsmosi, enda þótt það heiti sé
rangt, þvi að þessi jurt heyrir ekki
undir mosa, heldur fléttur.
1 greininni er frá þvi skýrt, að
fjallagrös hafi af alþýðu manna
verið notuð við lungnasjúkdómum,
m.a. berklum, hæsi og hósta, í
nýrna- og blöðrusjúkdómum, maga-
og þarmasjúkdómum, við lystar-
leysi og handa barnshafandi kon-
um. Samkvæmt sænskum heimild-
um eiga 2 tunnur af möluðum
fjallagrösum að jafngilda einni
tunnu af rúgi sem næring.
Áhrif reykinga á kynlíf karla
I amerísku læknablaði skýrir
læknir svo frá, að sígarettureyk-
ingar geti valdið getuleysi hjá
körlum vegna truflana á fram-
leiðslu hormóna. Rannsókn á tvö
þúsund körlum leiddi auk þess í
ljós að hjá mönnum sem reykja
20 sígarettur á dag dregur úr
hreyfingum sæðisfrumanna.
(Halsa)
Sælgætisauglýsingar £ Hollandi
í Hollandi er haldið uppi víð-
tækum áróðri gegn sælgæti. Þann-
ig eru sælgætisauglýsingar í sjón-
varpi háðar þrennskonar skilyrð-
um. 1 fyrsta lagi verður á hvern
auglýsingu að sýna geysistóran
tannbursta til að minna á hættuna
á tannskemmdum af völdum sæl-
gætis og nauðsyn þess að bursta
tennurnar í hvert sinn þegar sæl-
gætis er neytt. í annan stað er
bannað að börn undir 14 ára aldri
komi fram i slíkum auglýsingum,
og í þriðja lagi má ekki sýna þær
fyrr en eftir kl. 20, vafalaust vegn?
þess að þá munu börn yfirleitt
vera háttuð og sofnuð.
(Reform-Rundschau)
Þvagsýrugigt
Þetta er gamalkunnur og mjög
kvalafullur sjúkdómur sem leggur
stórutána i einelti öðrum líkams-
hlutum fremur. Eins og nafnið
bendir til kemur hún fram við það
að þvagsýrukristallar falla út í
vefina og særa þá. En þvagsýran
myndast m.a. við niðurbrot efna
sem mikið er af í kjöti. Þvi er það,
að sjúkdómur þessi hefir frá fornu
fari ásótt efnafólk og þá sem lifað
hafa hátt sem kallað er, og kvala-
köstin þá komið eftir dýrindis
veislur. Talið er að í Þýskalandi
sé um ein milljón manna haldnir
þvagsýrugigt.
Nú virðist komið á daginn, að
kjötát sé ekki aðalorsök þesa sjúk-
dóms, heldur miklu fremur of-
neysla sykurs og annarra kolvetna,
og það kemur líka heim við þá
staðreynd, að bílifismönnum sé
öðrum fremur hætt við þvagsýru-
gigt. (Úr Reform-Rundschau)
70
HEILSUVERND