Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Page 8

Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Page 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 Norðurlandamót 19 ára og yngri í frjálsum íþróttum var haldið í Kapla­ krika um síðustu helgi. Ísland og Danmörk senda venju samkvæmt sameiginlegt lið til keppni en löndin sendu tvö lið í boðhlaupskeppni og fyrirfram var ákveðið hvor sveitin taldi til stiga. Keppnin er landskeppni og var að sjálfsögðu hörð keppni en auk Danmerkur og Íslands sendu Svíþjóð, Noregur og Finnland lið til keppni. Ísland átti 24 keppendur og komu 7 þeirra úr FH, þeir eru: Daníel Einar Hauksson FH í 1500 m hlaupi; Gylfi Ingvar Gylfason FH í 4×100 m boðhlaupi; Hilda Steinunn Egilsdóttir FH í stangarstökki; Kormákur Ari Hafliðason FH í 400 m, 4×100 m, 4×400 m hlaupi; Mímir Sigurðsson FH í kringlukasti; Tómas Gunnar Gunnarsson Smith FH í kúluvarpi og Þórdís Eva Steinsdóttir FH í 400 m, 4×100 m, 4×400 m hlaupi. KEPPT Í 40 GREINUM Alls var keppt í 40 greinum, þar af 38 sem töldu til stiga. Keppendur voru um 235. Flestir komu frá Svíþjóð 61 keppandi, 55 komu frá Finnlandi, 53 frá Noregi, 42 frá Danmörku og 24 frá Íslandi Veður var ágætt fyrri daginn en vindur og rigning seinni daginn. Það hindraði þó ekki að keppendur voru 28 sinnum að bæta sinn persónulega árangur. ÍSLANDSMET Í ÞREMUR ALDURSFLOKKUM Í 4×100 m boðhlaupi kvenna sendi sameiginlegt lið Íslands og Danmerkur tvö lið, annað skipað íslensku stúlkunum og hitt skipað þeim dönsku. Íslensku stúlkurnar urðu í 2. sæti, hlupu á 47,04 sekúndum og settu Íslandsmet í þremur aldursflokkum, flokki 16­17, 18­19 og 20­22 ára stúlkna. Þetta er ekki félagsmet heldur landssveitarmet. Sveitina skipuðu þær Tiana Ósk Whitworth ÍR, Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH, Helga Margrét Haraldsdóttir ÍR og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir ÍR. Í piltaflokki féll met í flokki 18­19 ára í 4x100 m hlaupi þegar piltarnir hlupu á 42,27 sek en eldra metið var 42,54 sek. Sveitina skipuðu þeir Gunnar Eyjólfsson, Trisan Freyr Jónsson, Kormákur Ari Hafliðason og Gylfi Ingvar Gylfason. FINNLAND SIGRAÐI Mjög góður andi var á mótinu og keppni drengileg. Finnland sigraði í stigakeppni, bæði í karla­ og kvenna­ flokki og því einnig samanlagt. Fengu Finnarnir 204 stig í kvennaflokki og 200 stig í karlaflokki. Norðmenn urðu í öðru sæti með 362,5 stig samanlagt, 181 í kvennaflokki og 181,5 stig í karla flokki. Svíar urðu þriðju með 352,5 stig samanlagt, 173 stig í kvenna­ flokki og 179,5 stig í karlaflokki. Sameiginlegt lið Íslands og Danmerkur varð neðst með 194 stig samanlagt, 98 stig í kvennaflokki og 194 stig í karla­ flokki. EITT GULL TIL ÍSLANDS Finnland fékk 17 gull, Svíþjóð 12, Noregur 7 og Danmörk/Ísland 4. Eini Norðurlandatitill Íslendings kom nokk­ uð óvænt en verðskuldaður er Andrea Kolbeinsdóttir úr ÍR sigraði í 3000 m hindrunarhlaupi á 11,16.52 mín. Glæsilegir unglingar á Norðurlandamóti 19 ára og yngri unglingar kepptu í Kaplakrika í frjálsum íþróttum – Sameiginlegt lið Íslands og Danmerkur Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Stúkurnar stóðu sig vel í 3000 m hindrunarhlaupinu. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir ÍR, Helga Margrét Haraldsdóttir ÍR, Tiana Ósk Whitworth ÍR og Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH. Keppendur í 5000 m hlaupi. Mikið mæddi á Kristni Guðlaugssyni mótsstjóra, Sigurði Haraldssyni formanni frjálsíþróttadeildar FH og fleiri sjálfboðaliðum. Andrea Kolbeinsdóttir varð Norðu­ landameistari unglinga í 3000 m hindrunarhlaupi á 11,16.52 mín. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.