Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Page 10
10 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Kaldárselsvegi • s. 555 6455
Tré og
runnar
...í garðinn þinn
opið um helgina
kl. 10 - 17
20%
afsláttur
Sl. föstudag voru haldnir glæsilegir
rokktónleikar við Ölstofu Hafnarfjarðar
við Flatahraun. „Rokk í Hafnarfirði eru
tónleikar sem við vorum að halda í
annað skiptið nú í ár hjá Ölstofunni,“
segir Hafnfirðingurinn Hálfdán
Árnason, bassaleikari í Sign, en Hálfán
er einn þeirra sem sáu um undirbúning
tónleikanna. „Í fyrra gekk þetta mjög
vel en núna gekk þetta enn betur og er
þetta komið til að vera,“ segir Hálfdán
enda var mæting góð og fín stemmning.
Hljómsveitir sem komu fram voru:
Sign, Dimma, Fræbblarnir, Kontinuum,
Axel Flóvent, Magnús Leifur, Guns
and Roses heiðursveit, Mosimusic og
3B.
Tónleikar voru haldnir fyrir utan
Ölstofuna á móti Tækniskólanum, þar á
planinu. Þeir hófust klukkan 18 og
stóðu til 23.30 en þá voru þeir færðir
inn í hús og stóðu svo fram eftir nóttu.
Hálfdán segir ástæðan fyrir því að
byrja svona snemma sé að öll
fjölskyldan geti þá komið saman og
notið þess að horfa á hljómsveitirnar
spila.
Einn aðalskipuleggjandinn, Halldór
Grétar Gunnarsson, lést úr hjartaáfalli
sl. þriðjudag og vill Hálfdán, fyrir hönd
skipuleggjenda, senda samúðarkveðjur
til fjölskyldu og ættingja. „Halldór
Grétar Gunnarsson var góður vinur og
vildi allt gott gera fyrir alla og verður
hans sárt saknað.“
Rokkað á Flatahrauninu
Opnir útitónleikar annað árið í röð við Ölstofu Hafnarfjarðar
Fjölmennt var í góðviðrinu og ómaði
tónlist víða um bæinn.
Vel heppnaðir rokktónleikar.
Halldór Grétar Gunnarsson
Lj
ós
m
yn
d:
S
pe
ss
i
Lj
ós
m
yn
d:
S
pe
ss
i
Lj
ós
m
yn
di
r:
Sp
es
si
Lj
ós
m
yn
d:
S
pe
ss
i
Lj
ós
m
yn
d:
S
pe
ss
i
Skólamat ur
inn kemur nú
frá Skólaaski
Hafnafjarðarbær hefur gert samning
við Skólaask, dótturfyrirtæki ISS um
rekstur mötuneyta leikskóla og
grunnskóla. Skólaaskur mun taka að
sér rekstur mötuneyta og lögð verður
áhersla á þrjá mikilvæga þætti;
næringu barna, umhverfissjónarmið
og matarsóun.
Í upphafi skólaárs eru börn skráð í
mataráskrift hjá Skólaaski, en hægt er
að velja um fasta áskrift 5 daga
vikunnar, dagaval eða að kaupa stakar
máltíðir.
Allir matseðlar eru næringa
útreiknaðir og farið eftir ráðleggingum
embætti Landlæknis. Matseðlarnir
eru birtir á heimasíðu Skólaasks þar
sem foreldrar og aðrir aðstandendur
geta fylgst með matseðlum og
samsetningu matseðla. Þar birtast
einnig upplýsingar um innihald.
Við matseðlagerð er notast við
handbók fyrir skólamötuneyti sem
var gefin út af embætti Landlækni
árið 2010. Í ráðleggingunum er gert
ráð fyrir að það sé heit máltið a.m.k.
fjórum sinnum í viku og gert ráð fyrir
að ávextir eða annarskonar grænmeti
fylgi hádegisverði. Til drykkjar verði
boðið upp á vatn og/eða léttmjólk
með flestum máltíðum.
Maturinn kom áður frá Skólamat í
Reykjanesbæ en þar áður frá SS.
Útboð réð vali á birgja.
Meðal þeirra sem komu fram var hljómsveitin Sign.
Meðal þeirra sem komu fram var hljómsveitin Sign.