Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Side 11

Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Side 11
www.fjardarfrettir.is 11FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 Samgöngur eru mikilvægar fyrir okkur öll því við viljum komast á milli staða á sem skemmstum tíma og með sem minnstum tilkostnaði. Greiðar stofnæðar skipta höfuðmáli til þess að ekki myndist löng röð sem hægir á hraða og lengir þann tíma sem tekur að komast á milli staða. Það er ekki góð framleiðni sem felst í því að ferðatími sé of langur og því til mikils að vinna fyrir samfélagið allt að ferðir gangi greiðlega. HRINGTORGIÐ VIÐ N1 ER SPRUNGIÐ Öll umferð til og frá höfuðborg­ arsvæðinu liggur í gegnum Hafnarfjörð ef leiðinni er heitið á Reykjanesskagann. Þjóðvegur 1 sker bæinn í sundur og íbúar finna fyrir vaxandi umferð með því að æ erfiðara er að komast inná þjóðveginn á hringtorgunum sem eiga að tryggja öruggt flæði í allar áttir. Mælingar Vegagerðarinnar á hring­ torginu við Lækjargötu þar sem N1 er staðsett sína að það er sprungið. Mislæg gatnamót við Velli munu vissulega létta lund íbúa þess hverfis sem munu þegar þau verða tekin í gagnið sleppa við að keyra öll litlu hringtorgin í hverfinu en það mun ekki breyta neinu varðandi fyrrnefnt hringtorg við Lækjargötu því öll umferðin fer þar í gegn. Fyrir tveimur árum áttu fulltrúar umhverfis­ og fram­ kvæmdaráðs og fulltrúar skipulagsráðs Hafnarfjarðar fund með Ólöfu Nordal innanríkisráðherra þar sem farið var yfir mikilvægi þess að ríkið tryggði fjármagn vegna mislægra gatnamóta við Krýsuvíkurveg. Formaður skipulagsráðs, Ólafur Ingi Tómasson hefur verið óþreytandi við að benda á nauðsyn þess að fjármagn fáist til verksins og nú liggur fyrir vilyrði þess efnis að framkvæmdir hefjist á næsta ári sem er vel. ENDURBÆTTUR „FLÓTTAMANNAVEGUR“ MYNDI NÝTAST VEL Á fundinum var einnig farið yfir mikilvægi þess að skoðað yrði með endurbætur á Flóttamannaveginum eins og hann er nefndur en sú leið er töluvert notuð. Samkvæmt aðalskipulagi Garða­ bæjar er fyrirhugað að í fram tíðinni verði Flóttamannavegurinn tengd ur Helga Ingólfsdóttir Mislæg gatna mót og „flótta manna vegurinn“ Reykjanesbraut til móts við verk­ smiðju hús Góu. Ef þessi braut kæmi yrði hún nokkurs konar bakleið eða ofanbyggðarvegur fyrir Hafnfirð inga og aðra sem eiga leið í gegnum bæinn og myndi tengjast Ásvallabraut við Kaldárselsveg og síðan Krýsu víkurvegi en mjög vaxandi umferð ferðamanna er á þeirri leið. Mikilvægt er að þessi valkostur verði skoðaður til hlítar þar sem hann gæti létt á umferð í gegnum bæinn nú þegar viðurkennt er að mikil þörf er á tvöföldun um ferðar þyngstu veganna eins og fram kemur í viðtali við Ólöfu Nordal innan ríkisráðherra í helgarblaði Morgun blaðs ins. Höfundur er formaður umhverfis­ og framkvæmdaráðs. Greinin birtist einnig á www. fjardarfrettir.is með myndum Hönnun og umbrot bækur | blöð | ársskýrslur auglýsingar | skilti | matseðlar ljósmyndir | greinarskrif sími 565 4513 | hhus@hhus.is | stofnað 1990

x

Fjarðarfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.