Fjarðarfréttir - 18.08.2016, Page 11
www.fjardarfrettir.is 11FJARÐARFRÉTTIR | FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Samgöngur eru mikilvægar fyrir
okkur öll því við viljum komast á milli
staða á sem skemmstum tíma og með
sem minnstum tilkostnaði.
Greiðar stofnæðar skipta
höfuðmáli til þess að ekki
myndist löng röð sem hægir á
hraða og lengir þann tíma sem
tekur að komast á milli staða.
Það er ekki góð framleiðni
sem felst í því að ferðatími sé
of langur og því til mikils að
vinna fyrir samfélagið allt að
ferðir gangi greiðlega.
HRINGTORGIÐ VIÐ N1 ER
SPRUNGIÐ
Öll umferð til og frá höfuðborg
arsvæðinu liggur í gegnum Hafnarfjörð
ef leiðinni er heitið á Reykjanesskagann.
Þjóðvegur 1 sker bæinn í sundur og
íbúar finna fyrir vaxandi umferð með
því að æ erfiðara er að komast inná
þjóðveginn á hringtorgunum sem eiga
að tryggja öruggt flæði í allar áttir.
Mælingar Vegagerðarinnar á hring
torginu við Lækjargötu þar sem N1 er
staðsett sína að það er sprungið. Mislæg
gatnamót við Velli munu vissulega létta
lund íbúa þess hverfis sem munu þegar
þau verða tekin í gagnið sleppa við að
keyra öll litlu hringtorgin í hverfinu en
það mun ekki breyta neinu varðandi
fyrrnefnt hringtorg við Lækjargötu því
öll umferðin fer þar í gegn.
Fyrir tveimur árum áttu
fulltrúar umhverfis og fram
kvæmdaráðs og fulltrúar
skipulagsráðs Hafnarfjarðar
fund með Ólöfu Nordal
innanríkisráðherra þar sem
farið var yfir mikilvægi þess
að ríkið tryggði fjármagn
vegna mislægra gatnamóta
við Krýsuvíkurveg. Formaður
skipulagsráðs, Ólafur Ingi Tómasson
hefur verið óþreytandi við að benda á
nauðsyn þess að fjármagn fáist til
verksins og nú liggur fyrir vilyrði þess
efnis að framkvæmdir hefjist á næsta
ári sem er vel.
ENDURBÆTTUR
„FLÓTTAMANNAVEGUR“
MYNDI NÝTAST VEL
Á fundinum var einnig farið yfir
mikilvægi þess að skoðað yrði með
endurbætur á Flóttamannaveginum eins
og hann er nefndur en sú leið er töluvert
notuð. Samkvæmt aðalskipulagi Garða
bæjar er fyrirhugað að í fram tíðinni
verði Flóttamannavegurinn tengd ur
Helga
Ingólfsdóttir
Mislæg gatna mót og
„flótta manna vegurinn“
Reykjanesbraut til móts við verk
smiðju hús Góu. Ef þessi braut kæmi
yrði hún nokkurs konar bakleið eða
ofanbyggðarvegur fyrir Hafnfirð inga
og aðra sem eiga leið í gegnum bæinn
og myndi tengjast Ásvallabraut við
Kaldárselsveg og síðan Krýsu víkurvegi
en mjög vaxandi umferð ferðamanna er
á þeirri leið. Mikilvægt er að þessi
valkostur verði skoðaður til hlítar þar
sem hann gæti létt á umferð í gegnum
bæinn nú þegar viðurkennt er að mikil
þörf er á tvöföldun um ferðar þyngstu
veganna eins og fram kemur í viðtali
við Ólöfu Nordal innan ríkisráðherra í
helgarblaði Morgun blaðs ins.
Höfundur er formaður umhverfis
og framkvæmdaráðs.
Greinin birtist einnig á www.
fjardarfrettir.is með myndum
Hönnun og umbrot
bækur | blöð | ársskýrslur
auglýsingar | skilti | matseðlar
ljósmyndir | greinarskrif
sími 565 4513 | hhus@hhus.is | stofnað 1990