Öldin - 01.03.1935, Page 8

Öldin - 01.03.1935, Page 8
6 Ö L D I N MeS lögunum um byggingu Háskólans 23. júní 1932 kom þó fyrst verulegur skriSur á þetta mál. í þeim er þaö skilyrði sett fyrir byggingunni og fjárframlagi frá ríkissjóSi, „aö samkomulag náist viS bæjarstjórn Rvík- ur um að Reykjavíkurbær gefi Háskólanum til kvaðalausar eignar 8—10 ha. af landi, á þeim stað, sem kennslumálaráðherra og Há- skólaráði þyki hentugt“. Rétt eftir að lögin voru afgreidd frá Alþingi (27. maí) ritaði Jónas Jónsson kennslumálaráðherra bréf til borgarstjóra og benti þar á núverandi Há- skólalóÖ, sem takmarkist af Hringbraut, Mela- vegi og skemmtigarðinum í Vatnsmýrinni. Bréfi þessu svaraði borgarstjóri 15. ágúst á þá leið, „að bæjarstjórnin hef'Si samþykt, a5 leggja til Háskólans ókeypis land — fyrir austan Suðurgötu, milli Hringbrautar og veg- ar yfir Vatnsmýrina gegnt loftskeytastöð- inni.“ Gerir ,hann jafnframt ráð fyrir, að stúdentagarður verSi byggður á lóSinni, og lóöin viS SkólavörSutorg falli aftur til bæj- arins. RáSuneytiS ritaSi síðan Háskólaráði um málið 30. sept. '32, og telur þar lóðina 16,44 ha. Taldi Háskólaráðið lóS þessa mjög heppilega og mæltist til þess, að endanlegir samningar yrðu undirritaSir hið allra fyrsta. Þetta fórst þó fyrir, sennilega vegna þess, að kvaSir hvíldu á lóðinni, sem bæjarstjórn var ófús til að létta af henni. Allir voru þó sammála um aðalatriSin og var síðan gert skipulag yfir lóðina, og stúdentagarSurinn byggður í samræmi við það. SkipulagiS gerði ráð fyrir því, að byggingar Háskólans yrðu reistar í brekkunni, en að á láglendinu neðan hennar og austan kæmi skrautgarður, að svo miklu leyti, sem landið yrði ekki notað fyrir tennisvelli, eða þvíl., eða ef til vill til gróðr- artilrauna, ef atvinnudeild yrði stofnuð við Háskólann. Það mun hafa komið flestum óvart, er þa’ð vitnaðist í fyrra, að bæjarstjórn hefði í huga að leggja 20 m. breiða flutningagötu yfir þvera lóðina rétt fyrir framan stúdentagarð- inn. Myndin sýnir háskólalóðina (strikaÓ), sunnan skemmtigarBarins og T'jarnarinnar og Stúdenta- garÖinn. Tvær aöalgötur eru sýndar svartar. Hin efri er Melavegur (Suðurg.), hin neðri er fyrir- hugaða flutningagatan, sem sker lóðina sundur. Hún átti að tengja saman gamla bæinn og Skerjafjarðarbyggðina og hefði óhjá- kvæmilega orðið mikil umferö og flutningar eftir henni. Þar á ofan var láglendið slitið frá aðallóðinni, er girðing var komin beggja niegin götunnar. Háskólalóðin var þá lent rnilli tveggja fjölfarinna gatna með sífeldri umferS og bílaöskri, í stað þess að vera út af fyrir sig á rólegum stað. Ef nokkrum hefði dottið þetta í hug, er vafasamt hvort nokk- uö hefði orðið úr lóðaskiftunum. En gata þessi kemur ekki eingöngu í bága við Háskólalóðina. Það þarf einnig að breikka Tjarnargötu út í Tjörnina, sem sízt má við því, og nyrzt í þeirri götu verður hún að ganga gegnum fleiri hús. Siðan er henni ætlað að ganga á ská gengum gamla kirkjugarðinn inn í Aðalstræti. Það eru því margar torfærur á þessari leið og margir hlykkir. Gatan yrði dýr og ekki falleg. Um allt þetta mætti þó tala, ef brýn nauð- syn ræki á eftir, en það verður tæpast með sanni sagt. Einum 30 tn. vestar liggur Suð- urgata og hana má breikka ef þörf gerist. Uppsali má flytja yfir götuna (í kirkjugarðs- hornið) og gera þar sæmilegt umferðatorg. Hver leiðin sem er farin, mun óhjákvæmilegt að breikka Aðalstræti, úr því þrílyft bygging er leyfð, ef ekki hærri. En hér vilja menn sífellt hækka húsin, án þess að breikka göt- urnar!

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/1626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.