Öldin - 01.03.1935, Qupperneq 14

Öldin - 01.03.1935, Qupperneq 14
12 Ö L D I N reykvískra leikara hér aö framan, er full ástæSa til að minnast fleiri úr þeim hóp. Freistandi væri, að reyna a'ð gera ítarlegan samanburð á leik hinna ágætustu leikenda, í kvenna hóp: frú Steíaníu GuSmundsdóttur, frú Guörúnar Indriöadóttur, frú Soffíu Guö- laUgsdóttur, ungfrú Gunnþórunnar Halldórs- dóttur, frú Mörtu Indriöadóttur og ungfrúnna Arndísar Björnsdóttur og Þóru Borg; í karla hóp: Jens B. Waage, Árna Eiríkssonar, Friö- finns Guðjónssonar, Brynjólfs Jóhannesson- ar, Indriða Waage, Alfreds Andréssonar, Þorsteins Ö. Stephensens o. m. fl., meö til- vitnunum í ummæli gleggstu leikdómenda, samanburöi hlutverka og meö tilliti til hins breytta umhverfis, er hin nýja kynslóð reyk- vískra leikara á viö að búa. Þess er enginn kostur í stuttri grein, sem haföi þaö hóflega mark og miö, að vekja athyglina á því, að hér væru þó til, þrátt fyrir allt og allt, leik- endur, sem viö þröngan kost eru aö skapa' þá list, sem koma á. L. S. Ummæli próf. Östrups, rektors háskólans í Höfn um danska stúdenta. „...... Nú á dögum eru dönsku stúdent- arnir yfirleitt alvörugefnari en áÖur, og er þeim ljóst, að það er um að gera að vera at- orkusamur. Þeir eru líka hneigSari til efnis- hyggju, og fyrir þeim vakir fyrst og fremst spurningin: Hvað getum við hlotið — eða hvað getum við öðlast, en fyrir okkur hina eldri voru það hugsjónakenndari verðmæti, eins og t. d. frægð, sem mest var í varið. Að svo miklu leyti sem eg fæ séð, hafa stúdentarnir nú meiri vinnuhraða, og á það að nokkru ræt- ur sínar að rekja til umbóta á aðbúnaði og þverrandi áfengisdrykkju....“ * Islenzkir stúdentar við nám erlendis. Skýrsla Jóns Gissurarsonar, form. Upplýs- ingaskrifstofu Stúdentaráðsins. í vetur eru eftir því sem bezt verður vitað 96 íslenzkir stúdentar við nám erlendis, þegar frá eru skildir kandidatar frá Háskóla ís- lands. Eftirfarandi tafla sýnir, hvaða námsgreinir þeir leggja stund ; Hagíræði á: 12 Búvísindi 5 Verzlunarfræði .... 7 Gínasafræði 5 Vátryggingar ■ 3 Dýralækninga, 3 Bankafræði Tannlækningar 4 Lögfræði 1 Lyfjafræði 3 4 2 Verksmiðjuverkfr. .. 3 Mannfræði I Rafmagnsverkfr. ... 8 Sagnfræði 4 Byggingarverkfr. .. . 7 Málfr. og bókmennta- I 4 Náttúrufr. alm I Guðfræði 1 Gerlafræði I Eðlisfræði og efnafr. 6 Uppeldisfræði 1 I 1 Jarðfræði 2 Leiklist 1 Jarðfr. og landafr. . 1 Stúdentarnir skiptast á þessi lönd: Danmörk 52 England 6 Þýskaland 20 Skotland I 8 I Noregur 7 Austurríki I Frá því veturinn 1931—1932 heíir íslenzk- um stúdentum í Þýzkalandi fækkað úr 48 í 20. Hinsvegar hefir íslenzkum stúdentum í Höfn fjölgað úr 25 í 52, í Englandi fjölgað úr 2 í 6, Svíþjóð fjölgað úr 2 í 8, og í Nor- egi hefir þeim fjölgað úr 5 í 7. Útgefendur: Nokkrir stúdentar. —- Ritstjórn: Arnljótur Guðmundsson og Óskar Bergsson. — Af- greiðslumaður: Gunnlaugur Pétursson, Stúdentagarðinum, sími 4789. — Pósthólf 16. Öldin kemur út mánaðarlega, að vetrinum. — Áskriftagjald kr. 3.00 árg., kr. 0.50 eint. Félagsprentsniiðj an.

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/1626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.